Litli Bergþór - 01.12.2016, Page 36
36 Litli-Bergþór
Raflagnir - Viðgerðir
Jens Pétur Jóhannsson
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
Tökum að okkur nýlagnir, hönnun raflagna
og alla almenna rafvirkjavinnu
ásamt tækjaviðgerðum.
Efnissala og varahlutaþjónusta.
Fljót og góð vinna.
Sumarbústaðaeigendur athugið að
við sækjum um öll leyfi fyrir heim-
taug að sumarhúsum og lagningu
raflagna
Heimasími: 486 8845
Verkstæði: 486 8984
GSM: 893 7101
Það var strax ljóst að það
þurfti að útbúa klósett- og
eldunaraðstöðu fyrir fólkið
sem gisti í kúlunum, og
var það hús tekið í notkun
nú í byrjun október. Til að
byrja með var notast við
ferðaklósett.
En hvernig líkar ykkur
hjónum við þennan kúlu-
búskap?
Í þessum búskap er það nú aðallega ég sem er
verktaki í vinnu hjá „Flotferðum“ Róberts segir
Sigga Jóna. Og eins og þetta hefur verið í haust er
þetta orðin ansi mikil binding, enda fullbókað og
flestir gista aðeins eina nótt. Kúlubúskapur er ekki
betri en kúabúskapur að því leyti. En nú stendur
til að koma upp sjálfsafgreiðslukerfi með lyklana
og senda þvottinn í þvottahús, sem verður til
mikilla bóta. Og svo kemur hann Peter, ungverski
nuddarinn, núna í miðri viku og býr um rúmin.
Það hafa auðvitað verið ýmsir byrjunarörðugleik-
ar, eins og t.d. í sambandi við hitann og blásturinn.
Sumum finnst of heitt öðrum of kalt. Asíubúar eru
ekki vanir því að nota þykkar sængur og það hefur
komið fyrir oftar en einu sinni að við erum vakin
um miðja nótt af fólki, sem ekki getur sofið af
því að því er kalt. Þegar við svo komum uppeftir
með auka sængur og teppi, liggur fólkið ofaná
sængunum. Við tökum það samt alltaf sérstaklega
fram þegar við sýnum þeim kúluna, að það eigi að
skríða undir sængurnar þegar farið er að sofa! Það
hafa líka komið upp ýmis önnur tilvik, skondin og
skemmtileg. Eins og þegar fólk notar tækifærið
og biður sinnar heittelskuðu í kúlunni og við erum
beðin um að koma með kampavínsflösku út í
skóg, eða skreyta kúluna sérstaklega. En almennt
er fólk himinsælt með þetta einnar nætur gaman
og sérstaklega þegar norðurljósin skarta sínu
fegursta segir Sigga Jóna að lokum.
Kampavín - bónorð í
uppsiglingu?
Eftirtaldir styrkja útgáfu
Litla-Bergþórs og
óska lesendum hans
gleði og friðar á jólum:
Friðheimar, Reykholti s: 486 8815
Gljásteinn ehf, Myrkholti s: 486 8757
Gullfosskaffi við Gullfoss s: 486 6500
Helgi Guðmundsson rafvirki s: 864 6960
Hótel Geysir, Haukadal s: 480 6800
Hótel Gullfoss, Brattholti s: 486 8979
Skjól-Camping, Kjóastöðum s: 899 4541
Gleðileg jól