Mosfellingur - 07.04.2006, Qupperneq 11
Ég leit til Þórarins eða Tóta, eins
og hann er kallaður, á Grillið rétt
fyrir keppni til að sjá hvernig undir-
búningur gengi og að bragða á því
sem að hann ætlaði að bjóða upp á í
keppninni. Fyrsti rétturinn var humar-
fylltur hvítlax og saltfi sk terrine með
kremaðri skelfi sksósu, einstaklega
bragðgóður réttur sem fékk mann til
að kikna í hnjánum. Eftir þessa rosa-
legu lendingu kom að aðalréttinum
sem var íslenska lambið ásamt dönsk-
um héra borið fram með ætiþistla
kartöfl um, mórillum og madeira
sósu. Algerlega ógleymanlegt. Til að
enda þessa fullkomnu máltíð kom
skyrkaka og skyrsorbet með heitu
multuberjasouffl é sem var eins og
fl ugeldasýning fyrir bragðlaukana
einstaklega vel heppnuð blanda.
Þessi máltíð verður seint topp uð.
Ég tók stutt spjall við Tóta
eftir æfi nguna til að sjá
hvernig landið lægi hjá
kapanum og hvernig
hann væri stemmdur.
Hver er svo
þessi Tóti ?
Ég er 26 ára
matreiðslumaður
fæddur og uppal-
inn í Mosó, fór að
læra kokk inn á Hót-
el Sögu, útskrif aðist þaðan árið 2000
og starfaði þar í eitt ár eftir það. Fór
síðan til Brussel í Belgíu á stað sem
heitir Seagrill og vann þar í tvö ár, en
er kominn aftur á Grillið í dag.
Hver er uppáhalds
maturinn þinn ?
Maturinn henar mömmu,
engin spurning
Ertu búinn að æfa mikið?
Já, mest allur frítími hefur farið í þetta
síðastliðna tvo mánuði,
svo fór líka rosalega
mikill tími í alla
hugmynda vinnu og
uppsetningar.
Úr hvaða hrá-
efni fi nnst þér
skemmtilegast að
elda?
Það mun vera
fi skur, það reynir
mest á mann að
elda góðan fi sk.
Hvað fékk
þig til að
fara að
læra kok-
kinn?
Það eru klár-
lega heim ilisfræðitímarnir hjá Möllu
sem er minn helsti áhrifavaldur í dag.
Hún kenndi mér allt sem ég kann.
Ertu hlynt ur núverandi
bæjarstjórn?
Jú jú, því ekki? Ragga Rikk er mín
kona, blátt áfram...
Ef þú fengir tækifæri til að
vera einhver annar en þú
ert í einn dag hver yrði þá
fyrir valinu?
Það mun klárlega vera hann Svanni á
Pizzabæ, þá fengi maður tækifæri til
að elda góðan mat alla daga.
Hvað er það fyrsta sem
þér dettur í hug þegar þú
hugsar um Mosó ?
Það er Ísmynd og svo nátturlega gamli
góði Kjuðinn.
Ertu kominn með einhver
framtíðarplön?
Bara að klára þessa keppni, svo er
ég að fara að vinna á Hótel Borg sem
yfi rmatreiðslumaður. Á nýjum veit -
ing astað sem opnar þar von
bráðar...
11Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar - Mosfellingur
MOSFELLINGUR
Maggi 270
með puttana í
pottunum