Mosfellingur - 07.01.2016, Blaðsíða 17
Útnefning á íþróttakarli
og íþróttakonu
Mosfellsbæjar 2015
Íþróttamaður blakdeildar
Aftureldingar
Jón Ólafur Bergþórsson er blakmaður
Aftureldingar 2015. Jón Ólafur kom inn
í liðið eftir að leiktíðin 2014-2015 byrjaði
og kom liðinu til hjálpar á erfiðum tíma
þar sem liðið var uppspilaralaust.
Hann hvetur ungu leikmennina áfram
og er tilbúinn til að hjálpa deildinni að
byggja upp lið þar til yngri leikmenn eru
tilbúnir í slaginn.
Jón Ólafur hefur spilað með karlaliði
Aftureldingar undanfarin ár í neðri
deildum og á öldungamótum. Jón
Ólafur er mikill keppnismaður og er
tilbúinn að leggja mikið á sig til að liðinu
gangi sem best.
Jón Ólafur Bergþórsson blak
Knattspyrnumaður
Aftureldingar 2015
Kristinn Jens Bjartmarsson, eða Kjensi
eins og hann er kallaður, gekk til liðs
við Aftureldingu í febrúar 2015 og lék
hverja einustu mínútu á Íslandsmótinu
í sumar. Kristinn var lykilmaður í liði
Aftureldingar og lék vel í sumar og fékk
afgerandi kosningu sem leikmaður
ársins á lokahófi Aftureldingar
haustið 2015.
Kristinn er sókndjarfur bakvörður sem
einnig getur spilað sem miðvörður.
Kristinn er mikill leiðtogi og heyrist
gjarnan mikið í honum á vellinum
þar sem hann stjórnar og leiðbeinir
liðsfélögum sínum allan leikinn. Rödd
Kristins er sömuleiðis afar áberandi á
æfingum og hann sættir sig aldrei við
neitt nema allir leggi sig 100% fram.
Kristinn Jens var til fyrirmyndar innan
sem utan vallar og hlýtur nafnbótina knattspyrnumaður ársins 2015.
Kristinn Jens Bjartmarsson knattspyrnumaður
Kynning á íþróttakörlum sem tilnefndir eru vegna kjörs til
íþróttakarls Mosfellsbæjar 2015, og afrekum þeirra á árinu.
Óliver Örn Sverrisson er 17 ára og hefur
stundað motocross frá 7 ára aldri og
byrjaði að keppa 12 ára undir merkjum
MotoMos. Óliver er tvöfaldur Íslands-
meistari í unglingaflokki (aldur 14-18
ára) fyrir árið 2014 og 2015, og sá fyrsti
í mörg ár sem ver titil sinn í þeim flokki
en Íslandsmeistaramótið samanstendur
af fimm keppnum víðsvegar um landið.
Óliver keppir að meðaltali í átta
keppnum yfir árið og tók þátt á
Unglingalandsmóti UMFÍ á síðasta ári
ásamt að taka þátt í stærstu vélíþrótta-
keppni landsins sem haldin er á Íslandi
ár hvert á Klaustri með góðum árangri,
en um er að ræða sex tíma þolaksturs-
keppni í krefjandi landslagi með hátt í
400 keppendum.
Samhliða þessu stundar Óliver crossfit
og aðra líkamsrækt á hverjum degi. Að
meðaltali eyðir hann um 28 tímum á
viku við æfingar, allt árið. Það þarf vart
að taka það fram að Óliver hvorki reykir né neytir áfengis.
Óliver Örn Sverrisson akstursíþróttir
Kraftlyftingakarl
Mosfellsbæjar 2015
Andri Þór Goethe er Íslandsmeistari
unglinga 2015 í -93 kg flokki, hann
lyfti 162,5 kg í hnébeygju -110 kg í
bekkpressu og 200 kg í réttstöðulyftu,
samanlagt 472,5 kg á Íslandsmóti
unglinga í Hafnarfirði. Andri keppti
einnig á gamlársmóti Kraftlyftinga-
félags Mosfellsbæjar í –105 kg flokki,
þar lyfti hann 200 kg i hnébeygju, 125 kg
í bekkpressu og 225 kg í réttstöðulyftu,
samanlagt 550 kg.
Andri er í námi í Háskólanum í Reykja-
vík og hefur náð þessum frábærum
árangri jafnframt því að vera í erfiðu
námi. Andri er gríðarlega efnilegur
íþróttamaður fullur sjálfstrausts og aga.
Andri Þór Goethe kraftlyftingar
KoSninG
á www.MoS.iS