Mosfellingur - 09.01.2014, Side 17
Útnefning á íþróttakarli og íþróttakonu
Mosfellsbæjar 2013
Kynning á íþróttafólKinu sem tilnefnt er Kosning fer fram á www.mos.is Úrslit verða tilKynnt 23. janÚar
skautaíþróttakona
ársins 2013
Þuríður Björg Björgvinsdóttir er 16 ára
Mosfellingur og æfir hjá Skautafélaginu
Birninum (Listskautadeild).
Þuríður Björg var í landsliði Íslands
2013 og keppti fyrir hönd Íslands á
Norðurlandamóti sem fór fram á Íslandi
helgina 31. jan – 3. feb. 2013 í Egilshöll.
Í upphafi keppnistímabils haustið 2013
hækkaði Þuríður upp um keppnisflokk
og byrjaði vel þar með því að koma sér
í sæti.
Keppnisflokkur hennar er Advanced
Novice sem er alþjóðalegur keppn-
isflokkur og gefinn út af Alþjóðlega
Skautasambandinu (ISU).
Þuríður hefur sýnt og sannað sig sem
afreksefni til nokkurra ára og hefur
skipað efstu sæti á mótum Skautasam-
band Íslands (ÍSS) frá því að hún hóf að keppa á skautum 8 ára gömul.
þuríður Björg Björgvinsdóttir skautaíþróttakona
sundkona
íþróttafélagsins aspar
Karen Axelsdóttir er fædd 5. júlí 1992.
Hennar fötlun er CP, sem er algengasta
tegund hreyfihömlunar, og keppir
hún í sundi í flokki S2. Flokkar í sundi
hreyfihamlaðra eru frá S1- S10.
Karen æfir sund hjá íþróttafélaginu Ösp
tvisvar í viku í Lágafellslaug og einu
sinni í viku í sundlauginni í Laugardal.
Undanfarin ár hefur Karen verið í
stöðugri framför og í dag stefnir hún
á að ná lágmörkum til æfinga með
landsliðshóp Íþróttasambands fatlaðra.
Karen er mjög metnaðarfull og er tilbú-
in að leggja mikið á sig til að ná árangri
í sinni íþrótt. Hún er góður félagi og
öðru ungu sundfólki góð fyrirmynd.
Helsti árangur Karenar á árinu 2013
í flokki S2: í 25m braut, Íslandsmet
S2 50m baksund, Íslandsmet S2 50m
frjáls aðferð, Íslandsmet S2 100m frjáls
aðferð. Helsti árangur Karenar á árinu
2013 í flokki S2: í 50m braut, Íslandsmet S2 50m baksund, Íslandsmet S2 50m
baksund.
Karen axelsdóttir sundkona
Skotfimikona
ársins 2013
Íris Eva Einarsdóttir er fædd 1990 og
hefur búið frá 10 ára aldri í Mosfells-
bæ. Hún æfir skotfimi á loftriffil hjá
Skotfélagi Reykjavíkur og hefur stundað
íþróttina af fullum krafti í um 3 ár.
Íris Eva hefur náð Íslandsmeistaratitli
árin 2011 og 2013 og einnig sett nokkur
Íslandsmet, nú síðast 7. desember
2013.
Íris keppti á Smáþjóðleikunum sem
haldnir voru í Lúxemborg í maí 2013 og
sló þar Íslandsmet og hafnaði í 5. sæti
eftir að hafa komist í úrslit. Íris er yngsti
keppandinn í landsliðinu í skotfimi og
stundar reglulegar æfingar með því.
Á döfinni er keppnisferð á InterShoot
sem haldin er í Hollandi í febrúar
næstkomandi.
íris eva einarsdóttir skotfimikona
Dansíþróttakona ársins 2013
Marta er fædd 18. janúar 1999. Hún
hefur æft dans frá 7 ára aldri og er í
dag meðal fremstu samkvæmisdansara
landsins. Hún og herrann hennar Eyþór
Andrason hafa lagt mikinn metnað í
dansinn, æft bæði hér heima sem og
tekið tíma hjá kennurum erlendis. Hún
hefur undanfarin tvö ár verið valin í
A – landslið og er yngsti meðlimur
landsliðsins. Marta hefur keppt þó
nokkuð erlendis m.a. á Englandi og á
Norðurlöndunum. Á síðasta ári vann
hún sér rétt til að keppa á tveimur
heimsmeistarmótum, annars vegar
keppni í latindönsum á Ítalíu í febrúar
og svo heimsmeistaramót í ballroom
dönsum sem fór fram í Moskvu nú í
október. Þar stóðu þau sig með sóma.
Auk þess að æfa 6 daga vikunnar er hún
farin að kenna yngri börnum og er hún
þeim mikil fyrirmynd.
Árangur Mörtu 2013: 1. sæti (Íslands-
meistari) Íslandsmeistarmót DSI, 2. sæti bikarmót DSI, 2. sæti Norway Internation-
al, 7. sæti opið mót Kaupmannahöfn,13. sæti opið mót 16-18 ára Kaupmannhöfn.
marta Carrasco dansari
Hér fyrir neðan er kynning á íþróttakonum sem tilnefndar
eru vegna kjörs til íþróttakonu mosfellsbæjar 2013,
og afrekum þeirra á árinu.