Mosfellingur - 07.01.2016, Blaðsíða 22
Hvíti riddarinn
á ferð um helgina
Hvíti riddarinn hefur í mörgu að
snúast um helgina. Á föstudags-
kvöld kl. 19 leikur
karlaliðið gegn
Selfossi á Selfossi
í átta liða úrslit-
um á Íslands-
mótinu í fútsal.
Sigur í leiknum
fleytir liðinu í
fjögurra liða úrslit í
Laugardalshöll á laug-
ardaginn. Kvennaliðið leikur fyrsta
leik sinn í Faxaflóamótinu á laugar-
dag kl. 16:00 á gervigrasvellinum á
Varmá, gegn Víkingi Ólafsvík.
- Íþróttir22
Sjö nýir
Svartbeltingar
StóðuSt prófið
Í lok haustannar bættust sjö nýir svart-
beltingar í iðkendahóp taekwondodeildar
Aftureldingar. Svartbeltispróf var haldið í
bardagasal Aftureldingar 12. desember.
Þeir sem stóðust prófið að þessu sinni
voru Ágúst Örn Guðmundsson, Níels
Salómon Ágústson, María Guðrún Svein-
björnsdóttir, Vigdís Helga Eyjólfsdóttir,
Richard Már Jónsson, Aldís Inga Ri-
chardsdóttir, Mikael Ingi Richardsson og
Herdís Þórðardóttir.
Yfirdómari í prófinu var Helgi Rafn
Guðmundsson 4. dans meistari.
Í lok annar var haldið mjög fjölmennt
og vel heppnað gráðupróf hjá deildinni
þar sem fjöldi iðkenda bætti við sig gráðu.
Ný önn hefst þann 7. janúar og verður
mjög fjölbreytt dagskrá í boði. Þar ættu
allir að geta fundið eitthvað við hæfi, bæði
ungir sem aldnir, byrjendur sem og lengra
komnir.
Frá vinstri: María Guðrún Sveinbjörnsdóttir, Richard Már Jónsson, Mikael Ingi Richardsson,
Ágúst Örn Guðmundsson, Níels Salómon Ágústson, Herdís Þórðardóttir og Aldís Inga Richardsdóttir.
Auður Linda Sonjudóttir varð bikarmeistari í -52 kg flokki á Akur-
eyri á dögunum. Hún setti 8 Íslandsmet og lyfti 110 kg í hnébeygju,
55 kg í bekkpressu og 110 kg í réttstöðulyftu, samanlagt 275 kg.
Auður er einng Íslandsmeistari unglinga 2015 og er Kraftlyft-
ingakona Mosfellsbæjar 2015.
Andri Þór Goethe varð einnig Íslandsmeistari unglinga 2015 í
- 93 kg flokki, hann lyfti 472,5 kg í samanlögðu. Andri er Kraftlyft-
ingakarl Mosfellsbæjar 2015.
Gamlársdagsmót var haldið á vegum Kraftlyftingafélags Mos-
fellsbæjar. Var bæði keppt í ólympískum lyftingum og kraftlyft-
ingum. Guðni Þór Guðnason tók 290 kg í réttstöðulyftu og Kjartan
Elvar Baldvinson lyfti 110 kg í jafnhendingu. Mótið tókst vel í alla
staði og miklar bætingar í gangi.
Fastir tímar í lyftingum verða kl 18:00 í lyftingaaðstöðunni að
Varmá í vetur.
Kraftlyftingar og
ólympískar lyftingar
í mikilli uppsveiflu
Guðni Þór lyfti 290 kG
í réttstöðulyftu
einar Marteinsson
framlengir samning
Kletturinn og hjarta varnarinnar
síðustu sumur, Einar Marteinsson,
hefur framlengt samning sinn við
knattspyrnudeild Aftureldingar.
Einar sem er á 27. aldursári og á
sínu fjórða tímabili með Mosfell-
ingum, er gríðarlega sterkur og
útsjónarsamur varnarmaður. Hann
er uppalinn í Val og var það hvalreki
að fá hann til liðs við Aftureldingu.
Stærsti hluti leikmannahópsin er nú
þegar búinn að spila saman lengi
og er að finna gríðarlegan metnað
í hópnum að gera vel á komandi
leiktímabili.
Knattspyrnudeild Aftureldingar
hefur framlengt samninga við 11
leikmenn félagsins sem munu
leika með meistaraflokki kvenna í
1. deildinni í sumar.
Þetta eru þær Eva Rún Þor-
steinsdóttir, Eydís Embla Lúðvíks-
dóttir, Gunnhildur Ómarsdóttir,
Hrefna Guðrún Pétursdóttir, Krist-
ín Þóra Birgisdóttir, Lovísa Mjöll
Guðmundsdóttir, Sif Elíasdóttir,
Stefanía Valdimarsdóttir, Svandís
Ösp Long, Tinna Björk Birgisdóttir
og Valdís Björg Friðriksdóttir.
Þá gerir hin stórefnilega Sif
Elíasdóttir sinn fyrsta samning við
félagið en Sif er 16 ára gömul og er
nýgengin upp í 2. flokk. Sif hefur
staðið sig frábærlega fyrir yngri flokka félagsins í fótbolta en hún er einnig afar fram-
bærileg handboltakona og hefur m.a. verið valin í U18 ára landslið Íslands.
Að lokum hafa tvær af okkar allra efnilegustu leikmönnum framlengt samninga sína
við félagið en þetta eru þær Eydís Embla Lúðvíksdóttir og Valdís Björg Friðriksdóttir.
Félagaskipti við sex leikmenn
Gengið hefur verið fré félagaskiptum við sex leikmenn sem munu leika með Aftureld-
ingu næsta sumar. Þær Jóhanna Svava Gunnarsdóttir, Snjólaug Heimisdóttir, Valdís Ósk
Sigurðardóttir og Tinna Dofradóttir hafa allar gengið til liðs við félagið. Jóhanna kemur
frá ÍBV, Snjólaug frá Hömrunum, Valdís frá Sindra og Tinna frá Breiðablik.
Þá hafa systurnar Halldóra Þóra og Sigríður Þóra Birgisdætur einnig gengið frá félaga-
skiptum sínum til Aftureldingar. Halldóra Þóra lék með Hvíta Riddaranum í sumar eftir
dvöl í Noregi. Sigríður Þóra er leikja- og markahæsti leikmaður Aftureldingar frá upphafi
en hún lék með Íslandsmeisturum Stjörnunnar á síðasta tímabili.
Knattspyrnustelpurnar mæta tvíefldar til leiks í 1. deildinni
Samið við leikmenn
fyrir átökin í sumar
hluti stúlknanna sem
framlenGt hafa samninGa