Litli Bergþór - 01.12.2016, Page 28
28 Litli-Bergþór
báða vængi nú þegar áhugi heimamanna er
einlægur og eindreginn. Mikilvægt er að grípa
tækifærið og láta svæðið njóta þess að allir
vilja standa vel að málum. Ég lýsi hér með yfir
einlægum vilja mínum til að aðstoða við að koma
málum áfram og minni á að eigendur sem hafa
búið með Geysissvæðinu allt sitt líf, hafa annast
og elskað staðinn og vilja honum allt hið besta.
Ég vænti þess líka að það geti orðið mjög
ánægjulegt og uppbyggjandi að vinna þessu
máli framgang. Minni á mikilvægi þess að vinna
í uppbyggjandi verkefnum ekki síður en þeim
verkefnum sem verður að takast á við í ljósi
erfiðrar stöðu landsmanna.
Með hlýjum kveðjum og von um jákvæðar und-
irtektir sem allra fyrst,
Drífa Kristjánsdóttir, oddviti Bláskógabyggðar.
Ég fékk ekkert svar frá forsætisráðherra.
Jafnframt þessum bréfaskrifum mínum fund-
aði ég ítrekað með landeigendum Geysissvæðisins
og voru þau fundarhöld mjög ánægjuleg og gáfu
okkur öllum vonir um að saman myndum við
getað þokað málum áfram á Geysissvæðinu.
Ég fékk minnisblað frá landeigendum sem ritað
var 6. janúar 2012 í framhaldi af fundi mínum
og eigenda ásamt Umhverfisstofnun. Í því kom
m.a. fram að „ákveðið hafði verið að stofna
rekstrarfélag um hverasvæðið við Geysi“. Beðið
var um tilnefningu fulltrúa af hálfu ríkisins til að
stofna landeigendafélag. Enn var enginn fulltrúi
tilnefndur af hálfu ríkisins. Eftirfarandi bréf sendi
ég til fjármálaráðherra en ég hafði áður fundað
með fulltrúum Fjármálaráðuneytisins vegna
málsins:
Reykholti 12. júní 2012.
Fjármálaráðherra
Oddný G. Harðardóttir
Efni: Stofnun landeigendafélags um hverasvæð-
ið við Geysi í Haukadal.
Í bréfi mínu til ráðherra dags. 16. apríl 2012
óskaði ég eftir að þú, fyrir hönd íslenska ríkisins,
tilnefndir fulltrúa einn eða tvo í félagsskap
landeigenda Geysissvæðisins. Áður hafði ég
fundað með fulltrúum ráðuneytisins o.fl. um sama
efni.
Nú liggur fyrir að landeigendur, að undanskildu
ríkinu, hafa ákveðið og eru einarðir í, að mynda
með sér landeigendafélag. Þeir hafa jafnframt
óskað eftir stuðningi sveitarfélagsins við að
mynda eigendafélag og var eftirfarandi bókun
samþykkt á fundi sveitarstjórnar 7. júní s.l.
„Sveitarstjórn tekur vel í framkomna beiðni
og samþykkir samhljóða að fela oddvita sveit-
arstjórnar að vinna að framgangi málsins með
hagsmunaaðilum.“
Hugur landeigenda stendur til þess, að sýna
svæðinu alla þá virðingu sem því ber, vernda
það um leið og staðið verður myndarlega að
uppbyggingu þess. Til stendur að stækka svæðið
innan girðingar, stýra umferð fólks og byggja
svæðið upp. Aðilar vilja gjarnan standa að
samkeppni um skipulag svæðisins og hönnun
þess. Þessvegna þarf að vera til félagsskapur
um Geysissvæðið, svo að hægt sé að senda inn
umsóknir t.d. til Ferðamálastofu um styrki til
hönnunar og uppbyggingar svæðisins.
Ferðamenn bíða eftir gosi í Strokki. Hótelbygging í baksýn.