Litli Bergþór - 01.12.2016, Side 8
8 Litli-Bergþór
Um og uppúr 1990 voru ýmsar hugmyndir á
kreiki um hvernig væri hægt að mynda einhvern
vettvang til félagsstarfs fyrir þá sem komnir væru
á efri ár og farnir að hægja á sér í hinu daglega
amstri, en hefðu þörf fyrir að koma saman og
blanda geði við náungann.
„Maður er, jú, manns gaman“.
Fremst í flokki þessa áhugafólks fór Jónína
Jónsdóttir á Lindarbrekku ásamt mörgum öðrum,
með dyggum stuðningi séra Guðmundar Óla
Ólafssonar.
Haldinn var fundur í Aratungu 11. maí 1992. Þar
var stofnað félag sem hlaut nafnið Félag eldri
borgara í Biskupstungum. 25 manns mættu á
stofnfundinn. Félagið er hugsað fyrir 60 ára og
eldri, en styrktarfélagar á öllum aldri velkomnir.
Fyrsti formaður félagsins var kosinn Jónína
Jónsdóttir og starfaði hún í 3 ár. Þá var kosinn
Sigurður Þorsteinsson og starfaði hann í 17 ár
og á eftir honum var kosin Fríður Pétursdóttir og
starfaði hún í 3 ár. Núverandi formaður er Guðni
Lýðsson og hefur hann starfað í 1 ár.
Fljótlega var farið að huga að starfsemi félags-
ins; hvað væri hægt að gera sér til gamans og
dægrastyttingar. Leitað var fyrirmynda hjá
Hrunamönnum sem höfðu orðið nokkurra
ára reynslu, svo og hjá Selfyssingum. Einn
félagsmanna, Ragnheiður Vilmundardóttir, hafði
nokkra reynslu af útskurði í tré og bauðst hún til að
segja til í útskurði eftir því sem hún hafði kunnáttu
Félag eldri borgara
í Biskupstungum
Í Papey 14. Júní 2009. Standandi eru: Guðjón Gunnarsson, Jóhann Vilbergsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Auður Kristjánsdóttir, Svavar
Sveinsson, Ragnhildur Magnúsdóttir, Jón Karlsson, Þuríður Sigurðardóttir, Haukur Ingvarsson, Sigurður Þorsteinsson, Kristján Kristjánsson,
Inga Kristjánsdóttir og Eygló Jóhannesdóttir. Sitjandi eru: Guðni Karlsson, Guðni Lýðsson, Sigurður Erlendsson, Njörður Jónsson, Lára
Ágústsdóttir, Valbjörg Jónsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir og Erna Jensdóttir.
Við minnumst Ragnhildar og Jóns, Þuríðar, Hauks, Guðna Karls, Margrétar og Ernu, sem eru ekki lengur á meðal okkar.