Morgunblaðið - 11.09.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2018
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR VW
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði
sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina
má flest allt um ástand bílsins og gæði.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Setning 149. þings Alþingis verður í
dag og hefst þingsetningarathöfnin
kl. 13.30 með guðsþjónustu í Dóm-
kirkjunni. Helgi Bernódusson,
skrifstofustjóri Alþingis, segir
starfsmenn Alþingis hafa haft mikið
að gera að undanförnu við undir-
búning þingsetningarinnar.
„Við erum vissulega búin að vera
önnum kafin að undanförnu. Það er
búið að þrífa allt alþingishúsið,
dytta að ýmsu og svo er auðvitað
alltaf heilmikill undirbúningur við
það að búa sig undir þessa athöfn á
morgun,“ sagði Helgi í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Helgi segir að starfsmenn hafi í
undirbúningnum hist reglulega og
yfirfarið langa minnislista sína um
hvað þyrfti að gera. „Auk þessa
höldum við alltaf fund með öllum
þeim sem að þessu koma, þ.e. lög-
reglunni, kirkjunni og ráðuneytum.
T.d. þarf að undirbúa gesta-
móttökuna mjög vel, en hér eru að
jafnaði allir sendiherrar erlendra
ríkja á Íslandi gestir við þingsetn-
inguna, fulltrúar Hæstaréttar Ís-
lands, ráðuneytisstjórar og fyrrver-
andi forsetar. Þannig að þetta er
heilmikill undirbúningur, auk þess
sem við erum samhliða þessu að
undirbúa og skipuleggja þinghaldið
fyrstu vikurnar,“ sagði Helgi og
bætti við: „En nú er allt klárt fyrir
morgundaginn.“
Forseti Íslands, biskup Íslands,
forseti Alþingis, ráðherrar og al-
þingismenn ganga í dag fylktu liði
til Dómkirkjunnar úr alþingishús-
inu. Séra Kristján Björnsson vígslu-
biskup prédikar og séra Sveinn Val-
geirsson, sóknarprestur í
Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari
ásamt biskupi Íslands, Agnesi M.
Sigurðardóttur. Að guðsþjónustu
lokinni verður gengið á ný til þing-
hússins.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Annir Starfsmenn Alþingis lögðu í gær lokahönd á undirbúninginn vegna setningar 149. þings Alþingis í dag.
Miklar annir verið á
Alþingi undanfarna daga
Unnið er þessar vikurnar að gerð hringtorgs
á Vesturlandsvegi ofan við Mosfellsbæ. Torg-
ið kemur í stað tvennra gatnamóta á þessum
slóðum, annars vegar þar sem er vegurinn að
iðnaðarhverfinu á Esjumelum og hins vegar
þar sem Álfsnesvegur er. Gatnamótin hafa
þótt hættuleg enda þarf að þvera Vest-
urlandsveg þegar farið er ýmist á eða af þess-
um afleggjurum.
Meðan á framkvæmdum stendur er umferð
á þessum slóðum beint um hjáleið þar sem er
50 km./ klst hámarkshraði. Það eru starfs-
menn PK-verks sem hafa þetta verkefni með
höndum. „Við tökum þetta með krafti og
stefnum á að hleypa umferð á torgið í nóv-
ember,“ segir Einar Már Magnússon, verk-
efnisstjóri Vegagerðarinnar. Hann bætir við
að í raun séu þessar framkvæmdir fyrsti
áfanginn í stóru verkefni, sem er heildstæð
uppbygging á Vesturlandsvegi frá Mos-
fellsbæ um Kjalarnes að Hvalfjarðargöngum.
Vegna slysahættu hefur verið mjög þrýst á
um úrbætur þar, sem segja má að nú séu
hafnar. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Öruggari leið með hringtorgi á Esjumelum
Þorsteinn Ásgrímsson
Sigurður Bogi Sævarsson
Faxaflóahafnir hafa lagt inn umsókn
hjá Reykjavíkurborg sem lýtur að
breytingum á deiliskipulagi Austur-
hafnar. Þar er lagt til að bætt verði
við fyrir spenni- og rafdreifistöð auk
vaktaðstöðu á Faxagarði, sem er á
milli Hörpu og þeirra bygginga sem
er verið að reisa á Hafnartorgi.
Í breytingartillögu að deiliskipu-
lagi sem unnið er af Batteríi arki-
tektum er gert ráð fyrir að bygg-
ingin verði 250 fermetrar að
flatarmáli, þar verði um 150 fermetr-
ar undirlagðir spennistöð, auk að-
stöðu fyrir hafnargæslu og aðgangs-
stýringu – svo og mögulegt afdrep
fyrir farþega, til dæmis af skemmti-
ferðaskipum. Fram kemur að gerðar
verða miklar kröfur um útlit bygg-
ingarinnar og efnisval.
Borgarráð samþykkti að auglýsa
tillöguna um breytingu á deiliskipu-
lagi, en áður hafði skipulags- og sam-
gönguráð samþykkt þessa breyt-
ingu.
Vilja spennistöð
nærri Hörpunni
Breytingar á skipulagi auglýstar