Mosfellingur - 07.01.2016, Blaðsíða 13
Gufufélag Mosfellsbæjar hélt að vanda aðalfund sinn á
gamlársdag í gufubaðsaðstöðunni í Varmárlaug. Hæst bar
á fundinum að forseti félagsins, Valur Oddsson, tilkynnti
um stofnun nýs embættis innan stjórnar; heilbrigðisfull-
trúa. Forseti skipaði Guðbjörn Sigvaldason umsvifalaust í
embættið.
Um leið veitti forseti, undir öruggri handleiðslu for-
manns orðunefndar, Ólafs Sigurðssonar, Guðbirni heiðurs-
kross Fálkaorðu Gufufélagsins fyrir að hafa sýnt einstakt
umburðarlyndi í garð heilbrigðiskerfisins. „Guðbjörn hefur
sýnt biðlund í sex mánuði af átján til að komast í aðgerð til
að verða aftur vinnufær,“ sagði Valur forseti orðrétt í rök-
stuðningi sínum fyrir að veita Guðbirni heiðurskrossinn.
Guðbjörn er aðeins fjórði félagi Gufufélagsins sem er veitt
Fálkaorðan.
Fulltrúar á öllum sviðum þjóðfélagsins
Í ávarpið sínu sagði Valur forseti ennfremur að árið hafi
verið Gufufélaginu afar hagfellt. Talsverð umfjöllun hafi
verið um starfsemi félagins. Umsvif Gufufélagsins á fjár-
málamarkaði hafi verið talsverð en ekki hafi allar áætlanir
gengið eftir enda vill stjórnin ekki ana að neinu í verkum
sínum. Félagið hafi fært út kvíarnar víða í samfélaginu.
„Nú er svo komið að Gufufélagið á fulltrúa á öllum
sviðum þjóðfélagsins, eins og bæjarstjórn, kjörstjórn, elli-
heimilum, iðnaði og í sveitum landsins, bæði á lögbýlum
og eyðibýlum,“ sagði Valur forseti m.a. í ávarpi sínu.
Jafnframt benti forseti á að með tilskipun hafi hann flýtt
klukku félagsmanna um þrjá stundarfjórðunga. Sú breyting
hafi verið til mikilla framfara og nú kæmi enginn félags-
maður of seint heim af fundum félagsins.
100% stuðningur við forseta félagsins
Forseti Gufufélagsins, Valur Odddsson, hefur setið á far-
sælum valdastóli í nokkuð á þriðja áratug og sýnir engan
bilbug. Þegar kom að stjórnarkjöri vék forseti máli sínu af
nokkrum þunga til félagsmanna með eftirfarandi orðum:
„Miklar vangaveltur hafa verið í fjölmiðlum hvort forseti
ætli að gefa kost á sér aftur í embætti eftir öll þessi ár. Þess
vegna vil ég árétta að forseti viðheldur lýðræði fyrri ára,
virðir mótframboð að vettugi og situr áfram sem fastast.
Það er því sjálfgefið að ekki verður kosið í ár.“
Forseti ítrekaði ennfremur að hann hafi ævinlega notið
ríflega 100% stuðnings meðal félagsmanna sem væri gott
betur en t.d. Kim Young-un hafi meðal sinna þegna en
Young-un fékk aðeins 99,7% fylgi í síðustu kosningum í
Norður-Kóreu.
Ávarpi forseta var að vanda afar vel tekið. Reikningar
félagsins voru með flóknasta móti að þessu sinni. Þeir voru
engu að síður samþykktir með öllum greiddum atkvæðum
en meginatriði þeirra verða ekki tíunduð hér af tillitssemi
við lesendur.
Sungið undir stjórn söngmálastjóra
Að vanda voru veittar stórafmælisgjafir til félaga sem
áttu merkisafmæli á árinu. Að þessu sinni voru það þrír
félagsmenn. Ívar Benediktsson, blaðafulltrúi, varð fimm-
tugur 28. desember, Ásgeir Eiríksson, fulltrúi hollustu og
heilbrigðra lífshátta átti sextugsafmæli 8. mars og Erlingur
Friðgeirsson, fjármála- og efnahagsráðgjafi varð sjötugur
7. október.
Að lokum var sungið við raust undir styrkri stjórn Guð-
mundur Guðlaugssonar söngmálastjóra áður haldið var
heim þar sem félagsmenn tóku hreinir á líkama og sál á
móti nýju ári.
Aðalfundur Gufufélags Mosfellsbæjar á gamlársdag • Orðuveitingar, stórafmælisgjafir og áramótaávarp forseta
Skipað í nýtt embætti Gufufélagsins
Ólafur Sigurðsson, formaður
orðunefndar, Guðbjörn Sigvaldason,
heilbrigðisfulltrúi og Valur Oddsson,
forseti Gufufélags Mosfellsbæjar.
VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja
Jólatrén hirt
10. og 11. janúar
Félagar í Handknattleiksdeild Aftureldingar munu
aðstoða bæjarbúa við að fjarlægja jólatré sín og
koma þeim í viðeigandi endurvinnslu og kurlun.
Þeir verða á ferðinni sunnudaginn 10. janúar
og mánudaginn 11. janúar.
Þeir bæjarbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu
eru vinsamlegast beðnir um að setja jólatrén út
fyrir lóðamörk fyrir þann tíma og ganga þannig
frá þeim að þau geti ekki fokið og valdið tjóni.
Einnig geta íbúar losað sig við jólatré
á endurvinnslustöðvum Sorpu bs. án
þess að greiða förgunargjald fyrir þau.
Fréttir úr gufubaðinu - 13