Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Blaðsíða 20
Heilgallinn sem Serena Williams klæddist á Opna franska meistaramótinu sló ekki í gegn hjá öllum. Bernard Giudicelli, formaður franska tennissambands- ins, var ósáttur og bannaði gallann á síðari mótum. Williams klæðist óvenjulegum jakka við tenniskjólinn. Skórnir eru fram- leiddir í tak- mörkuðu upp- lagi og taskan er líka sérhönnuð fyrir hana, en á henni stendur „AKA Queen“. AFP Tennisfatnaður nýtur vaxandi vinsælda sem hversdagsklæðnaður og vekur sífellt meira umtal, ekki síst í tilfelli afreks- konunnar Serenu Williams, en vel er fylgst með henni innan vallar sem utan. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Árið 1927 var tennistískan komin langt frá síðkjólum aldamótanna. Enginn kjóll þarna. Tennistískan um aldamótin 1900. Það lítur ekki út fyrir að vera hentugt að spila tennis í svona síðri flík. Tennisfatnaðurhefur notið sí-vaxandi vin- sælda að undanförnu. Í nýrri skýrslu frá Lyst kemur fram að tískutengdum leit- um að orðinu „tennis“ hefur fjölgað um 59% miðað við síð- asta ár. Tennispils, kjólar og tennisstuttbuxur fyrir karlmenn eru það sem mest er leitað að. Serena Williams kynnti nýtt sam- starf sitt við Nike á Opna banda- ríska meistaramótinu. Hún er þekkt fyrir að klæðast óvenju tískumeðvit- uðum fötum á vellinum. Í þetta skipti tekur hún þetta aðeins lengra, en fatnaðurinn er hannaður af Virgil Abloh, sem er einhver um- talaðasti fatahönnuður heims um þessar mundir, en hann er aðal- hönnuður Off-White og listrænn stjórnandi herrafatalínu Louis Vuitton. Fatnaðurinn, sem samanstendur af ósam- hverfum tenniskjól með tjullpilsi við glimmer- strigaskó, hefur slegið í gegn. Heilgallinn sem hún klæddist á Opna franska meistaramótinu fyrr á árinu vakti mikla athygli en Bernard Giudicelli, formaður franska tennis- sambandsins, bannaði gallann á síð- ari mótum. Honum fannst gallinn ekki bera nógu mikinn vott um virð- ingu fyrir íþróttinni. Mörgum þykir þetta vera hrein- asta karlremba enda sé gallinn sér- hannaður til þess að koma í veg fyrir blóðtappa, sem Williams fékk tengd- an meðgöngu. Nú klæðist hún í stað- inn sérhönnuðum sokkabuxum sem eiga að gera svipað gagn. Það er sérstakt að kvenkyns tennisleikarar þurfi helst að keppa í einhverju sem líkist kjól. Það virðist vera þrýstingur á konur að keppa í slíkum klæðnaði þó að ekkert í regluverkinu segi að þær megi ekki klæðast stuttbuxum. Þar stendur aðeins að fatnaðurinn þurfi að vera hreinn og eitthvað sem þyki vera al- mennt við hæfi sem tennis- klæðnaður og getur hvert og eitt meistaramót sett sínar eigin reglur. Williams á vellinum árið 2004. Hinn þekkti fatahönn- uður Virgil Abloh hannaði þessi föt í samvinnu við Nike. AFP Toppurinn að vera í tennisfötum Lilly Pulitzer hefur síðustu ár boðið upp á tennisfatnað. Úr línu sem Forever 21 gerði í samvinnu við Wilson og kom á markað í ágúst. AFP Annar al- klæðnaður úr línu frá sænska fatamerk- inu Björn Borg. Það kemur ekki á óvart að tennisföt séu í línu sem ber nafnið Björn Borg. Tenniskjóll úr vorlínunni hjá Christian Dior árið 1996. 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.9. 2018 HÖNNUN OG TÍSKA

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.