Mosfellingur - 09.01.2014, Side 10
Kolbrún stefnir á
3. sætið í prófkjöri
Kolbrún G. Þorsteinsdóttir
bæjarfulltrúi og formaður fjöl-
skyldunefndar gefur kost á sér í 3.
sæti í prófkjöri
Sjálfstæðis-
flokksins þann 8.
febrúar. Kolbrún
er kennari og
lýðheilsufræð-
ingur að mennt
og er nemi í
viðskiptafræði við
Háskólann á Bifröst. Eiginmaður
Kolbrúnar er Sigurður Andrésson
byggingameistari og eiga þau þrjá
syni og eitt barnabarn.
- Fréttir úr Mosfellsbæ10
Haraldur bæjarstjóri
gefur kost á sér áfram
Haraldur Sverrisson hefur ákveðið
að gefa kost á sér í prófkjöri sjálf-
stæðismanna. Hann býður sig fram
í 1. sæti listans. Haraldur hefur
verið bæjarstjóri síðan haustið
2007 og leiddi
lista sjálfstæðis-
manna í síðustu
bæjarstjórnar-
kosningum þar
sem sjálfstæð-
ismenn fengu 4
bæjarfulltrúa af
7 í bæjarstjórn.
Haraldur er viðskiptafræðingur að
mennt og stundaði framhaldsnám
í fjármálum í Bandaríkjunum.
Áður en hann varð bæjarstjóri í
Mosfellsbæ var hann skrifstofustjóri
í fjármálaráðuneytinu. „Ég er
þakklátur fyrir að hafa fengið að
starfa með Mosfellingum sem bæj-
arstjóri þessi ár. Þetta hefur verið
skemmtilegur og lærdómsríkur tími
á miklu erfiðleikatímabili íslensku
þjóðarinnar. Það hefur gengið vel
í Mosfellsbæ, bæjarfélagið stendur
vel og bjartir tímar framundan. Ég
er fullur áhuga á að halda þessu
starfi áfram og óska eftir stuðningi
Mosfellinga til þess,“ segir Haraldur
Sverrisson í tilkynningu.
Fjalar Freyr í prófkjör
Sjálfstæðisflokksins
Fjalar Freyr Einarsson grunnskóla-
kennari hefur ákveðið að gefa kost
á sér í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins sem
fer fram í febrúar.
Fjalar Freyr hefur
setið í ýmsum
nefndum og
gegnt trúnaðar-
störfum á vegum
Félags grunn-
skólakennara,
Gídeonfélagsins, Ungmennafélags
Akureyrar o.fl. Hann er nú fulltrúi
kennara í Fræðslunefnd Mos-
fellbæjar. Fjalar leggur áherslu
á menntamál, umhverfismál og
kristna arfleifð íslenskrar menn-
ingar. Fjalar og kona hans Dögg
Harðardóttir eiga saman drengina
Einar Aron og Jóel.
Hafsteinn í prófkjör
Hafsteinn Pálsson hefur ákveðið
að gefa kost á sér í 2.-3. sæti. í
prófkjöri Sjálfstæðismanna. Hann
er bæjarfulltrúi og hefur jafnframt
verið í bæjarráði
og fræðslunefnd.
Á kjörtímabilinu
hefur hann meðal
annars verið for-
seti bæjarstjórnar,
formaður bæjar-
ráðs og formaður
fræðslunefndar.
Þá kom hann inn í stjórn Sorpu fyrir
ári síðan sem fulltrúi Mosfellsbæjar.
Hafsteinn er verkfræðingur að
mennt og starfar í umhverfis- og
auðlindaráðuneytinu þar sem
hann hefur m.a. umsjón með
verkefnum Ofanflóðasjóðs. Hann er
kvæntur Láru Torfadóttur kennara
í Lágafellsskóla og þeirra börn eru
Guðrún Erna grunnskólakennari
og íþróttafræðingur, Jóhanna Rut
hjúkrunarfræðingur og Snævar Ingi
háskólanemi.
Vefsíða Mosfellsbæjar
fær andlitslyftingu
Undanfarna mánuði hefur verið
unnið að endurbótum á heimasíðu
Mosfellbæjar. Ný síða fer í loftið
þann 15. janúar. Talsverðar breyt-
ingar eru á útliti sem eru fyrst og
fremst gerðar til að einfalda aðgengi
íbúa að upplýsingum. Við hönnun
síðunnar hefur verið tekið tillit til
snjallsíma og spjaldtölva. Á heima-
síðunni á að vera hægt að nálgast
upplýsingar um alla þjónustuþætti
sveitarfélagsins. Það gefur því auga
leið að efni hennar spannar vítt svið
og verkefni sem þetta er tímfrekt og
vandasamt. Forsvarsmenn Mosfells-
bæjar vilja koma þeim skilaboðum
áleiðis til íbúa að allar ábendingar
varðandi efni síðunnar eru vel
þegnar. Hægt er að koma þeim
til skila í gegnum valmöguleika á
síðunni sjálfri en einnig með því að
senda tölvupóst á mos@mos.is eða
símleiðis til þjónustuvers.
Laugardaginn 25. janúar fer hið árlega
Þorrablót Aftureldingar fram í íþróttahús-
inu að Varmá. Að þessu sinnu munu tenór-
arnir Davíð og Stefán sjá um veislustjórn og
hljómsveitin Made in sveitin með Hreimi
í fararbroddi leikur fyrir dansi. Auk þeirra
munu þeir Helgi Björns og Pálmi Gunnars-
son mæta á svæðið.
„Það eru margir hópar farnir að hóa sig
saman og það er greinilega góð stemning
fyrir blótinu en allur ágóði rennur til barna-
og unglingastarfs Aftureldingar. Við hvetj-
um sérstaklega foreldra barna úr félaginu
að koma og eiga góða kvöldstund saman.
Davíð og Stefán eru með flott prógramm,
Helgi Björns mætir og stuðið stigmagnast
með kvöldinu.
Að þessu sinni mun Geiri í Kjötbúðinni
sjá um matinn og í fyrsta sinn verður boðið
upp á lambalæri og bearnaise fyrir þá sem
ekki þora í þorrann,“ segir Rúnar Bragi Guð-
laugsson forseti þorrablótsnefndarinnar.
Hefð hjá vinahópum og fyrirtækjum
„Að mæta á blótið er orðin hefð hjá
mörgum Mosfellingum og æ fleiri götur
taka sig saman og mæta, götugrillsstemn-
inginn sem myndast í Túninu heima er að
skila sér á þorrablótið.
Miðasalan að þessu sinni verður á netinu
á www.afturelding.is en einnig verður hægt
að nálgast miða á skrifstofu Aftureldingar
að Varmá alla virka daga kl. 13-16.
Borðapantanir fara svo fram að Varmá
sunnudaginn 19. janúar kl. 17-19. Borða-
skreytingarnar eru orðnar fastur liður og í
fyrra var veittur bæði farand- og eignabikar.
Stelpurnar á Aristó eru núverandi handhaf-
ar bikarsins og það verður spennandi að sjá
upp á hverju þær taka þetta árið. Gaman
hefur verið að sjá hvað margir hópar setja
mikinn metnað í skreytingar og setur það
enn skemmtilegri svip á blótið.
Hópum gefst tækifæri á að koma og
skreyta borðin sín kl. 12-13 á blótsdegi,“
segir Rúnar Bragi að lokum og skorar á
alla Mosfellinga að mæta og sérstaklega á
fótbolta- og pókerklúbbinn All-in.
Hægt er að fylgjast með gangi mála á
Facebooksíðu þorrablótsins.
ELDING Líkamsrækt I Íþróttamiðstöðinni að Varmá I Sími: 566 7733 I Erum á Facebook
FRÁBÆR TÆKJASALUR - GÓÐUR ANDI
Þökkum Mosfellingum 6 ára frábært samstarf
Kickbox - Muay Thai box
Mánundaga og miðvikudaga kl. 16:30
Kennari: Jimmy Routley
Kínversk leikfimi Qi Gong
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 9:00
Heimsþekktir leiðbeinedur
ELDING LÍKAMSRÆKT 2014
FJÁRFESTU Í HEILSU - ÞÚ ÁTT ÞAÐ SKILIÐ
Krakkar - Munið frístundaávísunina
Þjálfun eftir fæðingu og skvísupúl
Ný 6 vikna námskeið að hefjast 14. Janúar
Skvísupúl: þriðjudaga og fimmtudaga kl 20:15-21:15
Fjölbreytt líkamsrækt ætlað konum á öllum aldri.
Mömmutímar: þriðjudaga og fimmtudaga kl 11:30-12:30
Kennt í Eldingu líkamsrækt, Varmá
Kennari námskeiða er Dagmar Heiða Reynisdóttir,
hjúkrunarfræðingur, einkaþjálfari og þolfimileiðbeinandi
Skráningar og fyrirspurnir í síma: 661-8020
eða dagmar@fullfrisk.com
www.fullfrisk.com
Þorrablót Aftureldingar fer fram laugardaginn 25. janúar
„Hlökkum til að sjá
Mosfellinga í stuði“
rúnar og ásgeir fara fyrir
þorrablótsnefndinni í ár
stemning á
þorrablóti
borðin skreytt
MOSfellingur
...fylgstu med okkur á facebook