Mosfellingur - 07.01.2016, Side 16
Kynning á íþróttaKörlum
sem tilnefndir eru
Kosning fer fram
á www.mos.is
Úrslit verða tilKynnt
fimmtudaginn 21. janÚar
Kosning fer fram á vef mosfellsbæjar www.mos.is dagana 7. -
15. janúar. velja skal karl í 1., 2. og 3. sæti sem og konu í 1., 2. og 3.
sæti, kosningin er ekki gild nema valið sé í öll þrjú sætin. Úrslit verða
kynnt fimmtudaginn 21. janúar kl. 19 í Íþróttamiðstöðinni að Varmá.
Íþróttamaður taekwondodeildar
aftureldingar árið 2015
Arnar er fastur maður í landsliði
Íslands í flokki Senior, 18 ára og eldri,
-68kg, auk þess að vera yfirkennari
taekwondodeildar Aftureldingar. Hann
stýrir keppnisliði deildarinnar, sem
bætir sífellt árangur sinn og fjölgar
landsliðsmönnum innan sinna raða.
Arnar náði einum besta árangri sem ís-
lenskur taekwondo keppandi hefur náð
þegar hann varð í öðru sæti á European
Masters Games í október 2015.
Reykjavíkurleikarnir: Keppt í Senior,
18 ára og eldri, -68kg. 2. sæti.
Bikarmót 2: Keppt í Senior,
18 ára og eldri, -68. 1. sæti.
Íslandsmeistaramót 2015: Keppt í
Senior, 18 ára og eldri, -68kg. 1. sæti.
Manchester Spring Open, í Bretlandi:
Keppt í 3 keppnisflokkum sem undir-
búningur fyrir European Masters Games
í Senior, 18 ára og eldri, -68kg. 1. sæti.
Veteran, 35 ára og eldri, -68. 1. sæti.
Bikarmót 3: Keppt í Senior, 18 ára og eldri, +80kg. 3. sæti.
arnar Bragason taekwondo
Handknattleiksmaður
aftureldingar 2015
Pétur hefur æft og keppt í handbolta með
uppeldisfélagi sínu Aftureldingu frá því
hann var ungur drengur.
Pétur er mjög öflugur og þroskaður
leikmaður, spilar stórt hlutverk í liði
meistaraflokks karla og átti stóran þátt
í frábærum árangri Aftureldingar í Olís-
deildinni á síðasta tímabili. Pétur er einn
af betri varnarmönnum deildarinnar og
öflugasti línumaður í íslensku deildinni.
Pétur hefur verið í unglingalandsliðum
Íslands frá 14 ára aldri og hefur keppt á
alþjóðlegum mótum undanfarin ár.
Pétur var valinn í íslenska A landsliðið á
árinu og spilaði með því á æfingamóti í
haust. Pétur er af mörgum talinn framtíð-
ar landsliðsmaður í íslenska landsliðinu.
Pétur hefur allt til að bera sem góður
íþróttamaður og sinnir æfingum af
dugnaði og samviskusemi, er reglusamur
og meðvitaður um andlega og líkamlega
þætti sem skipta máli í þjálfun og keppni.
Hann á mjög auðvelt með öll samskipti við félaga í liðinu og er sterkur móralslega.
Pétur júníusson handknattleikur
Bæjarbúum gefst kostur á, ásamt aðal- og varamönnum
í Íþrótta- og tómstundanefnd, að kjósa íþróttakarl
og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2015.
Hestaíþróttamaður Harðar 2015
Árið 2015 var besta keppnisár Reynis frá
upphafi. Þar bar hæst heimsmeistaratitill
á gríðarsterku móti í Herning og tvenn
silfurverðlaun sem var besti árangur
einstakra knapa á öllu mótinu þar sem
keppendur voru frá 18 löndum.
Reynir Örn varð tvöfaldur Íslandsmeistari,
í samanlögðum fimmgangsgreinum og
í slaktaumatölti, þar sem hann hlaut
hæstu einkunn ársins, 8.88.
Reynir Örn er mjög ofarlega á heims-
listum FEIF Worldranking 2015 sem eru
heimssamtök Íslandshesta, en þar er
hann í topp 10 í fjórum greinum.
Reynir Örn keppti á öllum mótum sem
Hörður hélt, ásamt því að keppa á öllum
stórmótum sem haldin voru á Íslandi og
var alltaf í úrslitum.
Reynir Örn er framúrskarandi afreks-
maður í hestaíþróttinni. Hann hefur sinnt
félagsstörfum og starfað sem reiðkennari
hjá Herði og víðar bæði hérlendis og
erlendis um árabil, ásamt því að reka eitt stærsta hrossaræktarbú landsins. Hann
hefur oft verið valinn í landslið Íslands og keppt fyrir Ísland á erlendri grundu
reynir örn Pálmason hestaíþróttir
Íþróttamaður Golfklúbbs
mosfellsbæjar 2015
Kristján hefur í áraraðir verið einn
fremsti kylfingur landsins. Árið hjá
Kristjáni var gott og endaði hann nr. 2
á stigalista golfsambandsins.
Kristján sigraði á fyrsta móti Eimskips-
mótaraðarinnar sem haldið hefur verið
á Hlíðavelli og einnig gerði hann sér lít-
ið fyrir og sigraði einstaklingskeppnina
á Smáþjóðaleikunum sem haldnir voru
í Reykjavík síðastliðið sumar. Kristján
tók einnig þátt með landsliði Íslands á
Evrópumóti landsliða og stóð hann sig
þar með prýði.
Sveit GM stóð uppi sem Íslandsmeistari
félagsliða og gerði Kristján sér lítið fyrir
og sigraði alla sína andstæðinga í þeirri
keppni. Kristján er góð fyrirmynd og
margir ungir kylfingar líta upp til hans.
Kristján Þór Einarsson golf