Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Blaðsíða 16
VIÐTAL 16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.9. 2018 læra að sitja í rúmi, ekki með neina maga- vöðva. Maður þarf að læra allt upp á nýtt, eins og að klæða sig.“ Hún segir marga hafa verið í sumarfríi og sundlaugin hafi verið lokuð. Hún hitti aldrei sálfræðing á Grensási en hitti síðar geðhjúkr- unarfræðing á vegum Icelandair sem sérhæfir sig í áfallahjálp. Spurð hvort það hafi hjálpað segist hún hreinlega ekki vita það. „Ég er ekki mikið fyrir að tjá mig neitt djúpt.“ Varstu ekki reið? „Jú. Ég var svolítið brjáluð. Ég er núna hætt að vera reið. Ég veit ekki hvernig ég á að orða það, málið var að ég var alveg andstaðan við þetta, ég var alltaf úti í fjallgöngum, að hjóla og að fljúga. Og í byrjun sá ég bara allt sem ég gat ekki. En svo hægt og rólega reyndi maður að breyta hugarfarinu.“ Við ræðum hversu fáránleg örlögin geta verið; einn daginn er Lára að fljúga breiðþot- um yfir heimsins höf og næsta dag er hún löm- uð á spítala. Eitt sekúndubrot sem ekki verður aftur tekið breytti öllu. Lára nefnir sem dæmi að hún hafi þurft að flytja. „Við áttum heima í gömlu húsi í miðbænum með þröngum stigum og ég bara komst ekki þar um. Ég fór aldrei aftur í þá íbúð. Ég fór bara út að hjóla og fór aldrei aftur heim. Við keyptum svo þessa íbúð þegar ég lá ennþá inni á Grens- ási. Leifur og mömmurnar fóru að skoða og hún var bara keypt,“ segir Lára og hlær. Heldurðu að þú getir sætt þig við þetta? „Maður verður bara að gera það. Ég hef ekki val og þá verður maður að gera það besta úr þessu fyrst þetta er skeð,“ segir hún og seg- ist enn vera að vinna úr áfallinu en hver dagur sé aðeins betri en sá á undan. „Ég er hætt að hugsa dagsdaglega; verð ég einhvern tímann aftur glöð? Nú er allt orðið aftur eðlilegt. Svo verður maður að læra að hlæja að alls kyns óþægilegum hlutum sem maður lendir í núna,“ segir hún og þau Leifur segjast oft skella upp úr vegna aðstæðna sem komi upp. Húmorinn er ekki langt undan, þrátt fyrir erfiðleikana. Andlega og líkamlega styrkjandi Í Reykjavíkurmaraþoni 2017 hlupu fjölmargir til styrktar Láru, en safnað var svo hún gæti komist á endurhæfingarstöð í Bandaríkjunum. „Ég náði ekki utan um þetta allt, þetta var stórkostlegt. Ég fékk kveðjur frá ótrúlegasta fólki sem ég þekkti ekki einu sinni,“ segir Lára og segir þennan dag, mitt í sorginni, hafa verið mikinn gleðidag. „Já, það var geggjað veður og rosa mikil gleði.“ Lára og Leifur gátu notað það fé sem safn- aðist til þess að fara í þrjár ferðir til Denver í Colorado, þar sem þau dvöldu fimm til sex vik- ur í senn. Hún segir endurhæfinguna þar hafa reynst sér vel og verið á allt öðru plani en hér heima. „Stöðin sérhæfði sig í heila- og mænuskaða. Það var margt fólk þarna inniliggjandi en þarna var mest ungt fólk. Það var svo gaman að umgangast það og heyra sögur þess. Það er eina fólkið sem skilur mig. Læknarnir mínir þarna úti voru tveir í hjólastól líka. Amerík- anar eru svo glaðir og opnir og þjálfararnir þarna voru allir svo hressir og reyndir og alltaf til í að prófa eitthvað nýtt,“ segir Lára og út- skýrir að mikið hafi verið lagt upp úr meðferð í gegnum tómstundir, útivist og hreyfingu. „Einu sinni í viku var farið í ferð og við próf- uðum alls konar nýtt, eins og að fara á kajak og hjól. Það var svo mikið í boði. Það eru svo miklir möguleikar. Sumar af þessum græjum vissi ég ekki að væru til. Mér fannst dvölin þarna hjálpa mér mjög mikið. Þetta var mjög styrkjandi bæði líkamlega og andlega,“ segir Lára og segist hafa eignast nokkra vini sem hún fylgist með á samfélagsmiðlum. Leifur var með henni allan tímann og gat hann unnið vinnuna sína fyrir Creditinfo frá Denver. Að hámarka líkur á bata Leifur segir þau gjarnan hafa viljað fara til Bandaríkjanna því auðvitað vildu þau prófa allt sem gæti mögulega stuðlað að einhvers konar bata. „Það var alveg ljóst strax að þetta væri mjög alvarlegt, en það fylgdi þessu svo mikil óvissa. Hvað gerist næstu mánuði? Fær hún bata? Við vildum hámarka líkurnar á bata og fórum því á þessa endurhæfingarstöð í Bandaríkjunum. Hversu litlar sem líkurnar eru reynir maður að gera sitt besta. Við vorum farin út þremur mánuðum eftir slys, sem er í rauninni mjög snemmt,“ segir Leifur. „Grensás gerði grunnþjálfunina ágætlega með það að markmiði að koma henni á þann stað þar sem hún er sjálfbjarga, og þá var þeirra verki lokið. Þeir eru ekki að fylgja fólki út í lífið og opna dyr að möguleikum. Að gera þig að bestu útgáfu sem þú mögulega getur verið. Þeirra verkefni er bara að bjarga þér,“ segir hann. „Þeim fannst það kannski bara tímaeyðsla að fara út til Bandaríkjanna. Þó að hún hafi ekki fengið kraftinn í lappirnar aftur var endurhæfingin að koma henni út í lífið svo miklu betri þarna úti. Þar náði hún að breyta hugarfarinu og hitta fullt af fólki sem er búið að afreka ótrúlega hluti. Hér heima er SEM (Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra) að vinna gott starf og hafa þau komið og hitt Láru og sýnt henni hvað sé hægt að gera. Þau hafa sagt henni að hún geti hringt í þau dag og nótt,“ segir hann og bætir við að það sé afar mikilvægt að hafa einhverja aðra en lækna til að spyrja og þá sérstaklega að hafa fólk sem stendur í sömu sporum og Lára. „Þau komu niður á Grensás stuttu eftir að ég slasaðist og það var mjög gott að hitta þau. Það er ein stelpa á mínu reki, Arna Sigríður, og einn strákur sem er aðeins eldri, og þau gera bara allt sem þeim dettur í hug. Arna er rosa öflug og stefnir á Ólympíuleikana. Það hjálpaði mjög mikið að sjá að þau geta gert allt,“ segir Lára. Eftir endurhæfinguna í Denver fylltist Lára eldmóði og sá að ýmsir möguleikar væru í boði til þess að stunda hreyfingu og útivist þótt hún væri lömuð. „Ég keypti mér götuhjól og við erum að hugsa um að kaupa okkur kajak, enda stutt að fara héðan út á sjó,“ segir Lára, en hún æfir sig oft á hjólinu meðfram strandlengjunni. „Ég fór líka á skíði í Colorado, það var mjög erfitt. Maður er í sæti með einu skíði og stafirnir eru líka með skíði. Þetta er dálítið erfið tækni að læra en þegar þetta er komið er þetta örugglega mjög skemmtilegt, ég var orðin sæmileg eftir nokkra daga,“ segir Lára og brosir. „Svo eru til gönguskíði sem ég væri til í að prófa, nokkuð sem ég vissi ekki að væri til.“ Hjónin virðast ekki láta neitt stoppa sig og nefna að hlutirnir gætu verið verri. „Við erum líka þakklát fyrir að þetta fór ekki verr, sérstaklega eftir að við vorum þarna úti og sáum fólk sem var kannski ekki með kraft í höndum eða sem hafði lent í höfuð- meiðslum. Þetta gæti verið talsvert verra. Við getum gert gott úr því sem við höfum í dag, þó að það sé mikil breyting í lífinu,“ segir Leifur. „Já, það er ótrúlegt hvað hægt er að gera, þó að ég sé bara með not í kannski 30% af líkam- anum,“ bætir Lára við. Lára keypti sér götuhjól sem hún knýr áfram með handafli. Hún æfir sig oft meðfram strand- lengjunni fyrir utan blokkina í Bryggjuhverfinu þar sem þau búa. Næst á dagskrá er fjallahjól. Það er fátt sem ekki er hægt eins og sannaðist þegar Lára prófaði skíði í Colo- rado. Hún segist ætla að æfa sig frekar á skíðum í framtíðinni. Leifur og Lára hafa alltaf stundað hreyfingu og útivist saman og ætla að halda ótrauð áfram á þeirri braut. Þau hafa planað ýmsar ævintýraferðir í framtíðinni og Lára lætur hjólastólinn ekki stöðva sig. ’ En hún er að massa þettaverkefni, hún Lára, hún erótrúleg. Hún gerir sjálf oft lítiðúr því hvað hún er að gera mikið af mögnuðum hlutum og segist stundum ekki skilja að fólk sé að hrósa henni. Henni finnst þetta bara venjulegt. Ég hef sagt við hana, það er ekki fyrir hvern sem er að sigrast á svona áskorunum. Lára prófaði ýmislegt nýtt í endur- hæfingunni í Bandaríkjunum. Endurhæfingin í Bandaríkjunum gerði Láru gott, bæði andlega og líkamlega.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.