Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Qupperneq 26
GettyImages/iStockphoto
Það fer Toskana-
héraði á Ítalíu vel að
vera í haustbúningi.
Cornwall í Bretlandi hefur upp á margt að bjóða og eru strendurnar
þar vinsælar á sumrin. Í ár voru þær einstaklega vinsælar vegna veð-
urfarsins í sumar þannig að fólksfjöldinn varð stundum til vandræða.
Núna eru krakkarnir byrjaðir í skóla svo að þeir sem hafa svigrúm til
ættu að kíkja þangað. Í september er veðrið oft enn gott og hótel-
verð er lægra. Einnig er hægt að mæla með menningar- og tónlist-
arhátíðinni í St. Ives, sem stendur yfir 8.-22. september.
CORNWALL
Strendur og menning
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.9. 2018
FERÐALÖG
Hugmyndir að
haustfríi
September og október eru góðir mánuðir til að ferðast fyrir þá sem hafa
tækifæri til. Hótelverð er víða lægra en yfir hásumarið, veðrið er samt enn
gott á suðlægari slóðum og síðast en ekki síst er færra fólk á ferð.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Það er kjörið að heimsækja stór-
borgina München í Bæjaralandi í
Þýskaland í september og októ-
ber og ekki er verra að mæta á
staðinn þegar Októberfest
stendur yfir. Í ár er hún haldin
dagana 22. september til 7.
október. Opnunarhátíðin fer
fram í Schottenhamel-tjaldinu
en á hádegi mun borgarstjórinn
slá tappann úr fyrstu tunnunni.
Það borgar sig að mæta
snemma til að fá að upplifa há-
tíðarhöldin í návígi, en ekki er
óalgengt að fólk mæti í kringum
níu um morgun til að tryggja sér
góð sæti.
Hópar sem ætla á Október-
fest ættu að panta sæti en þeir
sem eru færri á ferð geta mætt á
staðinn en þá borgar sig að
koma snemma.
Til viðbótar við að drekka
bjór, borða, syngja og dansa geta
gestir keypt minjagripi og farið í
skemmtitæki og göngutúra á
þessu stóra svæði til að skoða
mannlífið.
MÜNCHEN
Mannlíf á
Októberfest
Ólöf Erla Bjarnadóttir
Guðrún Borghildur Valdís Harrysdóttir
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17