Litli Bergþór - 01.12.2016, Síða 13
Litli-Bergþór 13
Guðrún (f. 08.12.1965) býr í Kópavogi, Birkir (f.
04.02.1966) býr á Hæli í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og
Sigurbjörn Leifur (f. 19.06.1977) býr í Noregi.
Stöðin var leigð Guðmundi Sigurðssyni (f. 25.08.1948),
sem einnig rak garðyrkjustöð í Áslandi á Flúðum, frá
1989 til hausts 1991. Hillbjörg Helene Heggelund (f.
23.03.1968) og Ríkharður Sverrisson (f.25.04.1965)
ráku stöðina fyrir Guðmund frá haustinu 1989 til hausts
1991. Hillbjörg starfaði síðan hjá nýjum eigendum um
nokkurra mánaða skeið. Hún býr nú á Selfossi.
Ragnheiður Sigurþórsdóttir (28.09.1961) og Gunnar
Sigurþórsson (f. 13.04.1959) keyptu Birkiflöt í desember
Verslun og bensínafgreiðsla
Opið 9:00 til 21:00
Allar almennar matvörur og olíur
1992 og stöðin var í þeirra eigu til 2002. Á þeim tíma byggðu þau sér íbúðarhús í Bæjarholti 13 og
fluttu í það 1999. Ragnheiður og Gunnar eignuðust 3 börn: Kristrún Harpa (f. 26.06.1984), hún býr
í Hafnarfirði, Gunnar Karl (f. 02.11.1986, d. 30.09.2004) og Sigrún Kristín (f. 01.07.1988), hún býr
í Noregi. Ragnheiður og Gunnar hafa búið í Noregi frá því þau fluttu, en þaðan komu þau að Birkiflöt.
2002 keyptu þau Ómar Sævarsson og Sigurlaug Angantýsdóttir (sjá. Heiðmörk og Bæjarholt)
stöðina, en þau búa í Heiðmörk. Þau ráku Birkiflöt til ársins 2015 en þá keyptu Guðmundur
Daði Pétursson (f. 27.09.1955) og Herdís Hrönn Gísladóttir (f. 27.09.1963), en þau eru búsett í
Hafnarfirði. Dóttir þeirra, María Ýr (f. 15.04.1987) býr á Birkiflöt og rekur stöðina. Með henni er
dóttir hennar Herdís Lilian Jensen (f. 16.01.2007).
Gleðileg jól og farsælt komandi ár, þökkum liðið
Sigurbjörg og Þröstur.