Mosfellingur - 19.05.2006, Síða 4
Mosfellingur - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar4
Í síðasta tölublaði Mos-
fellsfrétta er í nafnlausri
grein veist að æru okkar hús-
eiganda og leigusamnings-
hafa á jörðunum kringum
Hulduhóla – Hamrafelli og
Láguhlíð og látið að því liggja
að við séum þiggjendur póli-
tískrar fyrirgreiðslu og íviln-
unar af hálfu bæjarstjórnar
Sjálfstæðisflokksins í Mos-
fellsbæ í sambandi við skipulagningu
lóða á svæðinu. Ástæðan er sjálfsagt
sú að reyna að koma höggi á formann
bæjarráðs - Harald Sverrisson, son
minn, sem býr á svæðinu og gera störf
hans fyrir bæjarfélagið tortryggileg
svona rétt fyrir kosningar.
Þar sem ýmislegt er missagt í
grein þessari verð ég að gera við hana
nokkrar athugasemdir:
Jarðir þessar voru allar bújarðir
með ábúðarréttindum fram að ní-
unda áratug síðustu aldar og náðu all-
ar niður í fjöru. Hulduhólana keypti
ég ásamt manni mínum árið 1969 og
náði landið yfir það svæði þar sem nú
er Hulduhlíð, Lágafellsskóli, Höfða-
hverfið og niður í fjöru fyrir neðan
golfskálann, og ræktaði ég á fyrstu
búskaparárum mínum í Mosfells-
sveitinni kartöflur á melnum þar sem
golfskálinn stendur núna.
Á níunda áratugnum voru fyrir-
hugaðar byggingaframkvæmdir á
jörðum okkar og bæjarfélagið gerði
við okkur nýjan samning þar sem
við afsölum okkur stærstum hluta
jarðanna en höldum hvert
fyrir sig 3 – 4 hektörum
í kringum hús okkar á
lóðarleigusamningum til
75 ára. Í milligreiðslu feng-
um við byggingarrétt á
einu húsi á svæðinu og tvær
skipulagðar lóðir sem við
gátum selt – en á þeim árum
fékkst ekkert sambærilegt
verð fyrir lóðir á þessu
svæði og nú fæst, svo að ætla mætti
að bæjarfélagið hafi gert mjög hag-
stæðan samning við okkur fyrir sína
hönd. (Í áðurnefndri grein er einmitt
hnýtt í bæjarstjórn Sjálfstæðisflokks-
ins fyrir lélegan samning.) Samningar
við aðra landeigendur á svæðinu voru
á svipuðum nótum.
Síðan stendur orðrétt í áðurnefndri
nafnlausri grein:
Núverandi meirihluti sjálfstæðis-
manna í Mosfellsbæ samdi síðan við
leiguhafa í vetur um að þeir mættu
skipuleggja lóðir á landinu og selja.
Sannleikurinn er sá að ákvörðunin
um þéttingu byggðar á fyrrnefndum
jörðum var tekin í tíð vinstri stjórnar
í Mosfellsbæ þar sem framsóknar-
menn voru í forystu byggingarnefndar.
Endanlegt deiliskipulag var síðar unnið
á vegum Mosfellsbæjar og skipting lóða
á svæðið og staðsetning gerð með sam-
komulagi lóðarleiguhafa og bæjarins.
Sjálfsagt má velta fyrir sé þeirri
spurningu hvort eignarréttur eða
annar réttur til lands sé siðlegur en í
reglum þjóðfélags okkar er hann virt-
ur eins og við vitum.
Réttur okkar leigusamningshafa
til lands okkar er ekki ósvipaður rétti
eiganda eignarlóða til landsins og er
því út í hött hjá Mosfellsfréttum að
hneykslast á því þótt sum okkar hafi
selt lóða- og byggingarréttinn til aðila
sem vilja borga fyrir hann.
Ef Mosfellsbær hefði viljað leysa
þessar jarðir til sín með eignarnámi
er óvíst að það hefði orðið fjárhags-
lega hagstæðara fyrir bæinn en það er
með þessu fyrirkomulagi.
Svo vil ég minna aðstandendur
Mosfellsfrétta á það að þótt það finn-
ist einn yfirlýstur sjálfstæðismaður
á svæðinu Lágahlíð – Hulduhólar
- Hamrafell, og bæjarstjórinn búi í
landi Leirvogstungu, eru stærðarinnar
svæði í uppbyggingu í Mosfellsbæ og
jarðir hafa verið seldar dýrum dóm-
um þar sem meðal eigenda finnst
varla nokkur sjálfstæðismaður en því
fleiri framsóknarmenn hafa verið þar
á rölti gegnum tíðina. En slíkt er víst
ekki hneykslunarefni Mosfellsfrétta.
Skítapólitík er ekki fallegt orð en
svona ærumeiðandi grein eins og
þessari nafnlausu í Mosfellsfréttum
get ég ekki gefið annað nafn – Pólitík
sem kemur óorði á stjórnmálin.
Að lokum ætla ég að leyfa mér að
vona að það séu eingöngu framsóknar-
menn sem muni sjá ofsjónum yfir því
að ég verði ekki bónbjargarmanneskja
í ellinni og geti stundað mína myndlist
meðan heilsan leyfir án þess að vera
eingöngu háð sölu verka.
Hulduhólum 5. maí 2006
Steinunn Marteinsdóttir
Skítapólitík í Mosfellsfréttum
Í dag eru tveir grunnskólar í Mos-
fellsbæ og augljóst er að þörf er á fleir-
um enda er fyrirsjáanleg mikil fjölgun
íbúa hér í bænum á næstu árum. Í
landi Helgafells mun rísa heilstæður
grunnskóli sem auk barna úr væntan-
legri byggð í Helgafellslandi á að geta
tekið við börnum úr Ása- og Landa-
hverfinu. Í landi Leirvogstungu er
áætlað að byggja skóladeild einungis
fyrir börn í 1-4. bekk, og skv. tillögu
Sjálfstæðismanna á einnig að byggja
álíka deild í hinu nýja Krikahverfi.
Áform eru síðan um skóla í landi Blika-
staða og á aðalskipulagi bæjarins er
gert ráð fyrir skóla í landi Sólvalla.
B-listinn í Mosfellsbæ telur æski-
legt að börn gangi í sama hverfisskóla
alla sína grunnskólatíð. Mikilvægi
þessa má ekki síst sjá í ljósi þeirra
þjóðfélagsaðstæðna sem við búum við
í dag en þær einkennast m.a. af mikl-
um hraða, áreyti og breytingum.
Sjálfstæðismenn telja að heppilegt
sé að hefja byggingu á skóla fyrir börn
í 1-4. bekk í Krikahverfinu og mun sá
skóli þjóna því hverfi, sem og að vera
valkostur fyrir börn úr öðrum hverf-
um. Að 4. bekk loknum eiga börnin
að færast úr skólanum í Krikahverfinu
yfir í yngri deild Varmárskóla, sem
yrði þá skóli barnanna næstu 2 árin.
Ekki nóg með það, að þessum tveimur
árum loknum eiga þau enn og aftur
að færast úr einum skólanum í annan
en þá fara þau í eldri deild Varmár-
skóla sem er í húsnæði aðskyldu frá
Varmárskóla yngri deild. Börnin hafa
því á grunnskólagöngu sinni verið 4
ár í Krikaskólanum, 2 ár í yngri deild
Varmárskóla og loks 4 ár í eldri deild
Varmárskóla, hafa semsagt skipt um
skólaumhverfi þrisvar sinum með öllu
því umróti sem því fylgir fyrir börnin
sjálf og foreldra þeirra. Þetta telur B-
listinn ekki heppilegt né heldur það
að foreldrar barna er búa t.d í Byggð-
unum þurfi að keyra framhjá skólan-
um í Krikahverfinu í annan skóla þ.e.
Varmárskóla. Þessi ráðstöfun eykur
einungis á óþarfa umferð foreldra
með börn í skóla, svo ekki sé minnst á
umrótið fyrir börnin sjálf.
Stefna B-listans í þessa ákveðna
máli er skýr. Við teljum að í stað þess að
byggja skóladeildir 1-4. bekkjar í Krika-
hverfi, eigi að hefjast nú þegar handa
við uppbyggingu skóla í áföngum í
landi Sólvalla eða Teiga. Skóli þessi
yrði heilstæður skóli sem taka myndi
við öllum börnum er búa í Krikahverfi,
Teigahverfi, auk íbúðasvæðinu austan
Reykjalundar og sunnan Varmár sem
og framtíðarbyggð í landi Sólvalla. Með
þessu móti væri verið að byggja heil-
stæðann hverfaskóla. Börninn þyrftu
þannig ekki að fara yfir Vesturlands-
veginn, þau myndu flest öll geta gengið
eða hjólað í þennan nýja skóla. Það
húsnæði sem mun losna í Varmárskóla
við þessa ráðstöfum væri t.d. hægt að
nýta sem skólasel, fyrir betra eldhús og
sem stofur fyrir tónlistarkennslu svo
ekki sé minnst á að einnig væri hægt að
fá enn betri aðstöðu fyrir 5 ára deildina
í Varmárskóla.
Grunnskólar bæjarins
- framtíðaráform
Helga
Jóhannesdóttir
Skipar 2. sæti B-
listans í komandi
sveitarstjórnar-
kosningum
Varmárskóli hlýtur
viðurkenningu
Jafnréttisviðurkenning
Mosfellsbæjar 2005 var veitt í
fyrsta skiptið og kom það í hlut
Varmárskóla að hljóta þessa
viðurkenningu. Hana hlýtur
skólinn fyrir metnaðarfulla
jafnréttisáætlun og framgang
hennar í skólastarfinu. Gjöfugt
og gott starf er unnið innan
veggja skólans og er hann
fullkomlega verðugur þessarar
viðurkenningar.
Latibær
heimsóttur
Nemendur í 9. bekk í
Lágafellsskóla fóru í heimsókn
í upptökuver Latabæjar nú á
dögunum. Upptökuverið þótti
afar spennandi og vel var tekið
á móti börnunum. Ferðin þótti
takast vel og voru börnin hug-
fangin af þessum áhugaverða
heimi Latabæjar. Aðstandendur
Latabæjar voru mjög hrifnir af
nemendunum sem eiga hrós
skilið fyrir góða framkomu.
Sumarhátíð
kirkjunnar
Sunnudaginn 7. maí var
haldin sumarhátíð barna- og
æskulýðsstarfs krikjunnar.
Farið var í leiki og pylsur voru
grillaðar við Lágafellskirkju.
Eftir leiki og grill var stutt
söng- og bænastund. Öflugt
starf kirkjunnar hefur verið í
vetur og þar á meðal er sunnu-
dagaskólinn sem hefur verið í
Lágafellskirkju í vetur. Hátíðin
markaði lok vetrar og hefst starf-
semin aftur í vetur.
FULLTRÚAR ALLRA FLOKKA SEM BJÓÐA FRAM TIL BÆJARSTJÓRNAR SITJA FYRIR SVÖRUM.
Sameiginlegur framboðsfundur í Hlégarði
Miðvikudaginn 24. maí kl. 20.00
Mosfellingar hvattir til að mæta!