Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Blaðsíða 8
EINKALÍF Omarosa og leikarinn Michael Clarke Duncan voru par frá árinu 2010 til 2012, eða þar til hann lést úr hjartaáfalli. Duncan lék í fjölda vinsælla mynda, þ.á m. Armageddon og Planet of the Apes en þekktastur var hann fyrir leik í myndinni The Green Mile. Omarosa var með Duncan þegar hann fékk hjartaáfall og er sögð hafa veitt honum fyrstu hjálp þar til sjúkrabíll kom á staðinn. Hann lifði af en lést tveimur mánuðum síðar á sjúkrahúsi. Omarosa hefur sagt að fráfall hans hafi haft mikil áhrif á líf sitt. Fjölskylda Duncans er þó allt annað en sátt við þessa fyrrverandi unnustu hans og hafa deilur um erfðaskrá hans staðið yfir frá dauða hans. Þá lá hann lengi í ómerktri gröf vegna deilna um legstein. Með Michael Clarke Duncan í sam- kvæmi skömmu áður en hann lést. AFP Deilt um erfðaskrá Í FÓKUS 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.9. 2018 ATHYGLI Gagnrýni á bók Omarosu hefur ekki síst gengið út á að efast um hennar trúverðugleika. Margt sem hún segi um forsetann gæti verið litað af þorsta hennar í athygli. Hún hefur starfað við raun- veruleikaþætti með hléum frá árinu 2004 og hafa margir orðið til að benda á að í þeirri starfsgrein sé auðvelt að missa sjónar á því sem þættirnir eru kenndir við: raunveruleikanum. Omarosa birtist fyrst á skjánum vestra í Apprentice-þáttunum sem Don- ald Trump stýrði en hún hefur einnig tekið þátt í Fear Factor, Celebrity Big Brother og fleiri þáttum þar sem raunveruleikinn er jafnan ansi vandlega pakk- aður inn í ýkt drama, átök og ímyndaðar ástir. Hins vegar hefur verið á það bent að ýmsir aðrir en Omarosa hafa skrifað á svipuðum nótum um upp- lifun sína á forsetanum, nú síðast ónefndur háttsettur embættismaður í nafnlausri grein í The New York Times og einnig kom út á dögunum bók blaðamanns- ins Bobs Woodwards þar sem lýsingar á hegðun for- setans eru mjög í takt við það sem Omarosa segir. Omarosa hatar ekki að hafa sjónvarpsvélar nærri. AFP Einn stór raun- veruleikaþáttur? OMAROSA MANIGAULT-NEWMAN hefur verið áberandi í fjölmiðlum vestanhafs undanfarið, en bók hennar um tíma sinn í Hvíta húsinu undir stjórn Donalds Trumps hefur nú verið tvær vikur á toppi lista New York Times yfir mest seldu bækurnar í Bandaríkjunum. Omarosa, sem notast jafnan við for- nafn sitt frekar en eftirnafn, tók við starfi sem ráðgjafi Trumps í byrjun árs 2017 en var sagt upp störfum í desember sama ár. Omarosa steig fyrst fram á sjónarsviðið í fyrstu þáttaröð raunveruleika- þáttanna The Apprentice, þar sem hún kepptist um stöðu sem lærlingur hjá framtíðaryfirmanni sínum, Donald Trump. Þar áður hafði hún sinnt ýmsum störfum í ríkisstjórn Bills Clintons, meðal annars á skrifstofu varaforsetans Als Gore og sem starfsmaður viðskiptaráðuneytisins. Í raunveruleikaþáttunum skapaði hún sér ímynd sem harðsvíruð og undirförul viðskiptamanneskja sem var að eigin sögn „ekki hér til að eignast vini“. Þrátt fyrir að vera rekin eftir níu þætti virtist hún hafa heillað Trump, þar sem þau unnu saman að fjölda verkefna á næstu árum, meðal annars The Cele- brity Apprentice og hálfgerðri blöndu af The Apprentice og The Bachelorette sem nefndist The Ultimate Merger, þar sem tólf piparsveinar, handvaldir af Trump sjálfum, kepptust um hlýhug Newman á hóteli í Las Vegas. Eftir framkomu í fleiri raunveruleikaþáttum á borð við Fear Factor og Big Brother, þar sem Omarosa hélt uppi sínu harðneskjulega viðmóti, varð hún fljótlega að stórstjörnu í heimi raunveruleikasjónvarps. Áhorfendur virtust flykkjast að skjánum til að sjá hana rífa kjaft við mann og annan og svífast einskis til að ná árangri í margvíslegum þrautum og verkefnum sem fjölbreyttir raunveruleikaþættirnir buðu upp á. Hún var þó fljótlega stimpl- uð sem hálfgerður skúrkur, stimpill sem hún gagnrýndi gjarnan harðlega. Kvaðst hún ekki vera illmenni heldur snjöll og kappsfull í viðskiptum og væri hún karl væru þessir eiginleikar álitnir merki um styrk og ákveðni. Í aðdraganda forsetakosninga í Bandaríkjunum árið 2016 lýsti Omarosa stuðningi við Hillary Clinton, sem hafði þá ekki tilkynnt framboð en var sterklega orðuð við emb- ættið. Raunveruleikastjörnunni snerist þó hugur þegar Donald Trump, vinur hennar og viðskiptafélagi, tilkynnti sitt framboð og gekk hún til liðs við framboðsteymi Trumps, þar sem verkefni hennar var að láta stefnumál frambjóðandans höfða til minnihlutahópa. Omarosa er 44 ára, fædd í Ohio. Hún er alin upp af móð- ur sinni en faðir hennar var myrtur þegar hún var aðeins sjö ára. Hún er með háskólagráður í sjónvarpsfrétta- mennsku og samskiptum ásamt því að hafa vígst til prests hjá babtistasöfnuði sem hún tilheyrir. Nýbakaður eigin- maður hennar, John Allen Newman, er einnig prestur og bað hennar í miðri messu hjá söfnuðinum. Ekki áhuga á að eignast vini AFP ’ Í aðdraganda forseta-kosninga 2016 lýsti Om-arosa yfir stuðningi viðHillary Clinton en henni snerist hugur þegar Donald Trump tilkynnti framboð. Trump hefur sagt það hafa verið mistök að ráða Omarosa. AFP AFP Bók Omarosa Manigault- Newman hefur trónað á toppi lista New York Times í tvær vikur. BÓKIN Í Unhinged lýsir Omarosa daglegum venjum Bandaríkja- forseta en hún hefur miklar áhyggjur af heilsu hans, andlegri en ekki síður líkamlegri. Hann sé veikur en fólkið í kringum hann, læknar meðtaldir, leyni því. „Hræðilegar venjur hans eru farnar að segja til sín,“ skrifar hún í bókinni. Trump neiti að stunda reglulega hreyfingu, að undan- skildu golfi. Hann sé háður Big Mac-hamborgurum og steiktum kjúklingi og drekki um átta dósir af Diet Coke á dag. Þá stundi hann ljósabekki á morgnana til að „líta vel út allan daginn“ að eigin mati. Big Mac og ljósabekkir Omarosa var í innsta hring forsetans þar til henni var sagt upp störfum í Hvíta húsinu í desember 2017. Hún ber Trump síður en svo vel söguna AFP Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Nýjar vörur Vasi antiq brass 22.900 Spegill 80cm 18.900 Hliðarborð á hjólum 120.000 Viðar hliðarborð 38.500 Ljós 35.900

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.