Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.9. 2018 Tilviljun hvort börn fá stuðning Börn sem missa foreldri hér á landi hafalengi verið í lausu lofti með hvaða stuðn-ingi þau eiga rétt á. Á síðasta ári fjallaði Sunnudagsblað Morgunblaðsins um frumvarp um breytingu á lögum til ættleiðingar þar sem vilji er til að ættleiða barn sem hefur misst ann- að foreldri eða báða foreldra. Frumvarpið var samþykkt nú í vor og með lagabreytingunni þarf nú að leita umsagnar nánustu fjölskyldu látna foreldrisins en áður var það þannig að hægt var að ættleiða barn án þess að fjölskylda fráfallins foreldris vissi af því. Í þeirri umfjöllun kom jafnframt fram að gera þyrfti átak í fleiri málum er snerta rétt barna sem missa foreldri en Jón Bjarnason, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, hefur verið hvata- maður þess að unnið sé í réttindamálum barna í þess- ari stöðu og snúið sér alfarið að þeim málum eftir að hann hætti þingmennsku. Nú kann stórt skref að verða tekið í málum þessara barna en þingmenn sex flokka endurflytja nú á haustdögum frumvarp um breytingar á ýmsum lögum vegna réttar barna sem aðstandenda. Vilhjálmur Árnason, þing- maður Sjálfstæðisflokks, er fyrsti flutnings- maður að frumvarpinu. „Frumvarpinu er ætlað að tryggja eins og kostur er velferð barna sem missa foreldri vegna veikinda eða skyndilegs fráfalls. Þannig að í umhverfinu verði vissir aðilar innan ákveð- inna stofnana, heilsugæslunnar, spítalans, skólastjórnendur, sýslumenn og svo framvegis sem hafi visst hlutverk til að mannréttindi þess- ara barna séu tryggð. Þeim ber þá að tryggja að þegar barn missi foreldri fari strax ákveðið ferli í gang til að tryggja að því sé leiðbeint og að- stoðað í gegnum áfallið og úrvinnslu úr því. Um leið yrði barninu ekki bara fylgt í gegnum áfallið heldur einnig áfram út í lífið þar sem það þarf að vera samfella í slíkri aðstoð,“ segir Vilhjálmur. Vilhjálmur, Jón Bjarnason og fleiri hafa bent á að eins og staðan er í dag fari ekkert ferli í gang í kerfinu sem grípur þessi börn og að- stoðar heldur er það tilviljanakennt hvort þau fái stuðning. Myndi tryggja verkferla Samkvæmt frumvarpinu myndi grunnskóla- og leikskólabörnum sem og framhaldsskólanem- um, sem eiga langveik eða deyjandi foreldri, vera tryggður stuðningur. Bæði innan skólanna í samvinnu við heilsugæslu, heilbrigðisstofn- unina þar sem foreldrið er til meðferðar og for- eldra eða aðra þá sem annast um barnið eða ungmennið. „Þessar lagabreytingar myndu tryggja að þegar barn missir foreldri færu sjálfkrafa í gang ákveðnir verkferlar og vitað væri hverjir bæru ábyrgð á þeim. Eins og þetta er núna fer þetta bara eftir því hver er á vakt á spítalanum, hvernig skólastjórinn er, upp á það hvort barn fær þá aðstoð sem það þarf. Í dag vitum við að það getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir heilsufar fólks á fullorðinsárum ef það fær ekki aðstoð við áföll sem börn svo þetta er bæði mannréttinda- og forvarnarmál.“ Meðal þess sem frumvarpið kveður á um er að áður en læknir getur gefið út dánarvottorð verði hann að kanna hvort hinn látni hafi átt barn undir lögaldri. Sé svo skal viðkomandi læknir tilkynna andlát foreldris til heilsugæslu barnsins og í framhaldinu skal læknir heilsu- gæslunnar sjá til þess að rætt sé við barnið og því tryggður sá sjálfstæði réttur sem það nýtur til að viðhalda tengslum jafnt við fjölskyldu hins látna foreldris og þess eftirlifandi. Einnig yrði embætti sýslumanns skylt að kanna hvort fyrir liggi samkomulag um um- gengni barnsins við nána vandamenn þess þeg- ar embættinu berst dánartilkynning og ekki má veita leyfi til setu í óskiptu búi til langlífara for- eldris barns eða ganga frá dánarbúskiptum nema gengið hafi verið frá fyrirkomulagi um umgengni barnsins við nána vandamenn þess. Miklar rannsóknir að baki Fræðilegur grunnur lagabreytinganna er þriggja ára rannsóknarverkefni á stöðu barna þegar foreldri hefur greinst með krabbamein. Rannsóknunum stýrði dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf, og hafa allir þrír áfangar rannsóknarinnar verið gefnir út í Rit- röð Rannsóknastofnunar í barna-og fjöl- skylduvernd, RBF. „Það má segja að við lítum á að frumvarpið sé ein afurðin af niðurstöðum rannsóknarverkefn- isins. Niðurstöðurnar voru þær að börnum og þeirra þörfum er ekki gefinn gaumur við veik- indi og missi foreldris. Það á við um heilbrigðis- og velferðarþjónustuna, skólana og jafnvel fjöl- skylduna,“ segir Sigrún, en bæði var rætt við fagfólk og fjölskyldumeðlimi í rannsóknarverk- efninu. „Rannsóknir mínar og annarra hafa sýnt að það er ákveðin einstaklingshyggja ríkjandi á stofnunum. Hin formlega ábyrgð er á einum einstaklingi og það er hinn veiki. Kerfið gerir ekki ráð fyrir að þessi einstaklingur sé hluti af öðru mengi og þannig gleymist að sinna fjöl- skyldu þess veika og börnin eru afskipt og ósýnileg. Við ræddum m.a. við ekkla og það kom í ljós að þeim er að lágmarki sinnt við og eftir eftir sinn missi. Þannig eru þeir oft ekki þess megnugir að hugsa um börnin líka. Það er líka áhugavert að í viðtölunum kom í ljós að það eru oft ömmurnar sem eru sterkur bakhjarl í fjöl- skyldunum, sitja við dánarbeð veikrar dóttur, sinna heimilinu og börnunum og oft tengillinn við skólann. En þær eru líka ósýnilegar, ekki er gert ráð fyrir þeim af hálfu heilbrigðisstofnun- arinnar. Það kemur fram í fyrsta hluta rannsóknar- innar að fagfólk er ósátt við þetta og vill geta sinnt nánustu aðstandendum og ekki síst börn- um. En þar er álagið þvílíkt og fer eftir persónu hvers og eins starfsmanns hvað hann gerir. Margir tala einnig um að þeir hafi hvorki rými né þekkingu til að mæta þörfum barnanna og þau gleymast.“ Í rannsóknunum kom líka í ljós að börn eru ekki endilega tilbúin til að treysta fagfólkinu. Þau finna að þau eru utanveltu og þótt þeim sé sagt að þau geti hitt fagmann fá þau ekki nöfn eða ákveðinn tíma og staðsetningu þannig að slíkt fellur um sjálft sig. „Rannsóknir sýna okkur að þegar börn eiga alvarlega veika foreldra vilja þau gjarnan hlífa hinum fullorðnu og bera vanlíðan sína í hljóði þótt þau séu oft illa haldin af kvíða, svefntrufl- unum og einbeitingarskorti. Þau eru hrædd við að tjá vilja sinn því þau hafa ekki fengið skýr skilaboð um að þau hafi slíkan rétt. Í staðinn fara þau í það hlutverk að hjálpa til, bera ábyrgð og jafnvel kenna sér um. Ef ekki er hugað að þessari líðan barnanna vitum við nú úr rann- sóknum að alvarleg áföll og einsemd í bernsku getur komið fram í lakari sál- og líkamlegri heilsu síðar á ævinni. Við höfum verið eftirbátar hinna Norður- landanna í þessu en þar er komið í lög að það beri að gefa gaum börnum í þessari stöðu, þau fái viðeigandi stuðning, eigi rétt á upplýsingum og að vera þátttakendur.“ Sigrún segist binda miklar vonir við frum- varpið þar sem starfsfólk stofnana fengi þá leið- beiningar um hvernig skyldi sinna börnum í sorg. „Það á ekki síst við um skólana sem eru mjög handlama í þessu. Það eru vissulega til ákvæði í lögum um áfallateymi en þau eru ekki alltaf virk og það skortir þetta þverfaglega fagafl inn í skólana. Ekki að kennarinn vilji ekki hafa af- skipti af barninu heldur er það bara ekki á eins manns færi og til þess hvorki rými né viðeigandi þekking. Þeim mun þarfara er að inn í skólana komi viðbótarstarfsafl sem hefur þjálfun í áfalla- og fjölskylduvinnu.“ Sigrún segir að það að koma því inn í lög að heilbrigðisstarfsfólk hafi skyldur gagnvart börnum sem misst hafa foreldri sé afar brýnt og að brýr séu byggðar milli skóla, heilsugæsla og kerfisins í heild. „Að það sé ljóst hvert er hægt að leita og hver réttur fólks er.“ Getty Images/iStockphoto Miklar breytingar gætu orðið á réttindum barna sem missa foreldri gangi frumvarp í gegn sem kveður á um að kerfið grípi inn í við slíkar aðstæður. Eins og stendur er ekkert í lögum sem tryggir að barnið fái þann stuðning og aðstoð sem þörf er á. „Eins og þetta er núna fer þetta bara eftir því hver er á vakt á spítalanum, hvernig skólastjór- inn er, upp á það hvort barn fær þá aðstoð sem það þarf,“ segir Vilhjálmur Árnason þingmaður. Vilhjálmur Árnason, þingmaður. Dr. Sigrún Júlíus- dóttir, prófessor í félagsráðgjöf. ’ Börn þarfnast kerfis sem telur þau með og vinnur fyrir þau, kerfis sem gerir þeim kleift að vinna með tilfinningar sínar og sinnir þörfum þeirra hvenær sem á þarf að halda. Jeroo Billimoria mannréttindafrömuður. INNLENT JÚLÍA MARGRÉT ALEXANDERSDÓTTIR julia@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.