Litli Bergþór - 01.12.2016, Síða 11
Litli-Bergþór 11
eru: Hinrik Þór (f. 14.12.1982) sem býr í Svíþjóð og Bryndís Kolbrún (f. 16.04.1984), býr á
Álftanesi, Margrét Freyja (f. 27.01.1988), býr í Hafnarfirði og Hafdís Arna (f. 05.05.1994) sem býr
í Hafnarfirði.
Í stað Sigurðar og Halldóru komu Rut Guðmundsdóttir (16.06.1966) og Geir Guðmundsson
(f. 06.01.1968), en þau stunduðu atvinnu annarsstaðar. Í húsinu voru þau til 1992, en þá fluttu
þau í Reykholt. Börn þeirra eru: Guðmundur Árni (f. 06.06.1990), býr í Reykjavík, Þröstur (f.
14.07.1991), býr í Reykholti og Lilja Ósk (f. 22.01.1993), býr á Selfossi.
Þegar þarna var komið hafði hlutafélagið Varmagerði, keypt stöðina og haustið 1991 fluttu Skúli
Sæland (f. 17.11.1966), frá Sólveigarstöðum og Aðalheiður Helgadóttir (f. 01.11.1968) í íbúðina í
aðstöðuhúsinu, en þau fluttu síðan í íbúðarhúsið þegar Rut og Geir hurfu þaðan sumarið 1992.
Skúli og Aðalheiður voru síðan í Varmagerði til byrjunar árs 2005, en þá fluttu þau í Reykholt. Þau
eiga 3 börn sem eru: Hjörtur Freyr Sæland (f. 23.09.1990), Ástrún Sæland (f. 13.04.1993) og
Gústaf Sæland (f. 21.02.2000).
Magnús Ásbjörnsson frá Víðigerði, (f. 12.01.1968) og Mona Guttormsen (f. 15.05.1966) störfuðu
í Varmagerði og á Sólveigarstöðum frá 1993-1996 og bjuggu þann tíma í aðstöðuhúsinu í Varmagerði.
Árið 2006, keyptu þau Ólafur Sigurþór Björnsson (f. 10.04.1946) og Sigríður Ósk Jónsdóttir (f.
07.03.1960) býlið. Þau hafa ekki haft þar fasta búsetu, en eru skráð þar með lögheimili. Gróðurhúsin
sem stöðinni fylgdu hafa verið rifin. Um helgar á sumrum hafa þau hjón settu upp lagersölu á skóm í
gróðurhúsi sem stendur við Skálholtsveg, en Sigríður rekur skóverslanir á höfuðborgarsvæðinu.
AKUR 1970
Sverrir Gunnarsson (f. 18.08.1928) og Ólöf
Fríða Gísladóttir (f.30.11.1927) í Hrosshaga
tóku þetta land á leigu og byggðu gróðurhús
til að skapa atvinnu fyrir dætur sínar. Þar sem
Sverrir mátti ekki vara skráður fyrir tveim
lögbýlum var Gísli (f.12.12.1951) sonur
þeirra skráður stofnandi býlisins. Hann kom
þó ekki mikið að starfseminni utan að vinna
þar, aðallega í fríum frá öðru, um tíma..
1970 var byggt 600 m² gróðurhús og síðan aðstöðu-/starfsmannahús 1972. Frá 1970-1978 sinntu
dætur Sverris garðyrkjunni að mestu, en höfðu aðsetur í Hrosshaga.
1978 fluttu þau Margrét (Maggí) Sverrisdóttir (f.21.03.1957) frá Hrosshaga og S Helgi
Guðmundsson (f. 25.06.1955) í aðstöðuhúsið. Stuttu síðar hófu þau byggingu íbúðarhúss, en áður
en að því kom að flytja inn, urðu þær breytingar í Hrosshaga, að þau gerðust meðeigendur í búinu
Akur.
Margrét og helgi.
og þangað fluttu þau. Börn þeirra eru: Þórey (f. 05.07.1979) býr
í Hrosshaga, Ketill (f. 25.06.1981) býr í Reykjavík, Fríða (f.
03.09.1986) býr í Danmörku og Andri (f. 23.05.1988) sem býr í
Kópavogi.
Sverrir og Fríða fluttu í staðinn í nýbyggt húsið á Akri um 1984.
Þau bjuggu þar síðan til 1986, en þá höfðu þau byggt sér hús
í Hrosshaga og fluttu þangað. Í þeirra stað fluttu dóttir þeirra,
Ingibjörg (f.18.09.1963) og Hörður Gunnarsson (f. 11.10.1961)
inn og tóku við rekstrinum, en þau fluttu síðan burt 1989. Börn
þeirra eru Nanna Dröfn (15.11.1980) og Gunnar Þórbergur (f. 25.01.1985).
Eftir þetta keyptu Reynir Pálsson (f.15.08.1941) og Maria kona hans býlið. Þau hjón stöldruðu stutt
við og fluttu frá Akri til Danmerkur um tveim árum síðar.