Mosfellingur - 07.01.2016, Blaðsíða 14
- Dreift frítt í Mosfellsbæ, á Kjalarnes og í Kjós14
opið:
kl. 10-18.30
alla virka daga
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
gleðilegt ár
HáHolti 13-15 - sími 578 6699
ómissandi harðfiskur að vestan
súr hvalur frá nafna loftssyni í hval hf.
ferskur fiskur á hverjum degi
rauðmagi,
hrogn
og lifur
Kjarni fjalla
ný sýning í Listasal
Mosfellsbæjar
Sýningarröð ársins 2016 í Listasal Mos-
fellsbæjar hefst á grafíksýningu sem verður
opnuð laugardaginn 9. janúar kl. 14 – 16.
Sýningin ber nafnið Kjarni fjalla. Þar sýnir
grafíklistamaðurinn Tryggvi Þórhallsson
myndaseríu um fjöll. Serían snýst um form
og innri línur. Útfærslan er með svokallaðri
þurrnál, en þá er teikningin rist í plötu og
síðan þrykkt á pappír.
Tryggvi Þórhallsson (f. 1962) stundaði
nám við Myndlista- og handíðaskóla
Íslands 1984 – 1988 og brautskráðist frá
grafíkdeild. Á undanförnum misserum
hefur hann haldið nokkrar einkasýningar
í Reykjavík, á Akureyri og víðar, þar sem
myndefnið er sótt í íslenska náttúru og
upplifanir úr ferðum um landið. Á þeim
sýningum hefur útfærslan byggst á sam-
spili málverks og teikningar, en að þessu
sinni er teikningin í aðalhlutverki. Tryggvi
er félagi í Íslenskri grafík.
Sýningin verður opnuð laugardaginn
9. janúar kl. 14 – 16. Sýningin er opin á
afgreiðslutíma Bókasafnsins og stendur
hún til 13. febrúar. Meðfylgjandi er ein
myndanna á sýningunni.
Að þessu sinni er það Ingibjörg Pétursdóttir, húsfreyjan á Suður-Reykjum,
sem er kona desembermánaðar. Með þessari sýningu lýkur dagskránni um
Konur mánaðarins í Mosfellsbæ.
Verkefnið var unnið af starfsmönnum Bókasafns Mosfellsbæjar og Héraðs-
skjalasafns Mosfellsbæjar í samvinnu við ættingja þegar hægt var að koma því
við. Sýning um Ingibjörgu er á veggspjaldi og í sýningarskáp í Bókasafninu.
Sýningin var opuð um miðjan desember og stendur fram í miðjan janúar.
Ingibjörg Pétursdóttir fæddist 20. september 1892 í Svefneyjum á Breiða-
firði. Foreldrar hennar voru hjónin Pétur Hafliðason frá Svefneyjum og
Sveinsína Sveinsdóttir frá Flatey. Ingibjörg var ein átta systkina og ólst upp í
eyjunum hjá foreldrum sínum og glaðværum systkinum. Ingibjörg var mjög
félagslynd og hafði alla tíð brennandi áhuga á hvers kyns þjóðþrifamálum.
Ingibjörg giftist Guðmundi Jónssyni (1890-1946) skipstjóra og flutti fjöl-
skyldan árið 1926 að Suður-Reykjum í Mosfellssveit og hóf þar búskap. Mann
sinn missti Ingibjörg í september 1946, langt fyrir aldur fram.
Ingibjörg var glæsileg kona, fríð, fallega eyg, með mikið liðað hár. Skapferli
hennar er lýst þannig að þar hafi ekki verið nein hálfvelgja, heldur fór saman
skaphiti og harka ef þannig stóð á, en svo aftur blíðlyndi og brjóstgæði, svo að
hún mátti ekkert aumt sjá. Hún var hreinlynd og heiðarleg í allri hugsun.
Ingibjörg andaðist 24. desember 1980.
Ingibjörg Pétursdóttir
Kona mánaðarins
Unnið í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá því að konur á Íslandi fengu kosningarétt
Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar Bókasafn Mosfellsbæjar
KONA MÁNAÐARINS
desember 2015
Ingibjörg Pétursdóttir (1892-1980)
Húsfrú á Syðri-Reykjum
M
yn
di
r f
rá
H
ér
að
ss
kj
al
as
af
ni
o
g
úr
e
in
ka
sa
fn
i.
Kvennadeild Slysavarnarfélagsins.
kyns þjóðþrifamálum.
Sveinsdóttir (1852-1928). Sveinsína bjó
Vottorð
um
kúabólusetningu
Ingibjargar.
sínum Sveinbirni og
Sigríði.
Ingibjörg og Sveinbjörn
Svefneyjum.
drengjunum.
Ölöf.
Ingibjörg með Pétri bróður sínum og Hallfríði
árunum 1925-1927.
Ingibjörg með tvíburasystrum
afmæli systranna
Móðirin
Búkonan
á Reykjum.
á þeim tíma.
Skagfjörð.
Ingibjörg með Kristínu Magnúsdóttur frá Brúarlandi.
Ingibjörg var kjörinn
Ættmóðirin
Félagsmálakonan
og Kvenfélagi Lágafellssóknar.
rýnt í sýningarkassann