Morgunblaðið - 11.09.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2018
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Björn Leifsson, eigandi og fram-
kvæmdastjóri Lauga ehf. sem eiga
og reka 14 World Class-líkams-
ræktarstöðvar
um land allt, seg-
ist ekki sáttur
við orð blogg-
arans Guðjóns
Svanssonar hér í
Morgunblaðinu í
gær þar sem
Guðjón sagði
m.a.: „Septem-
ber og janúar
eru þeir mánuðir
sem fólk stekkur
til og kaupir sér árskort í líkams-
rækt. Stóru stöðvarnar eru með
góð tilboð í gangi á þessum tíma,
sérstaklega á árskortum.“
Og síðar sagði Guðjón: „Stöðv-
ar með stór tilboð á þessum tíma
árs gera beinlínis ráð fyrir að
meirihluti þeirra sem kaupa árs-
kort mæti bara fyrstu vikurnar, ef
það, og láti svo ekki sjá sig aftur
fyrr en eftir ár. Það er ekkert
leyndarmál.“
„Við í World Class höfum aldr-
ei verið með tilboð á árskortum í
byrjun september og þannig stand-
ast fullyrðingar Guðjóns ekki,“
sagði Björn í samtali við Morgun-
blaðið í gær og bætti við: „Við höf-
um ekki hækkað gjöldin hjá World
Class í fjögur og hálft ár. Við leggj-
um allt upp úr því að selja áskriftir
í stöðvar okkar, þar sem áskrifand-
inn getur losnað eftir tvo mánuði,
og erum ekki með nein sérstök til-
boð í gangi,“ sagði Björn.
Hann bendir á að World Class
reki langstærstu líkamsræktar-
stöðvar landsins og leggur áherslu
á að nauðsynlegt sé að leiðrétta
rangfærslur eins og þær sem hann
telur að Guðjón Svansson hafi
gerst sekur um hér í Morgun-
blaðinu í gær.
Áherslan á áskrift-
ir ekki tilboð
Gjöld ekki hækkað í fjögur og hálft ár
Björn
Leifsson
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Rannsókn lögreglu á stófelldum
þjófnaði á sígarettum úr Fríhöfn-
inni í Leifsstöð er langt kominn. Að
undanförnu hafa fjórir karlar setið í
gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á
málavöxtum, en í tilkynningu Lög-
reglunnar á Suðurnesjum er þjófn-
aðurinn sagður hafa verið stórfelld-
ur og skipulagður. Er talið að alls
hafi verið stolið um 900 kartonum
af sígarettum. Nokkuð af þeim hef-
ur endurheimst, en í tengslum við
rannsóknina fór lögreglan á Suð-
urnesjum í húsleitir á þremur stöð-
um á höfuðborgarsvæðinu, að feng-
inni heimild, og fann þýfið, þar á
meðal ferðatöskur fullar af sígar-
ettum.
Mennirnir sem stálu sígarettun-
um höfðu þann hátt á að kaupa
flugmiða og skrá sig í flug án þess
að fara nokkru sinni. Fóru svo í
Fríhöfnina og gengu skipulega til
verks og settu kartonin í ferðatösk-
ur sem þeir voru með. Lögregla
fann í fórum eins mannanna pönt-
unarlista þar sem væntanlegir
kaupendur höfðu pantað sér sígar-
ettur eftir tegundum.
Við skýrslutökur kom í ljós að
a.m.k. einhverjir mannanna höfðu
stundað stórfellt smygl á sígarett-
um til Íslands. Tveir umræddra
manna hafa áður komið við sögu
lögreglu. Þrír hinna handteknu hafa
viðurkennt aðild sína að málinu.
Stórfelldur sígarettustuldur
Fylltu ferðatöskur Stálu 900 kartonum Pöntunarlistar
Árleg Ástarvika – kærleiksrík menn-
ingarvika – er hafin í Bolungarvík.
Setningin var á varnargarðinum
Verði fyrir ofan Bolungarvík. Þar
var kveikt á rauðum blysum og ást-
fangin pör fengu ástarlása til að inn-
sigla ást sína en hægt er að festa lás-
ana við grindverkið á varnargarð-
inum. Þá faðmaðist fólk og kysstist
af þessu tilefni, að því er fram kemur
á vef Bolungarvíkur.
Hver ástarviðburðurinn rekur
annan í vikunni. Tíu bestu ástarsög-
ur allra tíma eru á dagskrá í bóka-
safninu alla daga klukkan 14. Á
morgun verður ástarvikuganga í
surtarbrandsnámuna í Syðridal.
Ástarvikunni í Bolungarvík lýkur
á laugardag. Þar ramba réttir í Bol-
ungarvík inn í dagskrána, samflot
verður í sundlauginni og ástarfiskur
verður á matseðlinum í Einarshúsi.
Ýmislegt annað er á dagskránni
sem finna má í heild á vef Bolungar-
víkurkaupstaðar, bolungarvik.is.
Ástfangnir fengu
lása á Ástarviku
Kærleiksrík dagskrá alla vikuna
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bolungarvík Ástin er við völd í
Víkinni alla þessa viku.
Tveir karlmenn, annar á þrítugs-
aldri og hinn á fertugsaldri, hafa
verið ákærðir fyrir embætti hér-
aðssaksóknara fyrir að hafa veist
að karlmanni með ofbeldi og hót-
unum á bifreiðastæði bak við Næt-
ursöluna við Strandgötu á Akur-
eyri í október í fyrra.
Er annar hinna ákærðu ákærður
fyrir sérstaklega hættulega lík-
amsárás með því að hafa slegið
manninn með flösku í höfuðið, kýlt
hann ítrekað í andlit og höfuð og
sparkaði í fótleggi hans.
Þá hótuðu báðir ákærðu mann-
inum að drepa hann „og grafa í
holu úti í sveit“ auk þess að „búta
niður kærustu hans, skera hann á
háls og stinga hníf upp í heila
hans“, eins og það er orðað í
ákærunni. Maðurinn hlaut rúm-
lega eins sentimetra skurð í hár-
svörð, mar vinstra megin á utan-
verðum hálsi, mar utanvert á
vinstri kjálka og hrufl vinstra
megin við neðri vör.
Að lokum tóku hinir ákærðu
úlpu, síma og 4.000 krónur í
reiðufé af manninum.
Að auki er annar mannanna
ákærður fyrir að hafa tekið vega-
bréf tveggja einstaklinga og haft
þau á brott með sér.
Er farið fram á að mennirnir
verði báðir dæmdir til refsingar
og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Hótuðu að stinga
hníf í heila manns
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3
Sæbjúgu innihalda mikið kollagen og yfir 50
tegundir af næringarefnum sem hafa öll mjög
jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi
mannslíkamans
ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLA: Framleiðandi sæbjúgna er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fást á arcticstar.is
.
Arctic Star sæbjúgnahylki fást í flestum apótekum og heilsubúðum og í Hagkaupum.
Arctic Star Sæbjúgnahylki
Sæbjúgu
eru þekkt fyrir:
• Hátt prótíninnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið og mótstöðu
líkamans gegn ýmsum sjúkdómum
• Að auka blóðflæði sem minnkar líkur á blóðtappa
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla
að myndun húðpróteins
og insúlíns
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Bolur
Kr. 6.900
Str. M-XXXL