Mosfellingur - 07.01.2016, Síða 24
ARTPRO PRENTÞJÓNUSTA • HÁHOLTI 14 • MOSFELLSBÆ
566 7765 • artpro@artpro.is • www.artpro.is
VIÐ PRENTUM FYRIR ÞIG
Gleðilegt nýtt ár
+ÞÖKKUM FYRIR VIÐSKIPTIN Á LIÐNUM ÁRUM
- Gaui og völvan24
Borða, sofa, æfa
Grunnurinn er mikilvægastur. Í öllu sem við gerum. Ef grunn-
urinn er ekki sterkur, getur það
sem á honum er byggt aldrei verið
sterkt. Hús er skýrt dæmi. Heilsa er
nákvæmlega eins. Þú þarft að byggja
sterkan heilsugrunn til að vera full-
komlega heilsuhraust/ur.
Heilsugrunnurinn byggir á þrem-ur meginstólpum: næringu,
svefni og hreyfingu. Ef þú vanræk-
ir einhvern af þessum stólpum, er
heilsugrunnur þinn ekki sterkur. Svo
einfalt er það. Það skiptir ekki máli
þótt þú mætir á æfingu fimm sinnum
í viku, ef mataræðið eða svefninn
er ekki í lagi vantar sterka stólpa í
grunninn. Sama gildir ef þú sefur
í átta tíma á hverri nóttu en sinnir
ekki líkamanum. Allir stólparnir eru
mikilvægir og við þurfum að sinna
öllum vel.
Þetta er alls ekki flókið, í raun sáraeinfalt. Málið er bara að
við erum svo ótrúlega góð í að búa
okkur til afsakanir og selja sjálfum
okkur þá vondu hugmynd að við
þurfum að leyfa okkur allt, gera vel
við okkur, að allt sé gott í hófi. Afleið-
ingin af þannig hugsunarhætti er að
við vökum allt of lengi yfir einhverju
sem skiptir litlu máli, borðum allt of
mikið rusl og nennum ekki að hreyfa
okkur. Leiðin út úr þessu er sjálfsagi.
Aga sjálfan sig til að hætta að gera það sem fer illa með okkur.
Hætta að leyfa sér allt og falla fyrir
öllum freistingum. Horfa þess í stað
fram á veginn. Hugsa sex mánuði
fram í tímann. Setja sér einföld
markmið sem skila þér árangri, láta
þér líða miklu betur, líkamlega og
andlega. Gefa þér hámarksorku.
Prófaðu þetta: Sofa í 7-8 tíma á
sólarhring, borða mat en sleppa
ruslfæði, nammi og gosi,
labba úti á hverjum
degi og mæta þri-
svar sinnum í viku
í styrkjandi hreyf-
ingu. Hlustaðu á
líkamann, finndu
orkuna flæða og
njóttu þess að vera
heilsuhraust/ur.
Heilsumolar Gaua
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
Þverholti 2 • Mosfellsbæ
Fasteignasala
Mosfellsbæjar
Sími: 586 8080
www.fastmos.ishafðu samband E.BAC
K
M
A
N
Einar Páll Kjærnested • Löggiltur fasteignasali
Viltuselja...
E
.B
A
C
K
M
A
N
www.fastmos.is
Sími: 586 8080
Völvan sem blaðamaður Mosfellings
ræddi við fyrir ári síðan var ansi sann-
spá fyrir árið 2015. Margt sem hún taldi
upp hefur ræst, m.a. hefur veðrið á
bæjarhátíðinni sjaldan verið betra og
fyrstu umferðarljósin í Mosfellsbæ voru
tekin í notkun.
Völvan hefur eitt og annað að segja um
árið 2016 en tekur það fram að allar
völvuspár einkennist bæði af því góða og
því slæma, og að hver og einn túlki það
eins og hann vilji. Hún segir jafnframt
að spáin sé til gamans gerð þó að heil-
mikið sé að marka hana.
Völvan segir að eina mestu skilnaðar-
öldu sem riðið hefur yfir í Mosó lægi
með vorinu.
Þorrablót Aftureldingar mun fara vel
fram og margir brottfluttir Mosfell-
ingar munu mæta á blótið í ár.
Völvan sér að það verður stórbruni í
Mosó á árinu, slökkvistöðin sannar
gildi sitt.
Nýtt hótel mun rísa, völvan sér
mögulega staðsetningu fyrir neðan
Krikahverfið og mun ferðamannastraum-
ur aukast í Mosfellsbæ í kjölfarið.
Völvan telur að friður mun ríkja í
bæjarpólitíkinni. Ákveðin sátt mun
ríkja yfir bænum með nokkrum undan-
tekningum þó.
Þekktur Mosfellingur mun láta af
störfum á sínum vettvangi á árinu
og mun í kjölfarið verða mikið milli
tannanna á fólki.
Prestadeilunni er ekki lokið, og mun
hún draga dilk á eftir sér, en allt mun
þó blessast að lokum.
Rithöfundur sem tengist bæjarfélag-
inu verður á árinu tilnefndur til virtra
verðlauna á heimsvísu.
Völvan sér að stór lottóvinningur
kemur á miða í Mosó.
Salmonella gerir vart við sig í
kjúklingabænum, þó vonandi ekki í
tengslum við bæjarhátíðina.
Arion banki mun loka útibúi sínu og
yrði því bankalaust í Mosó.
Nýtt sjórnmálaafl mun halda
stofnfund í Mosfellbæ og mun það fá
góðar undirtektir.
Völvan skynjar mikinn öldugang við
golfvöll Mosfellsbæjar.
Keppandi verður staðin að svindli í
7 tinda hlaupinu, úr því verður
mikið blaðamál.
Bæjarhátíðin verður með stærra
sniði þetta árið og mun vekja
athygli á landsvísu þá sérstaklega
fyrir samstöðu bæjarbúa.
Völvan sér mikið líf í kringum
Brúarland á nýju ári, mikil
ánægja mun ríkja með ráðstöfun
þessa sögufræga hús.
Íbúatala í
Mosfellsbæ
mun fara yfir
10.000 þúsund við
mikinn fögnuð.
Stórt hneykslismál skekur netheim-
ana og munu þekktir Mosfellingar
dragast inn í það mál með óvægnum
hætti.
Völvan sér stórt brúðkaup haldið
á sólríkum degi í Hlégarði.
Breytingar verða í skólamálum í
Mosfellsbæ, völvan sér óvænt útspil.
Völvan skynjar góða strauma í
kringum EM og finnst eins og
Mosfellingar verði áberandi á meðal
íslensku stuðningsmannanna.
Mætur Mosfellingur fellur frá. Völvan
skynjar að mikil sorg muni ríkja yfir
bænum.
Völvan sér mikið líf í Mosfellsdal í
tengslum við ferðaþjónustu og sögu
lands og þjóðar.
Mosfellingar kætast á árinu þegar
þekktur hollustustaður hefur
starfsemi sína í bænum.
Skemmtanalíf mun
blómstra, bæjarbúar
verða duglegir að sækja þá
viðburði sem í boði eru.
Sorpfnykurinn sem
angrað hefur
bæjarbúa er á undanhaldi
og telur völvan sig jafnvel
hafa fundið síðasta
fnykinn.
VölVa Mosfellings 2016
völvan hefur verið
endurráðin eftir góða
frammistöðu í fyrra
M
yn
d/
Ra
gg
iÓ
la