Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Blaðsíða 37
9.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 ROKK Steve Perry, sem kunnastur er fyrir að hafa verið söngvari bandaríska rokkbandsins Journey, er í þann mund að snúa aftur eftir að hafa hvílt raddböndin í meira en tvo áratugi. Von er á nýrri sólóskífu frá kappanum í byrjun næsta mánaðar, Traces, en Perry söng síðast inn á plötuna Trial by Fire með Journey árið 1996. Í samtali við bandarísku útvarps- stöðina 106.7 Lite FM viðurkennir Perry að hann hafi ekkert sungið í millitíðinni og það hafi verið átak að dusta rykið af röddinni, ef svo má að orði komast. Almennur leiði varð á sínum tíma til þess að Perry dró sig í hlé en fyrir um tveimur árum kviknaði neistinn aftur. Spurður hvort hann hefði áhuga á að troða upp með Journey á ný var söngvarinn fljótur til svars: „Nei, leiðir okkar hafa skilið.“ Steve Perry snýr aftur Steve Perry er orðinn 69 ára gamall. Getty Images KVIKMYNDIR Nýjustu mynd bandaríska leikstjórans Pauls Feigs er beðið með eftir- væntingu, en eftir að hafa malað gull með gamanmyndum á borð við The Bridesmaids, The Heat og Ghostbusters reynir hann sig við spennuna í A Simple Favor, sem frum- sýnd verður vestra í næstu viku. Anna Kend- rick fer þar með hlutverk konu sem fær aðra konu, sem Blake Lively leikur, á heilann. Allt fer svo á yfirsnúning þegar sú síðarnefnda hverfur sporlaust. Hefur sjónvarpsstjarnan eiginmaður hennar myrt konuna eða býr eitthvað annað að baki? Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu eftir Darcey Bell. Kona hverfur í nýjustu mynd Feigs Anna Kendrick stendur í stórræðum í nýrri mynd. AFP Í glysrokköldunni sem gekk yfirheiminn snemma á áttunda ára-tugnum var breska bandið The Sweet (eða einfaldlega Sweet, eins og það var oftast kallað) framarlega í flokki. Naut almennrar lýðhylli beggja vegna Atlantsála og kom hvorki fleiri né færri en þrettán lög- um á topp 20 í Bretlandi. Má þar nefna Wig-Wam Bam, Block Buster!, The Ballroom Blitz, Teenage Ram- page og Fox on the Run. Sweet var stofnuð í Lundúnum ár- ið 1968 af söngvaranaum Brian Con- nolly og trymblinum Mick Tucker og skömmu síðar bættist bassaleikarinn Steve Priest í hópinn. Hvorki gekk né rak til að byrja með, ýmsir gítarleik- arar voru prófaðir og lög gefin út án þess að þau kæmu fram á skjálfta- mælum. Það var ekki fyrr en gítar- leikarinn Andy Scott, sem leikið hafði með bítilbróðurnum Mike McCart- ney, gekk til liðs við Sweet sumarið 1970 og tekið var upp samstarf við lagahöfundana Nicky Chinn og Mike Chapman og upptökustjórann Phil Wainman að hjólin fóru að snúast. Steve Priest getur þess raunar í end- urminningum sínum að þeim hafi lit- ist rétt mátulega á Scott, sem mætti illa tilhafður í áheyrnarprufuna og byrjaði á því að sprengja öryggið í magnaranum sínum. En síðan byrj- aði hann að spila og málið var dautt. Kúlutyggjórokk Til að byrja með var tónlistin létt rokk sem á þeim tíma var gjarnan kennt við kúlutyggjó og Sweet lagði allt í sölurnar til að toppa bönd á borð við Queen, Slade og T. Rex þegar kom að klæðaburði á sviði. Glysinu var þyrlað upp. Chinn og Chapman vildu ólmir keyra á þeirri ímynd en Sweet-liðar voru aldrei sáttir við hana. Að því kom að leiðir skildu og um miðjan áttunda áratuginn fór Sweet að aðhyllast harðara rokksánd í anda átrúnaðargoða sinna, The Who. Og að semja lögin sjálfir. Fyrst um sinn kom það ekki niður á vin- sældum sveitarinnar en er leið á ára- tuginn fjaraði þó hratt undan Sweet. Í því sambandi vann hegðun Con- nollys söngvara ekki með bandinu en hann þróaði snemma með sér alkó- hólisma. Við upptökur á plötunni Sweet Fanny Adams árið 1974 þurftu Priest og Scott að leiða sönginn í nokkrum lögum, þar sem Connolly gat ekki beitt sér að fullu eftir að hafa slasast á hálsi í áflogum. Stöðugt seig á ógæfuhliðina og eft- ir að Connolly dó áfengisdauða á miðjum tónleikum í Bandaríkjunum árið 1978 var ljóst hvert stefndi. Hin- ir þrír létu þó engan bilbug á sér finna og kláruðu giggið eftir að Con- nolly hafði verið borinn af sviði. Connolly fékk lokatækifæri við upptökur á plötunni Cut Above the Rest árið 1979 en söngur hans stóðst ekki kröfur og hann yfirgaf bandið áður en platan kom út. Hinir héldu áfram sem tríó og gáfu út tvær plötur í viðbót en Sweet var aðeins skugginn af sjálfri sér. Bandið lagði loks upp laupana árið 1982. Þekkti ekki söngvarann Menn reyndu fyrir sér einir síns liðs en án teljandi árangurs. Hver í sínu lagi voru menn ekkert sérstaklega „sweet“. Mike Chapman, gamli laga- höfundurinn þeirra, náði þeim reynd- ar öllum saman árið 1988 með mögu- lega endurkomu í huga. Þau áform voru andvana fædd en Chapman bar ekki einu sinni kennsl á Connolly á flugvellinum í Los Angeles, þangað sem mannskapnum var stefnt, svo grátt hafði Bakkus leikið hann. „Hvaða gamli maður er þetta með ykkur?“ á hann að hafa spurt. Connolly sálaðist árið 1997 og var banamein hans ýmsir kvillar af völd- um ofneyslu áfengis. Flest líffæri voru hætt að starfa sem skyldi og hvert hjartaáfallið rak annað. Hann var 51 árs gamall. Fimm árum síðar féll Tucker í val- inn eftir baráttu við hvítblæði. Ekki er víst að öllum sé það ljóst en Sweet hefur starfað í ýmsum myndum frá árinu 1985. Fyrst setti Brian Connolly sína útgáfu af band- inu saman og starfrækti hana undir nafninu New Sweet til dauðadags. Andy Scott mátti ekki vera minni maður og stofnaði sína útgáfu ári síð- ar, Andy Scott’s Sweet, ásamt Tuc- ker og fleirum, meðal annarra Paul Day, sem var fyrsti söngvari Iron Maiden. Nei, ekki Paul Di’Anno, heldur Paul Day. Hefur sú útgáfa starfað fram á þennan dag, mestan- part í Evrópu. Ljótt er að skilja Ameríku út und- an, þannig að Steve Priest, sem lengi búið hefur þar, hlóð í enn eina útgáf- una, Steve Priest’s Sweet, fyrir ára- tug og starfar hún enn. Túrar mest um Bandaríkin og Kanada. Scott er 69 ára en Priest sjötugur. Sweet hafði víðtæk áhrif á önnur bönd, ekki síst seinni bylgjuna í glys- rokkinu á níunda áratugnum. Þannig hefur Íslandsvinurinn W. Axl Rose tilgreint þá sem eitt af sínum uppá- haldsböndum á uppvaxtarárunum. Og lögin lifa, meðal annars með hjálp vinsælla bíómynda. Þannig heyrðist The Ballroom Blitz í stikl- unni fyrir Suicide Squad árið 2016 og sama ár var Fox on the Run notað í stiklunni fyrir Guardians of the Ga- laxy Vol. 2. Rándýrt. Og dísætt. orri@mbl.is Sweet í fullum herklæðum snemma á áttunda áratugnum: Steve Priest, Mick Tucker, Andy Scott og Brian Connolly. Tucker og Connolly eru látnir. Steve Priest bassaleikari heldur uppi heiðri Sweet í Ameríku. Andy Scott hefur engu gleymt og túrar grimmt með sitt Sweet. HVAÐ VARÐ UM SWEET? „Hvaða gamli maður er þetta með ykkur?“ Bragð af vináttu • Hágæðagæludýrafóður framleitt í Þýskalandi • Bragðgott og auðmeltanlegt • Án viðbættra litar-, bragð- og rotvarnarefna Útsölustaðir: Byko, Gæludýr.is, 4 loppur, Multitask, Launafl, Vélaval, Landstólpi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.