Litli Bergþór - 01.12.2016, Page 29
Litli-Bergþór 29
Einstaka landeigandi getur ekki sótt um styrki
til fjármögnunar á deiliskipulagsvinnu eða hönn-
un, enda þarf samþykki allra landeigenda fyrir
slíku. Landeigendafélag hefur þannig mjög mikil-
vægu hlutverki að gegna.
Landeigendafélagið mun semja sín eigin lög
og reglur og því er mikilvægt fyrir ríkið að koma
strax að slíkum félagsskap til þess að hafa áhrif á
samþykktir þess.
Til margra ára hafa aðilar ekki náð saman
um það hvernig staðið skuli að málum við
Geysi, en nú liggur fyrir að aðrir landeigendur
hafa ákveðið að taka höndum saman. Fram
til þessa, hefur ríkisvaldið verið ófært að taka
á málum Geysissvæðisins og oft hefur öðrum
landeigendum sárnað ávirðingar um ósamstöðu,
þegar ríkisvaldið hefur lítið aðhafst og ekki
tekið ábyrgð, hvað þá sýnt öðrum landeigendum
samstöðu. Nú hafa landeigendur sammælst um
að ganga í takt og þá ber stjórnvöldum að sýna
ábyrgð og vinna með öðrum landeigendum.
Embættismenn ráðuneyta hafa ekki svarað
ósk landeigenda um að ríkið komi að stofnun
eigendafélags. Þeir hafa sagt frá því, að
ríkisvaldið hafi núna hug á að kaupa hverasvæðið
og þeir virðast telja það koma í veg fyrir að ríkið
verði hlutaðeigandi í landeigendafélagi. Ég er
algerlega á öndverðum meiði við þessa túlkun.
Ég tel mjög mikilvægt að ríkisvaldið eigi aðild að
eigendafélagi um hverasvæðið við Geysi, jafnvel
þótt að stefna ríkisins sé að kaupa hverasvæðið.
Þátttaka ríkisins í eigendafélagi um hverasvæðið
við Geysi, kemur ekki í veg fyrir að ríkið geti gert
öðrum landeigendum kauptilboð í Geysissvæðið.
Ég minni á að Geysir er frægasta náttúru-
fyrirbærið á Íslandi og að meginþorri þeirra sem
heimsækja landið koma og skoða Geysi.
Ég hvet ráðherra eindregið, til að taka málin í
sínar hendur og að tilnefna gott, hæft og áhugasamt
fólk í landeigendafélag um hverasvæðið við Geysi
í Haukadal.
Meðfylgjandi bréfi mínu er minnisblað frá 25.
maí sl. frá landeigendum Geysissvæðisins, utan
ríkisins.
Með vinsemd og virðingu,
Drífa Kristjánsdóttir, oddviti Bláskógabyggðar.
Þann 5. september 2012 staðfestu landeig-
endur með sér formlegan félagsskap: „Landeig-
endafélag Geysis ehf“. Ríkið kaus að standa utan
landeigendafélagsins. Mér var veittur sá heiður að
vera kosin ritari stofnfundarins og gladdi það mig
mjög, enda merki um það að við værum saman í
þessari vegferð allri.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsti
eftir styrkumsóknum haustið 2012. Ég sótti um
háan styrk til Geysissvæðisins og það gerðu
landeigendur líka. Samkomulag varð um að
sveitarfélagið myndi sækja formlega um, enda
var það krafa úthlutunarnefndarinnar. Í lok janúar
2013 var kynnt úthlutun og við fengum við stærsta
styrkinn kr. 20 milljónir. Sótt hafði verið um styrk
vegna hugmyndasamkeppni og skipulagsmála
og nú hófst mikil og afar ánægjuleg vinna allra
aðila. Arkitektafélagið með Hallmar Sigurðsson
í fararbroddi leiddi okkur áfram í þeirri vinnu
en hann hafði kynnt okkur hvernig faglega væri
best að standa að hugmyndasamkeppni. Ég mun
segja frekar frá þeirri vinnu í næsta blaði Litla-
Bergþórs.
D.K.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár