Litli Bergþór - 01.12.2016, Page 22
22 Litli-Bergþór
Lionsklúbburinn Geysir er byrjaður á sínu 33. starfsári.
Í klúbbnum eru núna 30 félagar, en við stofnun hans
árið 1984 voru stofnfélagar 25 og eru nokkrir þeirra enn
starfandi. Fundir eru tveir í hverjum mánuði frá september
fram í maí. Fundaraðstaða klúbbsins er í Bergholti. Gjarnan
eru fengnir fyrirlesarar á fundina eða farið í heimsóknir
innan- sem utansveitar. Farið er á staði sem áhugavert er
að heimsækja, undantekningarlaust er okkur vel tekið.
Ýmist er okkur boðið í heimsókn eða við boðum okkur í
heimsóknir. Með þessu kynnumst við starfsemi af ýmsum
toga sem stunduð er í nágrenninu og aðrir kynnast okkur og
okkar verkum.
Hvert haust förum við í dagsferð og bjóðum mökum okkar
með. Í þetta sinn var farið í Fljótshlíðina. Fararstjóri var
Magnús Halldórsson á Hvolsvelli. Á vorin förum við í
makalausa ferð. Síðasta vor heimsóttum við fyrirtæki
í Mosfellsbæ og nágrenni. Vorið 2015 fórum við upp á
Akranes og það haust skoðuðum við Flóann undir leiðsögn
Baldurs Sveinssonar frá Drumboddsstöðum.
Við höfum nokkrar leiðir til að afla fjár í verkefnasjóð
klúbbsins. Þar er fyrst að nefna Villimannakvöld sem
við höldum í febrúar ár hvert. Það næsta verður 17.
febrúar 2017. Þar er étið saltað hrossakjöt og hrossabjúgu
með tilheyrandi meðlæti. Þetta eru allt að 180 manna
samkomur, án kvenna fyrir utan Steinu Bjarna sem sér
um eldamennskuna. (Áhættuverk). Aðrar fjáraflanir eru
hreinsanir með þjóðvegum, útgáfa símaskrár og önnur
tilfallandi verk sem við fáum greitt fyrir.
Það fé sem við öflum látum við renna til ýmissa góðra
mála. Við leggjum áherslu á að láta gott af okkur leiða
hér í nærsamfélaginu. Meðal annars höfum við á þessu
ári gefið Félagi eldri borgara í Biskupstungum, boccia
boltasett. Íþróttamiðstöðin í Reykholti fékk viðbótar
eftirlitsmyndavél. Leikskólinn Álfaborg átti að fá leiktæki
á lóð sína í tilefni af 30 ára afmælinu en það frestast þar
til fundinn verður framtíðarstaður fyrir hann. Einnig
höfum við látið pening af hendi rakna í Sjóðinn Góða sem
er samstarfsverkefni Lionsklúbba í Árnessýslu, Rauða
Krossins og Kvenfélaga í Árnessýslu. Jafnframt höfum
við látið dálitla upphæð í Innlendan hjálparsjóð Lions og
Alþjóða hjálparsjóð Lions. Fyrir utan að safna og gefa fé til
ýmissa góðra mála höldum við í heiðri málsháttinn; Maður
er manns gaman.
Með Lions kveðjum, Helgi Guðmundsson, formaður.
Lionsfréttir
Helgi formaður afhendir Magnúsi leiðsögumanni
afurðir frá Friðheimum.
Stjórnir Lionsklúbbsins Geysis 2015-2017. Talið frá
vinstri: Hjalti Ragnarsson, Þorsteinn Þórarinsson,
Þórarinn Þorfinnsson, Snorri Guðjónsson, Helgi
Guðmundsson og Guðmundur Ingólfsson.
Villimannakvöld 2016.