Mosfellingur - 07.01.2016, Blaðsíða 6
Eldri borgarar
Þjónustumiðstöðin
Eirhömrum
GlEðilEGt nýtt ár oG
hlökkum til að sjá
sEm flEsta á nýju ári
opið hús/
menningarkvöld famos
Mándaginn 11. janúar kl. 20:00 verður
fyrsta Opið hús/menningarkvöld á þessu
ári í Hlégarði. „Kynslóðabilið“ spilar,
syngur og trallar og Haukur Ingibergsson
formaður LEB fjallar um málefni eldri
borgara.
ýmsar fréttir
Fyrstu tímar Íþróttadeildar FaMos
2016 eru eftirfarandi:
Vatnsleikfimi byrjar 11. jan. Boccia
byrjar 12. jan og ringó þann 14. jan.
leikfimi byrjar á Eirhömrum fimmtudag-
inn 14. jan kl. 10:45 sem er auðveldari
leikfimi, ætlað fyrir fólk með lélegt
jafnvægi og grindur og þá sem kjósa ró-
legri tíma. 11:15 er almenn leikfimi. Allir
velkomnir, leikfimin er gjaldfrjáls og liður
Mosfellsbæjar í að búa í Heilsueflandi
samfélagi. Kennari er Karin Mattson.
tréútskurður byrjar 13. jan kl. 19:00.
Kennari er Stefán Haukur.
Bókbandsnámskeið byrjar einnig í
janúar og verður kennt á þriðjudögum.
Kennari er Ragnar.
módelsmíði byrjar fimmtudaginn 7. jan.
n.k. kl. 16:00 á sama tíma og áður. Kennari
er Erling Markús Andersen.
Postulínsnámskeið verður í boði á
vorönn, glernámskeið, myndlistin,
spænskunámskeið, línudans og
dansleikfimin verður á sínum stað, ekki
má gleyma brigde á miðvikudögum,
félagsvistinni annan hvern föstudag
og Gaman saman á fimmtudögum.
leshringur heldur áfram göngu sinni og
hittist einu sinni í mánuði.
Stundaskrá með nánari tímasetningum
verður birt í næsta Mosfellingi ásamt
fleiri dagskrárliðum.
Minnum á að handverksstofan er opin
alla virka daga frá 13:00-16:00. Leiðbein-
endur eru alla daga nema föstudaga
og eru það þær Stefanía og Guðbjörg.
Verið hjartanlega velkomin í okkar
skemmtilega starf.
- Fréttir úr bæjarlífinu6
félaG aldraðra
í mosfellsbæ og nágrenni
famos@famos.is
www.famos.is
Sigrún Geirsdóttir vann það þrekvirki á
árinu 2015 að synda fyrst íslenskra kvenna
yfir Ermarsundið. Sigrún sem hefur stund-
að sjósund undanfarin ár og hafði áður
synt boðsund í tvígang yfir Ermarsundið
sem varð kveikjan að því að hana langaði
að gera þetta ein.
Ermarsundið er stundum kallað „Mount
Everest sundmanna,“ en að synda yfir sund-
ið er eitt og sér mikið afrek, en þrekvirki
Sigrúnar verður líklega seint leikið eftir.
Bakgrunnur Sigrúnar í íþróttum er enginn
og lærði hún skriðsund fyrir þremur árum
síðan. Þetta afrek hennar er því ótrúlegt.
Ótrúlegur heiður
„Þetta er æðislegt, ég var tilnefnd sem
maður ársins af ýmsum fjölmiðlum en það
er ótrúlegur heiður að hljóta nafnbótina
Mosfellingur ársins, það er svakalega
skemmtilegt,“ segir Sigrún og bætir við að
hún sé alltaf endurnærð þegar hún komi
upp úr sjónum, skilji áreiti og áhyggjur eftir
og finni fyrir meiri jarðtengingu.
„Þegar ég ákvað að fara í þetta sund átti
ég ekki von á allri þessari athygli, ég er nú
frekar feimin og því er þetta bæði gaman
og erfitt. Þetta var ótrúlegt ævintýri og ég
er mjög stolt af sjálfri mér að hafa klárað
sundið og ekki gefist upp þrátt fyrir mikið
mótlæti á leiðinni.“
samsvarar 1.254 ferðum í lágafellslaug
Vegalengdin beint yfir sundið er 33 km
en ég synti 62,7 km á 22 klukkustundum og
34 mínútum.
„Ég byrjaði vel en eftir rúmlega þrjá
klukkutíma varð ég sjóveik og kastaði upp
eftir hverja matargjöf í sjö tíma. Þegar ég
var búin að synda í 10 klukkutíma komst
ég þó yfir sjóveikina, þá var brugðið á það
ráð að gefa mér súkkulaði, kók og Jelly
Babies að borða. Það er líklega einsdæmi
að einhver hafi synt yfir Ermarsundið á
þessu fæði.“
Vegalengdin sem Sigrún synti samsvarar
1.254 ferðum fram og til baka í Lágafells-
laug og það í gríðarlega miklum straumum,
öldum og að hluta til í svarta myrkri.
snýst um rétta hugarfarið
Sund Sigrúnar hefur vakið mikla athygli.
„Ég hef haldið þónokkra fyrirlestra og mér
finnst það voða skemmtilegt. Ég fjalla þá
um undirbúninginn en hann er rosalega
mikilvægur, bæði æfingarnar og ekki síst
hugarfarið.
Ég segi frá lífi mínu áður en ég byrjaði að
stunda sjósund og þá aðalega heilsufars-
lega. Sýni svo myndband af sundinu en fólk
gerir sér ekki alveg grein fyrir því hvað þetta
er fyrr en það sér myndbandið og verður
svolítið slegið þegar það sér myrkrið, öld-
urnar og líkamlegt og andlegt ástand mitt,“
segir Sigrún að lokum.
Sigrún Þ. Geirsdóttir er Mosfellingur ársins • Fyrst íslenskra kvenna yfir Ermarsundið
lærði skriðsund fyrir
aðeins þremur árum
sigrún tekur við
viðurkenningunni
úr höndum hilmars
ritstjóra mosfellings Bæjarblaðið Mosfellingur hefur
staðið fyrir vali á Mosfellingi ársins
síðastliðin ár. Nafnbótina hafa hlotið:
2005 Sigsteinn Pálsson
2006 Hjalti Úrsus Árnason
2007 Jóhann Ingi Guðbergsson
2008 Albert Rútsson
2009 Embla Ágústsdóttir
2010 Steinþór Hróar Steinþórsson
2011 Hanna Símonardóttir
2012 Greta Salóme Stefánsdóttir
2013 Hljómsveitin Kaleo
2014 Jóhanna Elísa Engelhartsd.
2015 Sigrún Þ. Geirsdóttir
moSfEllInGuR ÁRSInS
laugardaginn 23. janúar 2016
Þrettándagleði
á laugardaginn
Hin vinsæla þrettándabrenna fer
fram laugardaginn 9. janúar. Blysför
leggur af stað frá Miðbæjartorgi
kl. 18 og gengið að brennunni
sem verður á sama stað og áður,
neðan Holtahverfis við Leirvoginn.
Skólahljómsveitin leikur, Grýla og
Leppalúði og þeirra hyski verður
á svæðinu, Stormsveitin syngur
og Kyndill verður með glæsilega
flugeldasýningu. Um kvöldið heldur
svo rokkkarlakórinn Stormsveitin
sína árlegu þrettándatónleika í
Hlégarði og hefjast þeir kl. 21.
Ólafur Arnalds hlaut
bjartsýnisverðlaunin
Ólafur Arnalds, tónlistarmaður úr
Mosfellsbæ, hlaut Íslensku bjartsýn-
isverðlaunin sem afhent voru við
hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum
um helgina. Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, afhenti
verðlaunin sem eru áletraður gripur
úr áli og verðlaunafé að fjárhæð
ein milljón króna. Ólafur Arnalds
lét þess getið í þakkarávarpi sínu
að verðlaunaféð myndi renna til
hljóðfærakaupa fyrir Barna- og
unglingageðdeild Landspítalans.
Íslensku bjartsýnisverðlaunin eru
menningarverðlaun sem afhent
hafa verið árlega síðan 1981.
Ólafur er sonur hjónanna Andrésar
Arnalds og Guðrúnar Pálmadóttur.