Mosfellingur - 09.01.2014, Síða 4
www.lagafellskirkja.is
Sunnudagur 12. janúar
Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11:00
Prestur: Sr. Ragnheiður Jónsdóttir
Batamessa í Lágafellskirkju kl. 17:00
Prestur: Sr. Ragnheiður Jónsdóttir
Sunnudagur 19. janúar
Kvöldguðsþjónusta - Taize
í Lágafellskirkju kl. 20:00
Prestur: Sr. Skírnir Garðarsson
Sunnudagur 26. janúar
Guðþjónusta í Mosfellskirkju kl. 11:00
Prestur: Sr. Ragnheiður Jónsdóttir
SunnudagaSkólinn
er í lágafellSkirkju
kl. 13:00
kirkjustarfið
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ64
HelgiHald næStu vikna
Stormsveitin heldur
tónleika á laugardag
Stormsveitin heldur sína árlegu
þrettándatónleika í Salnum í
Kópavogi laugardaginn 11. janúar.
Miðasala er hafin á midi.is og www.
salurinn.is. Stormsveitin er 20
manna rokkaður
karlakór ásamt
fimm manna
hljómsveit.
Gestasöngvarar
á tónleikunum
verða þeir Birgir
Haraldsson úr
Gildrunni og
Eyþór Ingi
Eurovisionfari.
Efnisskráin
spannar allt frá
Brennið þið vitar
Páls Ísólfssonar
til Metallica og
allt þar á milli.
Stormsveitin
hefur verið starfrækt í rúm tvö ár
og vakið verðskuldaða athygli fyrir
vasklega framgöngu. Á þessu ári
hefur Stormsveitin komið fram á
árlegri þrettándagleði Mosfellinga
auk þess sem fjallað var um rokk-
arana í Landanum á Rúv síðasta
sunnudagskvöld.
Helgi björns
laugardagskvöldið 25. janúar 2014
Rafræn kosning um
íþróttakarl og konu
Búið er að útnefna 12 einstaklinga
til íþróttakarls og konu Mosfellsbæj-
ar 2013. Fjórir karlar eru tilnefndir
og átta konur. Íþróttafólkið er
kynnt betur til sögunnar í miðopnu
blaðsins.
Bæjarbúum gefst kostur á, ásamt
aðal- og varamönnum í Íþrótta-
og tómstundanefnd, að kjósa um
tilnefningarnar. Kosningin fer
fram á vef Mosfellbæjar www.mos.
is dagana 9.-19. janúar. Velja skal
einn karl og eina konu. Úrslit verða
kynnt fimmtudaginn 23. janúar kl.
19 í íþróttamiðstöðinni að Varmá.
Þangað eru allir velkomnir. Á mynd-
inni hér að ofan má sjá íþróttamenn
Mosfellsbæjar 2012, þau Láru
Kristínu og Wentzel Steinarr.
Kirkjukór Lágafellssóknar hélt hina
árlegu styrktartónleika sína „Jólaljós“ í
Guðríðarkirkju þann 24. nóvember 2013.
Að þessu sinni voru þeir til styrktar þeim
Eyþóri Má Bjarnasyni og Katrínu Björk
Baldvinsdóttur og fjórum börnum þeirra.
Þau hjón hafa mátt ganga í gegn um mikla
erfiðleika vegna alvarlegs mótorhjólaslyss
sem Eyþór lenti í og á sama tíma var
Katrín að berjast við krabbamein.
Þau hjón hafa barist af hörku með
jákvæðni að leiðarljósi. Í dag horfa þau
fram á veginn full af bjartsýni og allt
virðist ætla að ganga upp hjá þessum
yndislegu hjónum.
Innkoman af tónleikunum var 600.000
kr. og afhenti kirkjukórinn þeim þessa
peninga nú í byrjun árs. Kirkjukórinn
óskar fjölskyldunni blessunar guðs og von
um að þeim vegni vel í framtíðinni.
Styrkurinn afhentur. Frá vinstri Eyþór Már Bjarnason, Valgerður Magnúsdóttir formaður kirkjukórsins,
Jón Þ. Jónsson fyrrverandi gjaldkeri kórsins og Katrín Björk Baldvinsdóttir.
Kirkjukór Lágafellssóknar
afhendir ágóðann af ár-
legum styrktartónleikum
færa eyþóri og katrínu styrk
Sókn í Sókn
– lifandi SaMfÉlag
Vertu með í sókninni!
M
yn
di
r/
Ra
gg
iÓ
la
Leikfélag Mosfellssveitar sýndi nýtt
barnaleikrit fyrir jólin. Leikritið Jólin
hennar ömmu er eftir Agnesi Wild
sem má segja að sé búin að alast
upp í Bæjarleikhúsinu. Leikstjóri
sýningarinnar var Jóel Sæmundsson
en sýnt var á sunnudögum fyrir jól.
Á meðfylgjandi myndum má sjá
hressa leikara og gesti sem skemmtu
sér konunglega.
Vel heppnuð sýning
í Bæjarleikhúsinu
félagar úr leikfélagi
Mosfellssveitar