Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.9. 2018
MATUR
Getty Images/iStockphoto
Í mínum huga eru epli og
hnetusmjör fullkomnasta
tvíeyki jurtaríkisins. Dag-
urinn sem ég uppgötvaði
að hægt væri að bæta
hnetusmjöri í hefðbundna
eplakökuuppskrift var góð-
ur dagur. Vissulega má gera
eigið smjördeig en þessi
uppskrift er fyrir þá sem
eru gráðugir og geta ekki
beðið.
1 pakki smjördeig
3-4 epli, gott að blanda sam-
an grænum og rauðum
120 g sykur
½ tsk. kanill
30 g hveiti
YFIRBREIÐSLA
75 g haframjöl
40 g púðursykur
40 g hveiti
½ tsk. kanill
salt á hnífsoddi
80 g smjör
120 g gróft hnetusmjör
Hitið ofninn í 200°C. Flysj-
ið og kjarnhreinsið eplin og
skerið í báta. Blandið sykri,
kanil og hveiti saman í skál
og blandið saman við eplin. Í
aðra skál skal blanda saman
haframjöli, púðursykri,
hveiti, kanil og salti. Bræðið
saman smjör og hnetusmjör
við vægan hita. Blandið
smjörblöndunni saman við
haframjölsblönduna.
Fletjið smjördeigið út
þannig að það passi í hring-
laga form, smyrjið formið
vel og þrýstið deiginu í
botninn og upp meðfram
búnum. Raðið eplunum of-
an í og hafið þykkustu bit-
ana í miðjunni. Hellið hafra-
blöndunni yfir og bakið í
35-40 mínútur.
Eplakaka þess sem dáir
hnetusmjör
Ástæðan fyrir því að ég
ferðast oft til Suður-
Þýskalands er epladeigsrúlla,
eða hin dásamlega „Apfel-
strudel“, sem upprunnin er í
Austurrísk-ungverska keis-
aradæminu. Elsta uppskriftin
að réttinum er frá 17. öld og
hefur haldið vinsældum sín-
um alla tíð síðan á þeim
svæðum sem eitt sinn til-
heyrðu keisaradæminu og
nálægum byggðarlögum. Ég
hef reynt að baka kökuna
eftir nokkrum uppskriftum
og þessi hér, sem ég man því
miður ekki lengur hvar ég
fann, hefur virkað best:
DEIG
80 ml volgt vatn
15 ml bragðdauf grænmetis-
olía (til dæmis repjuolía)
½ tsk. hvítvínsedik
salt á hnífsoddi
1 bolli hveiti
½ tsk. grænmetisolía til að
smyrja skálina og deigkúluna
Blandið öllum hráefnum
saman og hnoðið afar vel, í
10 mínútur, gott er að nota
hnoðara í matvinnsluvél.
Sláið deiginu hnoðuðu
nokkrum sinnum í hreint
vinnuborðið, en deigið þarf
að vera orðið vel teygjanlegt
áður en óhætt er að hætta
að hnoða og slá það.
Mótið fallega kúlu úr deig-
inu, penslið hreina skál með
olíu og setjið deigið ofan í.
Penslið á deigkúluna líka
með smá olíu. Lokið skálinni
með sellófan og geymið
deigið við stofuhita í klukku-
stund.
FYLLING
40 g ósaltað smjör
80 g bolli franskbrauðsmylsna
65 g sykur
½ tsk. kanill
3 msk. rúsínur
1 msk. romm og 1 msk. vatn
(allt í lagi að nota einungis
vatn)
800 g sæt og góð epli
½ msk. sítrónusafi
2 msk. bráðið smjör til að
pensla deigið með
smá flórsykur
Leggið rúsínurnar í bleyti í
romm- og vatnsblöndunni
þar til þær eru uppblásnar
og mjúkar. Bræðið 40 g af
ósaltaða smjörinu og bland-
ið saman við brauðmylsnu,
sykur og kanil. Fletjið deigið
út eins þunnt og mögulegt
er, helst þannig að það sé
gegnsætt, gott er að taka
það öðru hverju upp og
teygja vel á því með hönd-
unum, passið að hveitistrá
vinnuborðið reglulega svo
það fari ekki að festast við.
Leggið á borðið og smyrjið
helming yfirborð deigsins
með bráðna smjörinu og
dreifið svo kanilblöndunni á
hinn helminginn, passið að
bera blönduna þannig á að
hún fari ekki of langt út að
brúnunum, skiljið 3-4 cm
auða við endana. Flysjið epl-
in, fjarlægið kjarnann og
skerið í fremur þunna báta.
Dreifið eplunum yfir kanil-
blönduna og stráið rúsínun-
um yfir. Nú skal bretta lá-
rétta enda deigsins inn, auða
hlutann ofan á, þannig að
fyllingin fljóti ekki út þegar
farið er að rúlla upp. Þá skal
rúlla öllu upp og byrja á end-
anum þar sem fyllingin er.
Færið rúlluna yfir á smjör-
pappír, penslið með smjöri
og bakið í 25-30 mínútur við
190 °C. Leyfið rúllunni að
kólna örlítið og sigtið örlít-
inn flórsykur yfir til skrauts.
Berið fram með ís eða
þeyttum rjóma, fallegt er að
skreyta með fersku basil.
Alvarlega góð Apfelstrudel
Eplakökur með
þessu aukalega
Eplakökur sameina fólk, því það mannsbarn er varla til
sem kann ekki að meta heita, kanililmandi eplaköku.
Nú er eplauppskera um víða veröld og því er einkar
viðeigandi að skella í góða eplaköku
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is