Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.09.2018, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.9. 2018
HEILSA
Í samfélagi hraða, tækni og samfélagsmiðlaer meðalhófið sjaldséð og það vekur helsteftirtekt sem er á skjön við hinn margróm-
aða og gullna meðalveg. Það dytti auðvitað eng-
um í hug að framleiða raunveruleikaþátt um
Meðal-Jón eða vísitölufjölskylduna í Grafar-
voginum. Hlutir þurfa oftast að stinga í stúf,
vekja aðdáun eða fyrirlitningu til þess að kom-
ast í fréttir eða ofarlega á hina síkviku vefmiðla.
Þetta laukst upp fyrir mér þegar ég áttaði
mig á þeirri staðreynd að ef ég gerði ekki eitt-
hvað í mínum málum þá myndi ég mögulega
innan fárra ára teljast í hópi þeirra sem teljast í
yfirþyngd samkvæmt öllum venjulegum mæli-
kvörðum. Ekki svo að skilja að ég sé að springa,
en það hefur hallað undan fæti frá þeim tíma
þegar ég var fyllilega sáttur við stöðu mála.
Uppgötvunina gerði ég á sólarströnd suður í
höfum þar sem ég ákvað með símtækið í hönd-
unum að kanna hvaða leið ég ætti að feta að
hollari lífsháttum og ögn lægri tölum á baðvog-
inni. Með aðstoð Google hófst leitin að stóra
sannleikanum og þar blöstu öfgarnar við,
Biggest loser í aðra röndina og fílefldir einka-
þjálfarar, flestir með þvottabretti og keppandi
í fitness í hina röndina.
Viðjar vanans erfiðar viðfangs
Ekki svo að skilja að í þessum tilvikum hafi ég
ekki fundið sögur sem vöktu athygli mína,
þvert á móti. Vandinn er hins vegar sá að ég
tengi ekki við þær persónulega. Ég tilheyri
hvorki þeim hópi sem uppfyllir skilyrðin fyrir
þátttöku í sjónvarpsþáttum um offituvandamál
né get ég sagt að uppþembdir vöðvar og
örmjóar lendaskýlur höfði sérstaklega til mín.
Ég er bara Meðal-Jón í þessum efnum sem
hef margoft reynt að snúa skipinu við og til
betri vegar en oftast orðið viðjum vanans að
bráð. Vika hér, vika þar þegar kemur að heim-
sókn í ræktina gerir lítið gagn og þótt það sé
frískandi að göslast upp Esjuna þá vegur það
ekki þungt í heildarsamhenginu.
Tilraun sem má heppnast
Af þeim sökum ætla ég að leggja út í tilraun
sem standa mun yfir í 6 mánuði. Markmið
hennar er að koma hreyfingu og heilsu í þann
farveg sem mig hefur um alllangt skeið
dreymt um að gera. En hvernig hefst maður
handa þegar lagt er á brattann? Svarið í mínu
tilfelli var fremur einfalt. Ég setti mig í sam-
band við Ívar Guðmundsson, einkaþjálfara
með meiru. Fyrir því voru tvær megin-
ástæður. Hann hefur meiri reynslu en flestir
aðrir á þessu sviði og ég er stressaður fyrir
verkefninu, sökum bakmeiðsla sem hafa verið
að hrjá mig frá árinu 2015. Ívar er maður sem
ég get stólað á um rétt og góð ráð til að vinna
mig út úr þeim á sama tíma og öðrum mark-
miðum er náð.
Líkt og sjá má hér að ofan er ég 92,7 kg sem
er í efri mörkum fyrir 35 ára gamlan karlmann
sem teygir sig 185 sentimetra frá lægsta
punkti til þess hæsta. Engin ósköp en mætti
vera skárra. Fyrir sex árum kvæntist ég minni
frábæru konu og þá var ég 82 kíló. Það væri
vissulega gaman að komast í smókinginn sem
ég stóð klæddur í frammi fyrir altarinu í Dóm-
kirkjunni. Í dag er það ekki vinnandi vegur.
En nú þegar ég legg af stað, í átt til betri
heilsu er aðeins tvennt sem er á hreinu. Ég
hitti Ívar tvisvar í viku, 45 mínútur í senn og
ég ætla að losna við 10 kíló. Það er einfalt
markmið en ég veit að þeim mun fjölga þegar
ferðalagið er hafið.
Sex mánuðir á þessari síðu
Það er ýmislegt sem gæti orðið til þess að
þetta einfalda markmið náist ekki. En sú
staðreynd að ég hef skuldbundið mig til að
skrifa um þessa vegferð næsta hálfa árið,
gerir það að verkum að ég má helst ekki
gefast upp. Öll góð ráð, ábendingar eða
spurningar eru vel þegnar. Hvatning hjálpar
líka til.
En kannski er markmiðið ekki bara að kom-
ast aftur í brúðkaupsgallann. Það væri líka
ánægjulegt ef þessi skrif og tilraunin í kring-
um þau gæti orðið öðrum hvatning. Eitt er víst
að einhver fróðleikur, hugmynd hér og þar, á
eftir að rata hér á síðuna. Það eru verkfæri
sem öllum er frjálst að nýta, sé ætlunin að taka
til í sínum ranni.
Ætlunin að snúa skipinu við
Aukakílóin læðast að fólki og ekki er óalgengt að hreyfingarleysi leiði til þess að það bæti á sig 1 til
1,5 kg á ári án þess að taka eftir því. Nú er ætlunin að láta gamlar syndir af því tagi heyra sögunni til.
Morgunblaðið/Valli
Hvað gerir ungt og önnum kafið fólk til að viðhalda heilsunni og losna jafnvel við nokkur kíló sem óþarft er að burðast með? Kannski
tekur hálft ár að komast að því. Það mun koma ljós á þessum vettvangi og kannski einhverjar hugmyndir sem fleiri geta nýtt.
Ein algengasta gildran sem fólk
gengur í þegar það ákveður að
taka heilsuna fastari tökum er
að hjakka í sömu æfingunum yf-
ir lengra tímabil – hlutum sem
það þekkir sig í og eru innan
þægindarammans. Þótt mik-
ilvægt sé að hafa líkamsrækt
sem fastan hluta af dagskránni
þarf hún ekki að vera einhæf og
raunar hafa aldrei verið jafn
fjölbreyttir möguleikar í boði
fyrir þá sem vilja prófa eitthvað
nýtt.
Einhæfni í æfingum getur
bæði orðið til þess að fólk
springi á limminu en það getur
líka valdið óþarfa álagi á til-
tekna og afmarkaða vöðvahópa
líkamans.
Fyrir nokkrum árum hafði ég
ofboðslega gaman af því að
hlaupa og gerði ekkert annað til
að halda mér í formi. Svo langt
gekk hlaupagleðin að ég lagði
að baki þrjú maraþon og all-
nokkur hálfmaraþon. En sú veg-
ferð var ekki að kostnaðar-
lausu. Bakmeiðslin sem ég
minntist á hér að ofan eru bein
afleiðing af síendurteknu álagi á
stoðkerfi líkamans. Ég gáði ekki
að mér og þjálfaði ekki nægi-
lega þá vöðva sem þurfti til að
halda við hryggjarliðina og
brjóskið sem liggur á milli
þeirra. Nú ætla ég ekki að falla í
sömu gryfju og fyrr. Og raunar
kemur það ekki til af góðu. Ég
get einfaldlega ekki hlaupið
vegna meiðslanna. Það tryggir
hins vegar að ég ætla á næstu
mánuðum að kynna mér
margskonar hreyfingu, bæði úti
og inni. Það er tilhlökkunarefni
– utan þægindarammans.
MARGAR GÓÐAR LEIÐIR AÐ SAMA MARKMIÐI
Fjölbreytni er lykilatriði
Nú verður ekki hlaupið frá áskor-
ununum þótt engin verði hlaupin.
Pistill
Stefán Einar
Stefánsson
ses@mbl.is
ÞYNGD SKREFAFJÖLDI MATARÆÐI ÆFINGAR
92,9 kg
.... kg
.... kg
Upphaf:
Vika 1:
Vika 2:
.....
.....
.....
.....
.....
.....
0 klst.
... klst.
... klst.
HITAEININGAR
Prótein
...%
Kolvetni
...%
Fita
...%
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Veldu betri málningu
PALLAOLÍA
• Allround olían er efnisrík gæðaolía sem endist lengur
• Margir fallegir litir*
* Litur á palli EJLINGE