Morgunblaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 1. S E P T E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 213. tölublað 106. árgangur
FAGNAÐAR-
FUNDIR Í
AUSTURRÍKI
LOF MÉR AÐ
FALLA FÆR
GÓÐA DÓMA
FÆDDIST Í KÓSÓVÓ
OG FLUTTI TIL ÍS-
LANDS FIMM ÁRA
★★★★ 33 FJOLLA SHALA ÍÞRÓTTIRPÁLL PAMPICHLER 12
Loftslagsmálin í öndvegi
Ný aðgerðaáætlun kynnt í gær Skógræktin og Landgræðslan hafa hafið und-
irbúning Bann við nýskráningum bensín- og dísilbifreiða ekki á dagskrá í haust
skilaboða sem í henni felist fyrir bíla-
framleiðendur.
Að sögn Guðmundar Inga Guð-
brandssonar, umhverfis- og auðlinda-
ráðherra, verða ekki gerðar laga-
breytingar á komandi þingi vegna
þessarar aðgerðar, en sumum þeirra
hefur þegar verið hrint í framkvæmd,
t.d. ákveðnum ívilnunum fyrir lofts-
lagsvæna bíla. Von er á nokkrum
lagabreytingum í haust, t.d. er varða
hlutverk nýs sjóðs, Loftslagssjóðs.
María Jóna Magnúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Bílgreinasambandsins,
telur heppilegra að fella niður vöru-
gjöld en að banna nýskráningar bens-
ín- og dísilbíla.
6,8 milljörðum verður varið til lofts-
lagsmála á næstu fimm árum og meg-
ináherslan er að orkuskipti verði í
samgöngum og að átak verði gert í
kolefnisbindingu.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Skógræktin og Landgræðslan hafa
þegar hafið undirbúning vegna verk-
efna á næstu árum í tengslum við að-
gerðaáætlun í loftslagsmálum fyrir
árin 2018 til 2030 sem ríkisstjórnin
kynnti í gær. Í henni kemur m.a. fram
að bann verði lagt við nýskráningum
bensín- og dísilbifreiða árið 2030 og er
aðgerðin sögð mikilvæg vegna þeirra
Loftslagsmál
» Ríkisstjórnin kynnti að-
gerðaáætlun í loftslagsmálum
fyrir árin 2018-2030.
» Megináherslan er á orku-
skipti í samgöngum og átak í
kolefnisbindingu.
MBlásið til sóknar … »10
Margvíslegar minjar frá fyrri öldum, þar á með-
al mannvistarleifar frá landnámsöld, hafa komið
í ljós við forkönnun fornleifafræðinga við veginn
heim að Bessastöðum. Til stendur að breikka
veginn að forsetasetrinu og stækka bílastæðið
fyrir framan Bessastaðakirkju. Hugsanlegt er að
meðal minjanna sé grunnur hins sögufræga
stjörnuturns við Lambhús þar sem var stjörnu-
athugunarstöð í lok 18. aldar. »6
Morgunblaðið/Hari
Minjar frá landnámsöld
komu í ljós við BessastaðiHrun blasir við í loðdýrarækt á Ís-
landi, nema utanaðkomandi aðstoð
komi til. Samband íslenskra loð-
dýrabænda hefur átt í viðræðum
við stjórnvöld um möguleika á að-
stoð til að halda lífi í greininni.
Vegna þriggja magurra ára og sí-
fellt lækkandi verðs minkaskinna á
heimsmarkaði og hækkandi fram-
leiðslukostnaðar hér á landi er fjár-
hagsstaða loðdýrabænda orðin það
slæm að allir eru farnir að íhuga
stöðu sína, hvort þeir treysti sér til
að halda áfram eða hvort ráðlegt sé
að hætta. Útslagið gerir síðasta
uppboð ársins þar sem verðið fellur
enn. Niðurstaða ársins í heild er
20% verðlækkun frá síðasta ári.
Þekking glatast
„Það er búið að fjárfesta gífur-
lega í greininni, í búrum, húsum og
lífdýrum, og bændur hafa aflað sér
þekkingar og reynslu. Við erum
með aðra eða þriðju bestu fram-
leiðslu í heiminum. Sú þekking og
fjárfesting tapast öll ef þetta fer til
verri vegar,“ segir Einar Eðvald
Einarsson, formaður Sambands ís-
lenskra loðdýrabænda. Rökin eru
einnig þau að framleiðslan sé um-
hverfisvæn þar sem í fóðrið er not-
aður úrgangur frá matvælafram-
leiðslu sem annars þarf að urða
með ærnum kostnaði. »18
Leita eftir
aðstoð
ríkisins
Loðdýrabændur
að þrotum komnir
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Við hamarshögg 150 þúsund skinn
fóru frá Íslandi á uppboð í ár.
Eignarhaldsfélagið Hof hf., eigandi
IKEA á Íslandi, opnaði nýja 34.500
fermetra IKEA-verslun í Riga, höf-
uðborg Lettlands, hinn 30. ágúst síð-
astliðinn. Heildarfjárfesting vegna
nýju verslunarinnar er 50 milljónir
evra, jafnvirði 6,5 milljarða ís-
lenskra króna. Félagið á einnig og
rekur vinsæla 30 þúsund fermetra
IKEA-verslun í Vilnius í Litháen,
sem var opnuð árið 2013. Þá rekur
félagið 2.500 fermetra IKEA-útibú í
tveimur næststærstu borgum Lithá-
ens, Kaunas og Klaipeda, þar sem
fólk getur sótt vörur sem það kaupir
í versluninni í Vilnius. Ný IKEA-
netverslun verður jafnframt opnuð í
næsta mánuði í Litháen.
Jóhannes Rúnar Jóhannesson,
framkvæmdastjóri IKEA í Eystra-
saltslöndunum, segir í samtali við
Morgunblaðið að viðskiptavinir hafi
streymt í verslunina frá opnun. „Það
er ekki á hverjum degi sem al-
þjóðlegt vörumerki bætist hér inn á
markaðinn.“ »16 Stór Verslunin í Riga er 70% stærri en IKEA í Kauptúni í Garðabæ.
Íslensk IKEA-verslun opnuð í Riga
Undirbúningur er einnig hafinn
fyrir opnun verslunar í Eistlandi
Ótal dæmi um félagsleg und-
irboð og brotastarfsemi á vinnu-
markaði hafa komið til kasta stétt-
arfélaga innan Starfsgreina-
sambands Íslands. Nýlegt dæmi
snýst um mann sem holað var nið-
ur í húsnæði með mörgum öðrum
án þess að vera boðið upp á læsta
hirslu. Slæmt ástand var á sumum
öðrum íbúum, meðal annars vegna
neyslu fíkniefna, og taldi viðkom-
andi starfsmaður öryggi sínu ógn-
að. Starfsgreinasambandið vill að
stjórnvöld skeri upp herör gegn
slíkum brotum og öðrum, meðal
annars með því að gera stofnunum
sínum að vinna betur saman að
eftirliti. »14
Starfsmaður taldi
öryggi sínu ógnað