Litli Bergþór - 01.12.2016, Blaðsíða 35

Litli Bergþór - 01.12.2016, Blaðsíða 35
Ketilbjörn ehf. Vinnuvélaverktaki Syðri-Reykjum Grímur Þór - Sími 892 3444 Litli-Bergþór 35 Það var Huffington Post, vefmiðill í USA, sem pikkaði upp þessa síðu mína og var með heilmikla umfjöllun um hana og eftir það varð allt vitlaust. Hefur verið nóg að gera síðan. Við erum í þessu saman, ég og sambýliskona mín, Þórunn María Bjarkadóttir, dóttir Bjarka Elíassonar yfirlögregluþjóns í Reykjavík. Hún er annars menntaður lögfræðingur. Það er ekki mikil yfirbygging á fyrirtækinu, við erum enn með skrifstofuna heima. Við eigum einn strák, hann Bjarka Fannar, sem er átta ára. Hvað varðar áhugamál má segja að frum- kvöðlastarfsemin sé bæði vinnan mín og áhugamál. Þetta er endalaus vinna en mjög skemmtileg. Þegar ég var unglingur og á menntaskólaárunum í ML 1984 -´88, var ég forfallinn í íþróttunum. En um tvítugt var ég sendur í hnjáuppskurð til Þýskalands vegna slitgigtar í hné og þar var mér sagt að mínum íþróttaferli væri lokið. Og ég hef staðið við það. Blaðamaður þakkar Róbert kærlega fyrir skemmtilegt spjall og næsti viðmælandi er heima í Tungum, konan sem sér um kúlubúskapinn í Hrosshaga, Sigríður J. Sigurfinnsdóttir húsfreyja þar. Aðspurð um aðkomu þeirra hjóna að þessari nýlundu í ferðamannaþjónustu segir Sigga Jóna: Jú, þetta byrjaði allt saman vegna kunningsskapar við hann Róbert yngri frá Brún, sem eitt sinn var sumarstrákur hér í Hrosshaga og mjólkaði þá kýr. Róbert hafði í gegnum norðurljósaferðir sínar fengið þó nokkrar fyrirspurnir um það hvort ekki væri hægt að fá að gista einhversstaðar úti undir glerþaki, þar sem hægt væri að horfa á norðurljósin. Hann fann þá þessar plastkúlur, sem framleiddar eru í Frakklandi og leitaði eftir samstarfi við skógarbændur, því skjól er nauðsynlegt fyrir svona húsakynni í íslenskri veðráttu. Slógum við til og var fyrsta kúlan sett upp í desember 2015. Fyrsta gisting var bókuð 9. janúar 2016 og svo vildi til að þessi fyrsti gestur var ferðabloggari frá Singapore, sem lýsti gistingunni sem „fimm miljón stjörnu hóteli – Buubble hotel“. Og síðan hefur verið stanslaus straumur af fólki frá Singapore og öðrum Asíulöndum, en einnig frá Evrópu og Bandaríkjunum. Við höfum haft gesti frá öllum heimsálfum og nú er svo komið að það er fullbókað fram í mars í allar kúlurnar fimm, - nema við neituðum að binda okkur yfir kúlunum á aðfangadagskvöld. Fyrsta kúlan sem sett var upp er um 3,3 metrar í þvermál með tvíbreiðu rúmi og smá náttlampa. Vegna eftirspurnar var í vor ákveðið að bæta við tveim stærri kúlum sem eru líka með stærra anddyri en sömu innréttingu, um 4,4 metrar í þvermál. Það er heitur blástur sem heldur þessum þrem kúlum uppi og hitar þær. En með í pakkanum komu líka tvær minni kúlur af annarri gerð, sem eru með álgrind og því ekki uppblásnar, en standa á fótum á jörðinni. Líta þær út eins og fljúgandi furðuhlutir þarna milli trjánna segir Sigga Jóna og hlær, en hægt væri að hengja þær kúlur upp í tré ef slík tré fyndust á Íslandi. Í þeim er bara heil kringlótt dýna í botninum og því erfiðara að búa um þær, þar sem maður þarf helst að vera berfættur við það. Kúlurnar bera allar íslensk kvenmannsnöfn og heita: Ásta, María, Una, Valdís og Þórunn. Blóm og konfekt. Gleðile g jól

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.