Mosfellingur - 07.01.2016, Page 18

Mosfellingur - 07.01.2016, Page 18
Blakkona Aftureldingar 2015 Fjóla Rut Svavarsdóttir gekk í raðir Aft- ureldingar haustið 2014. Hún er uppalin í Þrótti Reykjavík, en mikið samstarf var milli Aftureldingar og Þróttar þegar hún var í yngri flokkum og æfði hún því oft í Mosfellsbænum og keppti undir merkjum Aftureldingar í yngri flokkum. Fjóla Rut er einn af máttarstólpunum í meistaraflokki kvenna, en liðið fór taplaust í gegnum deildarkeppnina 2014-2015, liðið hampaði deildar- og bikarmeistaratitli á því tímabili en beið ósigur í æsispennandi útslitarimmu um Íslandsmeistaratitilinn við HK í apríl 2015. Fjóla Rut er mjög mikilvægur liðsfélagi og öflugur leikmaður. Einnig er hún mjög hvetjandi og drífandi fyrir aðra leikmenn og tekur af skarið þegar á þarf að halda. Hún er ávallt tilbúin til aðstoðar ef til hennar er leitað vegna vinnu fyrir félagið. Fjóla Rut Svavarsdóttir blak Íþróttakona Golfklúbbs Mosfellsbæjar 2015 Heiða hefur lengi verið meðal fremstu kvenkylfinga landsins en síðastliðið sumar var hennar besta í keppnisgolfi. Heiða varð Íslandsmeistari í holukeppni á Akureyri og var í kjölfarið valin í landslið kvenna sem keppti á Evrópu- móti landsliða í Danmörku. Heiða var í efsta sæti Eimskipsmót- araðarinnar að loknum 4 mótum af 6. Heiða gat ekki leikið á Íslandsmótinu í höggleik en hún var á sama tíma með bróður sínum á Special Olympics en þau kepptu í unified flokki (1 fatlaður, 1 ófatlaður). Þau stóðu sig vel og luku leik í 3. sæti í efsta styrkleikaflokki. Heiða var lykilmaður í sveit GM sem hafnaði í 4. sæti í sveitakeppni GSÍ. Heiða er góð fyrirmynd, leggur hart að sér við æfingar og ætlar sér stóra hluti á komandi keppnistímabili. Heiða Guðnadóttir golf Knattspyrnukona Aftureldingar 2015 Kristín er 17 ára gömul og lykilmaður í meistaraflokki kvenna. Hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik sumarið 2014 og síðasta sumar lék Kristín 17 leiki auk fjögurra leikja fyrir U17 landslið Íslands. Kristín, sem fór á kostum sem bak- vörður í Pepsideildinni í sumar, hefur leikið 29 leiki fyrir Aftureldingu og 11 leiki með U17 landsliði Íslands og hefur verið valin á úrtaksæfingar með U19 landsliðinu frá því í haust. Kristín er einn efnilegasti leikmaður landsins og er Afturelding mjög stolt af henni fyrir störf hennar í þágu félagins. Kristín Þóra er frábær fyrirmynd yngri knattspyrnustúlkna, hógvær og skemmtilegur persónuleiki sem á framtíðina fyrir sér. Kristín Þóra Birgisdóttir knattspyrna Kraftlyftingakona Mosfellsbæjar 2015 Auður er Íslandsmeistari unglinga, hún er einnig bikarmeistari 2015. Auður setti 8 Íslandsmet á árinu og á núverandi met í flokki -18 ára og -23 ára, núgildandi met Auðar eru 110 kg í hnébeygju, 55 kg í bekkpressu og 110 kg í réttstöðulyftu, samanlagt 275 kg í flokki - 52 kg. Auður er í flokki með bestu kraftlyftingakonum landsins og verður að teljast mjög líklegt að hún fái sæti í A landsliði Íslands á árinu 2016. Auður sýndi frábæra takta á Bikarmóti Kraftlyftingasambandsins á Akureyri þegar hún fékk gildar 9 lyftur af 9. Auður Linda Sonjudóttir kraftlyftingar Íþróttakona taekwondodeildar Aftureldingar árið 2015 María æfir og keppir með báðum landsliðunum í taekwondo, bæði tækni „poomsae“ landsliðinu og bardaga „sparring“ landsliðinu. Auk þess er María mjög virk í starfi deildarinnar, er í stjórn og virk í öllu innra starfi deildarinnar. Hennar besti árangur á árinu var silfur á NM í sparring og gull á Danmark Open í poomsae, Reykjavíkurleikarnir sparring (B flokkur) silfurverðlaun, ein- staklings poomsae (B flokkur) gullverð- laun og hópa poomsae gullverðlaun. Norðurlandamót sparring (A flokkur) silfurverðlaun, bikarmót 2 einstaklings poomsae (A flokkur) silfurverðlaun, Íslandsmeistaramót Kyrogi sparring (A flokkur) silfurverðlaun, Danmark open einstaklings poomsae (B flokkur) gullverðlaun, Íslandsmeistaramót poomsae einstaklings poomsae (B flokkur) gullverðlaun, Bikarmót 1 sparring silfurverðlaun, einstaklings poomsae (B flokkur) gullverðlaun, hópa poomsae gullverðlaun og para poomsae gullverðlaun. María Guðrún Sveinbjörnsdóttir taekwondo KynninG á ÍÞRóttAKonuM SeM tiLneFndAR eRu KoSninG FeR FRAM á www.MoS.iS ÚRSLit veRðA tiLKynnt FiMMtudAGinn 21. jAnÚAR Kosning fer fram á vef Mosfellsbæjar www.mos.is dagana 7. - 15. janúar. velja skal karl í 1., 2. og 3. sæti sem og konu í 1., 2. og 3. sæti, kosningin er ekki gild nema valið sé í öll þrjú sætin. Úrslit verða kynnt fimmtudaginn 21. janúar kl. 19 í Íþróttamiðstöðinni að Varmá. Bæjarbúum gefst kostur á, ásamt aðal- og varamönnum í Íþrótta- og tómstundanefnd, að kjósa íþróttakarl og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2015.

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.