Litli Bergþór - 01.12.2016, Blaðsíða 24

Litli Bergþór - 01.12.2016, Blaðsíða 24
Ég vil þakka ritnefnd Litla-Bergþórs fyrir að biðja mig um að skrifa um Geysissvæðið og vinnu mína við að koma málum þar á hreyfingu í oddvitatíð minni. Geysissvæðið er mest sótti ferðamannastaður hér í Uppsveitum og nauð- synlegt að varðveita heimildir um þróun hans. Vinnan hófst strax eftir sveitarstjórnarkosn- ingar 2010. Þá var sveitarstjórnaferill minn þegar orðinn ansi langur svo ég þekkti vel til málsins. Ég hafði setið í sveitarstjórn Biskupstungna tvö kjörtímabil árin 1992-1998, og settist svo aftur í sveitarstjórn þegar Þingvallahreppur, Laugarvatnshreppur og Biskupstungnahreppur höfðu sameinast árið 2002. Ég leiddi T- listann í Bláskógabyggð, fyrstu tvö kjörtímabilin. Að því loknu hugleiddi ég að hætta afskiptum af sveitarstjórnarmálum, enda hafði ég verið í minnihluta sveitarstjórnar og því oftast haft mikið fyrir því að vinna þeim málum fylgi og framgang sem mér þóttu mikilvæg. Ég ákvað þó að gefa kost á mér enn eitt kjörtímabilið en einungis ef meirihluti næðist. Ég tók því fjórða sæti T-listans og fyrir lá að ég yrði oddviti sveitarstjórnar, ef við næðum meirihluta. Það gekk eftir og ég settist í oddvitasætið í Bláskógabyggð í júní 2010. Nú gat ég einhent mér í það mikilvæga verkefni sem mig hafði lengi dreymt um, þ.e. að reyna að hreyfa við málum á Geysissvæðinu. Ég hafði aldrei haft erindi sem erfiði þegar ég ræddi Geysismál í sveitarstjórn, menn treystu sér ekki til að hreyfa við málum þar. Ég hóf samræðu við Umhverfisstofnun og Ferðamálastofu og ræddi jafnframt við rekstr- araðila og landeigendur á Geysi. Leyfi aðila fékkst til að gera smá andlitslyftingu á Geysissvæðinu og hafist var handa við að laga snúrur koma niður fíngerðum og lágum stálpinnum og stígar voru afmarkaðir. Umhverfisstofnun tók að sér framkvæmdina. Snotur lítil varúðarskilti voru sett upp og svæðið varð allt fallegra með samræmdum látlausum böndum og merkingum. Allt var unnið í fullu samráði við landeigendur. Umhverfisstofnun lagði til sjálfboðaliða svo verkefnið kostaði þá lítið. Á þessum tíma var lítil gæsla á Geysissvæðinu af hálfu Umhverfisstofnunar. Starfsmaður í hlutastarfi kom hálfsmánaðarlega og sótti rusl. Ég fór fram á að heimamaður yrði ráðinn til að hafa umsjón með þrifum á svæðinu og var það samþykkt. Þórey Jónasdóttir var ráðin í hálft starf í tvö sumur og svæðið varð algerlega hreint í hennar umsjá, engir sígarettustubbar né annað rusl og smámynt sem hent var í hverinn Blesa var veidd upp jafnóðum. Í umræðum mínum við landeigendur skýrðust mál enn frekar og samræðan Drífa Kristjánsdóttir: Geysissvæðið 2010-2014 Samvinna, hugmyndasamkeppni, deiliskipulag 24 Litli-Bergþór Séð yfir Geysissvæðið ofan af Laugarfelli.

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.