Mosfellingur - 19.05.2006, Page 18
Mosfellingur - Bæjarmál og aðsendar greinar18
Varmársamtökin, samtök íbúa
ofanVesturlandsvegar, voru stofnuð
á fjölmennum fundi í Þrúðvangi í
Álafosskvos 8. maí. Samtökin hafa
að markmiði að efl a íbúalýðræði og
stuðla að samvinnu umframtíðarmót-
un Varmársvæðisins.
Á fundinum fl utti Ásta Þorleifs-
dóttir jarðfræðingur erindi um
íbúalýðræði og Tryggvi Þórðarson
vatnavistfræðingur ræddi um Varmá
og álag á fallvötn í þéttbýli. Einnig
voru kynntar hugmyndir um breyt-
ingar á aðalskipulagi í tengslum við
tengibrautir á svæðinu.
Innan skamms hefjast fram-
kvæmdir við ræturHelgafells þar sem
gert er ráð fyrir 3000 manna byggð.
Samkvæmt núgildandi aðalskipu-
lagi Mosfellsbæjar, - sem að hluta
til byggir á yfi r tuttugu ára gömlum
skipulagsviðhorfum, - verður lögð
tengibraut úr Helgafellslandi með-
fram Varm ánni ofan í Álafosskvos
að Vesturlandsvegi og þaðan undir
þjóðveginn inn í miðbæ Mosfells-
bæjar. Ennfremur er gert ráð fyrir að
umkringja byggðina meðfram fellun-
um norðanmegin Varmár með um-
ferðarmannvirkjum.
Þessar framkvæmdir munu hafa
mikil áhrif á umhverfi og líf íbúanna
í hverfunum í kringum Varmá og
aðgengi bæjarbúa að ánniog hinum
eftirsóttu útivistarsvæðum í og við
Skammadal, Reykjafell og Helgafell.
Upphafsmenn samtakanna vilja
stuðla að því að nútímaleg viðhorf
í umhverfi s- og skipulagsmálum
verði látin ráða ferðinni í ört vaxandi
bæj arfélagi og hvetjum við íbúa ein-
dregið til að kynna sér aðalskipulag
svæðisins og koma skoðunum sínum
á framfæri innan samtakanna.
Nánari upplýsingar:
berglindb@yahoo.com
Skokk-og gönguhópur - verið með í sumar :))
mánudaga og miðvikudaga kl. 17:30 -18:30
Upphitun, skokk/ganga, styrktaræfi ngar
og teygjur. Mánaðargjald 1.000 kr
Elías, Halla Karen og Sesselja
Hefst mánudaginn 22. maí
Skráning í síma 566 7888 eða í afgreiðslu Toppforms
Varmársamtökin stofnuð
Motomos er nýtt íþróttafélag í
Mosfellsbæ. Félagið er stofnað af
áhuga mönnum um motocross íþrótt-
ina og er með það fyrir sjónir að
berjast fyrir hagsmunum þeirra sem
þessa íþrótt stunda. Mikil gróska er
í motorcrossíþróttinni um þessar
mundir og eru Mosfellingar engir
eftirbátar þar. Í Mosfellsbæ er eign
á torfærumótorhjólum gríðaleg og
er líklega með því mesta sem gerist
í bæjarfélögum, enda er þetta mjög
fjölskylduvænt og skemmtilegt sport
og einnig með því ódýrasta í röðum
mótorsporta. Íþróttin sem slík hef ur
mikið forvarnargildi fyrir krakka sem
hana stunda því hún er á skrá yfi r erf-
iðustu íþróttagreinar í heimi og þeir
sem hana stunda vita að það þýðir
ekkert annað en að vera í góðu formi
ætli menn að ná árangri, einnig læra
krakkar að sjá um hjólin sín t.d. að
smyrja, skipta um loftsíu og viðhalda
hjólinu sem veitir ábyrgðartilfi nningu
fyrir þá minnstu. Einnig ætlar félagið
að standa fyrir námskeiðum og er
einn af okkar bestu ökumönnum,
Valdimar Þórðarson #270, búinn að
ákveða að halda byrjendanámskeið
fyrir unga sem aldna og alla þar á
milli seinna í sumar og verður það
auglýst á internet.is/motomos. Í
Mosfellsbæ er mikil vöntun á svæði
fyrir braut sem iðkendur geta notað.
Motomos er það mikilvægast að fá
svæði til uppbyggingar á motocross-
braut og þyrfti það svæði að vera
þannig að jarðvegurinn hleypi vatni í
gegnum sig svo nota megi það mest
allt árið. Ekki þarf það þó að vera
svo stórt eða sem nemur ca. tveimur
fótboltavöllum. Félagið vill vinna að
því í samstarfi við lögreglu og stjórn
bæjar ins að koma akstri motocross
hjóla af götum og þeim svæðum sem
engin leyfi hafa fengist fyrir og inn á
svæði þar sem íþróttina má stunda og
koma upp framtíðar ökumönnum og
topp íþróttafólki.
Nú er hægt að skrá sig í félagið inn
á heimasíðu okkar: www.internet.is/
motomos og hvetjum við alla áhuga-
sama mótorhjólamenn og konur að
kynna sér málið.
Kveðja,
Fyrir hönd MotoMos,
Þórir Guðmundsson
Nýlega var samþykkt af bæjarstjóra
að fi nna æfi ngasvæði fyrir MotoMos.
Í Toppformi í allt sumar
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐINNI AÐ VARMÁ S: 566-7888
TOPPFORM@MMEDIA.IS WWW.ITOPPFORMI.IS
SUMARTILBOÐ
ÞRÍR MÁNUÐIR
Á 9.900 KR.
Motomos - nýtt íþróttafélag
Nýverið var Ungmennafélaginu
Aftureldingu færð vegleg gjöf. Um
er að ræða minningarsjóð Guð-
fi nnu Júlíusdóttur og móður hennar,
Ágústínu Jónsdóttur,eins stofnanda
Aftureldingar. Ágústína var gerð að
heiðursfélaga á 45 ára afmæli félagsins
þann 11. apríl 1954. Guðfi nna, dóttir
henn ar, hafði sérstakt dálæti á börn-
um enda hændust þau að henni. Ekki
eignaðist hún þó börn sjálf. Guð-
fi nna lést síðastliðið sumar en það
var hennar vilji að eigur hennar yrðu
að gagni fyrir ungu kynslóðina til að
styrkja þau til íþróttaiðkunar. Þar sem
móðir hennar var einn af stofnendum
Aftureldingar fannst henni tilvalið
að láta félagið njóta þess. Minning-
arsjóðurinn er rúmlega10 milljónir
króna en samkvæmt skipulagsskrá
sjóðsins eru tekjur sjóðsins vextir af
stofnfénu og skal þeim m.a. varið
til að styrkja efnaminni iðkendur til
þátttöku í íþróttum. Höfðuðstóllinn
mun standa óhreyfður.
Það voru bróðursynir Guðfi nnu,
þeir Sigurður Svavarsson, Sigurður
Guðjónsson og Bjarni B. Bjarnason
sem, fyrir hönd fjölskyldu Guðfi nnu,
afhentu þessa veglegu gjöf í kaffi sam-
sæti sem aðalstjórn Afturelding ar
hélt af þessu tilefni. Elísabet Guð-
mundsdóttir, formaður Aftureldingar
tók við gjöfi nni fyrir hönd félagsins og
færði hún fjölskyldunni bestu þakkir
frá félaginu fyrir þessa rausnarlegu
gjöf.