Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Qupperneq 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.9. 2018
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is
Sögur sem enda vel er gaman að lesa. Á dögunum birtist frásögn móðurÖrnu Dísar Ólafsdóttur, ungrar konu með þroskahömlum, á síðumMorgunblaðsins. Þar lýsti móðirin, Unnur Helga Óttarsdóttir, þeim
slæmu áhrifum sem það hefur að fá ekki tækifæri til að komast út á vinnu-
markað að loknu námi. Arna Dís hafði útskrifast af starfsnámsbraut FB í vor
en sat iðjulaus og einangruð heima í stað þess að fá tækifæri til að taka þátt í
samfélaginu og gera gagn. „Það voru blendnar tilfinningar, gleði og sorg sem
bærðist um í brjósti mínu við útskrift dóttur minnar Örnu Dísar þegar ég
horfði yfir hópinn og gerði mér grein fyrir því að ekkert framhald yrði á
framhaldsnámi dóttur minnar og lítið sem ekkert í boði á vinnumarkaðnum,“
sagði Unnur Helga.
Nokkrum dögum eftir að greint var frá málinu bárust Örnu Dís sem betur
fer nokkur starfstilboð. Nokkur fyrirtæki tóku við sér og sáu tækifæri til að
nýta krafta hennar, öllum til heilla.
Dæmin eru miklu fleiri. Guð-
bergur Rósi Kristjánsson er ungur
maður með Downs-heilkenni sem út-
skrifaðist af starfsnámsbraut fyrir
þremur árum en hefur ekki fengið
tækifæri á vinnumarkaði og ein-
angrast fyrir vikið meira og meira,
eftir því sem fram kom í samtali við
móður hans, Þórhildi Ídu Þórarins-
dóttur, í Morgunblaðinu á dögunum.
Í kjölfarið fékk hann reyndar það
skemmtilega verkefni upp í hend-
urnar að fylgjast með slökkviliðinu
að störfum, sem er auðvitað jákvætt
svo langt sem það nær.
En þótt einhverjar sögur fái góðan endi breytir það ekki því að eitthvað
þarf að gera til að laga þessa stöðu. Það er ótækt, í samfélagi sem býr við lítið
atvinnuleysi, að heyra af ungu fólki sem ekki fær störf við hæfi og fær ekki
einu sinni tækifæri til að nýta krafta sína. Að mati Þroskahjálpar eru líkur á
að um eitt hundrað ungmenni með þroskahömlun af einhverju tagi hafi lokið
starfsnámsbrautum en fái ekki tækifæri á vinnumarkaði.
Hinn margumtalaði „vinnumarkaður“ er auðvitað ekkert annað en fólk.
Sama má segja um „atvinnulífið“, á bak við það hugtak er fólk. Allt þetta fólk,
til dæmis forsvarsmenn fyrirtækja, ráðamenn og hátt settir hjá samtökum í
atvinnulífinu, getur tekið ákvarðanir um að veita öllum tækifæri, óháð getu.
Allir geta gert eitthvað og það skiptir sköpum að við nýtum krafta þeirra sem
geta unnið og vilja vinna og gera þjóðfélaginu gagn. Það væri óskandi að
hundrað sögur af ungu fólki sem situr heima, en hefur getu og vilja til að
spretta fram á vinnumarkaðinn, gætu fengið góðan endi.
Útskrift en
hvað svo?
Ljósmynd/Unnur Helga Óttarsdóttir
Hundrað sögur
gætu endað vel
Pistill
Eyrún
Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
’Að mati Þroskahjálpareru líkur á að um eitthundrað ungmenni meðþroskahömlun af einhverju
tagi hafi lokið starfsnáms-
brautum en fái ekki tæki-
færi á vinnumarkaði.
Sigurveig Gunnlaugsdóttir
Bara vel. Það er svo gaman að labba
um og skoða.
SPURNING
DAGSINS
Hvernig
líst þér á að
gera Lauga-
veginn að
göngugötu
allt árið?
Brynjar Jóhannesson
Mér finnst þetta mjög góð hug-
mynd.
Sigríður Þórsdóttir
Mér líst bara vel á það. Þessi bíla-
umferð er alveg út úr korti þarna.
Valgeir Ólafsson
Mér hugnast það ekki.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Hvernig leggst haustið í þig?
Fáránlega vel. Ég var að koma úr nokkurra mánaða leyfi frá
RÚV sem ég eyddi í sjónvarpshandritaskrif fyrir Sagafilm,
lengst af í Portúgal og á Írlandi. Þegar ég lenti í Reykjavík
biðu skemmtileg og spennandi verkefni, m.a. nýir þættir á
RÚV með frábærum kollegum, þannig að ég kvarta ekki.
Hvað er svona skemmtilegt við útvarp?
Fyrir utan það að geta mætt í vinnuna nánast ómáluð og í
náttfötum? Útvarpið er skjótvirkur miðill. Ég bara býð
fólki inn í stúdíó, ýti á græna takkann og allt fer í loft-
ið. Það myndast oft nánd við viðmælendur sem
getur þýtt betri viðtöl. Svo er það hljóðheim-
urinn sem er svo skemmtilegt að leika sér
með, ólíkar raddir og hljóð, tónlist, hljóð-
brot og auðvitað þagnirnar – sem er al-
gjört lykilatriði að nota rétt í góðu
samtali!
Þið reynduð að greina
Donald Trump í Morgun-
útvarpinu í vikunni. Gekk það?
Okkur fannst áhugavert að ræða yfirlýsingu
fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Kan-
ada, sem sagði að hegðun Trumps væri skil-
greining á geðveiki – og alls ekki sá fyrsti til
þess að setja spurningamerki við geðheilsu
Trump. Við kölluðum til fagmann eins og við
gerum jafnan, Óttar Guðmundsson geðlækni,
sem hefur m.a. geðgreint hetjur úr Íslend-
ingasögunum í bókum sínum. Við ræddum
bæði þessa yfirlýsingu og efnið í víðara sam-
hengi enda eru sögur eða staðhæfingar um
andlega heilsu stjórnmálamanna þekkt stef í
nútíð og þátíð. Óttar vildi meina að ekkert
benti til þess að Trump væri geðveikur en tók
líka fram að til þess að geðgreina einstakling
þyrfti hann að fá tækifæri til þess að ræða al-
mennilega við viðkomandi – ótrúlegt en satt
þá hefur Óttar ekki fengið færi á slíkum
fundi með Trump! Svo var nú annar merki-
legur punktur sem kom fram í viðtalinu, að
íslenskir geðlæknar hafi fengið þau vinsam-
legu tilmæli að sleppa því að geðgreina ís-
lenska stjórnmálamenn opinberlega. Skilst
að það tengist eitthvað Stóru Bombu.
Hvernig er fullkomið haustkvöld?
Að koma þreytt og sátt eftir sundferð á skemmtilegan vina- eða
fjölskylduhitting. Gera vel við sig í vetralegum mat og drykk við
kertaljós undir djúsí umræðum. Og svo allir upp í rúm fyrir
klukkan 22 því ég þarf að vakna í Morgunútvarpið!
Hverjar eru helstu fyrirmyndir þínar í lífinu?
Ef ég hefði 1/10 af hæfileikum Jónasar Jónassonar, útvarpsmanns
Íslands, væri ég gríðarlega sátt.
BJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Toppurinn að sofna fyrir tíu
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Á
rn
i S
æ
be
rg
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Björg Magnúsdóttir er dagskrárgerðarkona á RÚV. Hún stýrir nýjum útvarpsþætti á Rás 2, Morgunkaffinu,
ásamt Gísla Marteini Baldurssyni á laugardagsmorgnum auk þess að vera einn þáttastjórnenda Morgun-
útvarpsins nokkrum sinnum í viku með þeim Sigmari Guðmundssyni og Huldu Geirsdóttur.