Litli Bergþór - 01.12.2016, Side 27

Litli Bergþór - 01.12.2016, Side 27
Litli-Bergþór 27 Enn fengust engin svör um hver bæri ábyrgð á Geysissvæðinu af hálfu ríkisins þrátt fyrir ýmis fundarhöld. Ég ákvað því að senda forsætisráðherra eftirfarandi bréf: Bláskógabyggð 7. desember 2011 Forsætisráðherra Frú Jóhanna Sigurðardóttir Efni bréfs: Geysir í Haukadal. Ósk oddvita Bláskógabyggðar um að valdhafar tilnefni aðila sem beri ábyrgð á Geysi og fái vald til að fara með eignarhlut ríkisins í svæðinu. Geysir er frægasta náttúrufyrirbærið á Íslandi. Geysir fær heimsókn flestra erlendra ferðamanna sem til Íslands koma. Íslendingar, eigendur Geysis, eigum að sýna Geysi og Geysissvæðinu öllu ýtrustu virðingu og setja svæðið á þann stall sem því ber. Undirrituð hefur sinnt starfi oddvita Bláskóga- byggðar frá síðustu sveitarstjórnarkosningum, og hefur setið í sveitarstjórn Biskupstungna og Bláskógabyggðar í rúm 17 ár. Ég hef því fylgst ágætlega með málum á Geysi, en ákvað vorið 2010 að taka málin til rækilegrar skoðunar og freista þess að leggja mat á, í hverju það liggur, að staða Geysis er flókin og að erfitt hefur verið að ná samstöðu um svæðið. Ég átti heilmikil samskipti við eigendur Geysis, þ.e. staðarhaldara í Haukadal og rekstraraðila og fékk Umhverfisstofnun og Ferðamálastofu að borðinu. Aðilar voru allir velviljaðir og urðu sammála um ýmsar lagfæringar á Geysissvæðinu. Samstaða tókst um að setja upp ný öryggisbönd og nauðsynlegar öryggismerkingar á þau. Einnig var endurnýjaður pallur meðfram hvernum Blesa. Þetta var gott og gilt en aðeins örlítið upphaf af öllum þeim verkum sem gera þarf á svæðinu. Fulltrúar opinberra stofnana hafa oft nefnt, að eignarhald Geysissvæðisins stæði í vegi fyrir að hægt væri að standa vel að málum á Geysi, en við nánari skoðun er það mitt mat, að erfiðleikar varðandi Geysissvæðið séu fyrst og fremst vegna þess að enginn ákveðinn aðili frá ríkisvaldinu kemur að málum eða ber ábyrgð á staðnum. Ég hitti umhverfisráðherra í haust við Gullfoss þegar Sigríðarstígur var vígður og óskaði eftir fundi með henni varðandi Geysi. Forstjóri Um- hverfisstofu tók málið í sínar hendur og taldi sig geta komið málum áfram. Enn hefur lítið komið út úr því og ég óttast lítinn árangur. Áður hafði ég skoðað málin með ráðherra ferðamála, en hún virðist ekki hafa neina beina aðkomu að Geysissvæðinu. Ég hef líka verið í óformlegum samræðum við starfsmenn fjármálaráðuneytis og ferðamálastjóra en það hefur ekki skipt máli, menn yppta öxlum og virðast ekki hafa neina aðkomu að frægasta svæði Íslands. Að mínu mati er núna hægt að koma málum á Geysissvæðinu í miklu betra horf. Landeigendur hafa sammælst um að mynda samtök sín á milli og sýnir það samstöðu þeirra um svæðið. Mikilvægt er að landeigandinn ríkið komi að eigendafélagi með fullu umboði ríkisins. Ég er sannfærð um að það er tilraunarinnar virði að mynda eigenda-samtök um Geysissvæðið. Ef vel tekst til þá er hægt að gera tillögur áfram um svæðið, halda utanum rekstur þess, vinna deili-skipulag svæðisins. Þá yrði hægt að sækja um styrki í ýmsa sjóði t.d. fjölfarinna ferðamannastaða, fara í samkeppni um hönnun á svæðinu o.fl. Ég held að það sé nauðsynlegt að æðsta stjórnvald taki málin í sínar hendur, tilnefndi fulltrúa sinn í eigendafélagið og gefi Geysissvæðinu byr undirH L Ý J A R H Á T Í Ð A R K V E Ð J U R

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.