Litli Bergþór - 01.12.2016, Page 32
32 Litli-Bergþór
Eitthvað varð undan að láta í slíkum hamförum
og fór vesturhluti brúarinnar af, en grindarbitinn
á stokknum (gjánni) hélt, en skógarleifar héngu
á honum og var talið að skógartorfa hafi komið
siglandi niður ána og lent á brúnni. Nú varð að
endurbyggja brúna. Nýir, öflugir stöplar og steyptir
bitar voru settir á brúna á klöppunum að vestan og
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár.
upplýsingar og borðApantanir
í 486 1110 eða 896 6450
að auki var bætt við hafi austan
stokksins. Brúin var þá orðin
liðlega 73 m. Seinna, árið 1958,
var grindarverkinu á stokknum
skift út fyrir hefðbundna
stálbita. Síðan var það 1995 að
bríkur voru endurnýjaðar og
sett nýtt handrið og þannig er
brúin nú. Frá öllu var gengið
sem traustlegast, sem kom sér
vel, því í desember 2006 kom
enn mikið flóð í ána. Náði þá
að vatna upp á brúargólfið með
íshröngli en brúin varð ekki
fyrir skemmdum. Einnig hélt
vegurinn. Hvort brúin stenst
óröskuð flóð framtíðarinnar
verður tíminn að leiða í ljós.
Mynd tekin á vestur bakkanum í flóðinu þ. 20. des. 2006. Það er ekki alveg í hámarki en
þó er brúin nánast á kafi. Mynd BÞÞ.
Við gerð þessarar greinar var m.a. stuðst við
bókina Brýr að baki, frá 2006 og einnig Tímarit
V. F. Í. 1931.
Ljósmyndir:
GZ: Geir Zoëga
ÁP: Árni Pálsson
BÞÞ: greinarhöfundur
óskar lesendum
Litla-Bergþórs
gleðilegra jóla og
farsæls nýs árs