Morgunblaðið - 11.09.2018, Page 16
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Eignarhaldsfélagið Hof hf., eigandi
IKEA á Íslandi, opnaði nýja 34.500
fermetra IKEA verslun í Riga, höf-
uðborg Lettlands, þann 30. ágúst síð-
astliðinn. Til samanburðar má geta
þess að verslun IKEA í Kauptúni í
Garðabæ er 20.500 m². Heildarfjár-
festing vegna nýju verslunarinnar er
50 milljónir evra, jafnvirði 6,5 millj-
arða íslenskra króna. Félagið á og
rekur einnig vinsæla 30.000 m² IKEA
verslun í Vilnius í Litháen, sem móð-
urfélag IKEA valdi bestu IKEA búð í
heimi árið 2017.
Mjög góðar viðtökur
Jóhannes Rúnar Jóhannesson,
framkvæmdastjóri IKEA í Eystra-
saltslöndunum, segir í samtali við
Morgunblaðið að Lettar hafi tekið
versluninni mjög vel í alla staði, og
viðskiptavinir hafi streymt í hana frá
opnun. „Við hófum byggingu versl-
unarinnar fyrir rúmlega einu og hálfu
ári,“ segir Jóhannes.
Aðspurður segir hann að stærð
verslunarinnar sé ákvörðuð í sam-
ræmi við ákveðið reiknilíkan, þar sem
stuðst er við ýmsar breytur eins og
kaupgetu, vænt flæði gesta og vænta
tíðni heimsókna.
Spurður um samanburð við aðra
markaði, segir Jóhannes að fólk í
Eystrasaltslöndunum hafi almennt
minni tekjur og búi í minna húsnæði
en fólk í Evrópu að jafnaði, og versl-
unin taki mið af því. „Vöruúrvalið
verður þó í grunninn það sama og
gengur og gerist í IKEA búðum um
allan heim. Við byrjum með á bilinu
8–9.000 vöruliði, en fjölgum þeim svo
fljótlega upp í það sama og annars
staðar.“
Spurður nánar um viðtökur heima-
manna við versluninni, segir Jóhann-
es að fólk í Lettlandi þekki IKEA
vörumerkið ágætlega eftir að IKEA
opnaði í Vilnius fyrir fimm árum.
„Fólk hefur átt möguleika á að fara
þangað og versla síðastliðin fimm ár.
Vörumerkið hefur því fest sig í sessi,
og það sama má segja um Eistland.
Fjarlægðin milli landanna er ekkert
óyfirstíganleg. Það eru t.d. um 300
km. á milli Vilnius og Riga. Við erum
einnig mjög sýnileg á netinu. Þá
dreifðum við nýja vörulistanum okk-
ar inn á rúmlega 400 þúsund heimili í
Riga í aðdraganda þessarar opnun-
ar.“
Kauphegðun breytist
Jóhannes segir að mikil spenna
ríki í Riga fyrir nýju versluninni.
„Það er ekki á hverjum degi sem al-
þjóðlegt vörumerki bætist hér inn á
markaðinn. Hér er meira um innlend
vörumerki í verslun. HM tískuvöru-
verslunin kom til dæmis hingað fyrir
nokkrum árum síðan, og fjölgun al-
þjóðlegra vörumerkja hefur áhrif á
tískuna og kauphegðun fólks.“
Hann segir að fólk í Lettlandi sæki
gjarnan mikið í stórar verslanamið-
stöðvar, og finnist því gott að koma í
IKEA þar sem boðið er upp á „allt
undir sama þaki“.
Nýja verslunin er að sögn Jóhann-
esar í útjaðri Riga. „Samgöngur hér
eru með ágætasta móti, og við erum
nálægt þéttasta byggðakjarnanum í
Riga, sem er ein af meginástæðunum
fyrir staðarvalinu. Við vildum að
verslunin yrði sýnileg, aðgengi væri
gott og nóg af bílastæðum, en við er-
um með samtals 1.250 stæði. Við trú-
um því að verslunin muni svo laða
aðra smásöluaðila inn á svæðið í
framtíðinni, eins og gerst hefur í Vil-
nius.“
Verslunin í Riga er skipulögð
þannig að á efri hæð er 6 þúsund fer-
metra húsgagnadeild, og á neðri hæð
er jafn stór smávörudeild. Veitinga-
staðurinn tekur yfir 500 manns í sæti.
Til samanburðar eru verslunarhæð-
irnar á Íslandi og í Vilnius, að sögn
Jóhannesar, 4.500 fermetrar annars-
vegar og 5.500 fermetrar hinsvegar.
„Verslunarrýmin í Riga eru eins stór
og þau gerast stærst hjá IKEA al-
þjóðlega.“
Nú þegar hafa 300 manns verið
ráðin til starfa í Riga. „Það hefur
gengið mjög vel að ráða fólk. Við
bjóðum fjölbreytt störf og þykjum
spennandi kostur á vinnumarkaðn-
um.“
Jóhannes segir að opnun IKEA
hafi haft jákvæð áhrif á samfélagið
hvað atvinnuþróun varðar. „Þessi
lönd glíma við fólksflótta, meðal ann-
ars til Íslands, þannig að jaðrar við
atgervisflótta. Þess er farið að gæta á
innviðunum hér. Þessvegna er gott
að geta komið og lagt lið við að fá fólk
til baka.
Við tókum þann pól í hæðina að
ráða bara fólk frá löndunum sjálfum,
treysta á það og þjálfa það upp.
Menntunarstig er hátt í Eystrasalts-
löndunum öllum, eitthvert það hæsta
í Evrópu, og við höfum verið að fá
mjög gott fólk til liðs við okkur.“
Eistland næst á dagskrá
Spurður um næstu verkefni, segir
Jóhannes að opnun IKEA-verslunar
í Eistlandi sé næst á dagskrá.
Að auki segir hann að bæst hafi við
tvö svokölluð „Pickup-Point“ útibú,
þar sem menn geta sótt vörur, í hin-
um tveimur stóru borgunum í Lithá-
en, Kaunas og Klaipeda. „Þetta eru
2.500 fermetra útibú, sem skiptast í
þúsund fermetra verslanir og 1.500
fermetra vöruafhendingarsvæði. Þá
stækkuðum við verslunina í Vilnius
árið 2017.“
Næst á dagskrá í Litháen er svo
netverslun, sem verður opnuð í
næsta mánuði, að sögn Jóhannesar.
Eigendur IKEA á Íslandi
opna risaverslun í Riga
Mikil aðsókn Raðir mynduðust þegar nýja IKEA-verslunin var opnuð í Riga í Lettlandi nú á dögunum.
Verslunin er 70% stærri en IKEA í Kauptúni í Garðabæ Kostar 6,5 milljarða
Stór verslun
» 300 starfsmenn
» Verslunin kostaði 6,5 millj-
arða króna
» 1.250 bílastæði
» 500 manna veitingastaður
» Ný netverslun í Vilnius
» Stefna næst á opnun IKEA-
verslunar í Eistlandi
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2018
MANDUCA
BURÐARPOKINN
Manduca burðarpokinn er hannaður með
það markmið að leiðarljósi að barn geti
viðhaldið M-stellingu fóta og mjaðma.
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is bambus.is
Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Það voru aðeins HB Grandi og Ice-
landair Group sem hækkuðu í við-
skiptum í Kauphöll Íslands í gær. Þann-
ig hækkuðu bréf HB Granda um 2,25%
í 17,8 milljóna króna viðskiptum. Bréf
Icelandair hækkuðu um tæp 1,5% í
35,5 milljóna viðskiptum.
Mest lækkuðu hins vegar bréf
Haga eða um 2,39% í 83,9 milljóna
króna viðskiptum. Fast á hæla þess
komu svo bréf N1 og lækkuðu þau um
2,38%.
Önnur félög sem lækkuðu um meira
en 2% voru VÍS en þar á bæ nam lækk-
unin 2,22%, Reginn, sem lækkaði um
2,11%, og Eik fasteignafélag, sem lækk-
aði um 2,04%.
Aðeins tvö félög hækk-
uðu í Kauphöll Íslands
11. september 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 111.04 111.58 111.31
Sterlingspund 144.11 144.81 144.46
Kanadadalur 84.57 85.07 84.82
Dönsk króna 17.315 17.417 17.366
Norsk króna 13.19 13.268 13.229
Sænsk króna 12.221 12.293 12.257
Svissn. franki 115.03 115.67 115.35
Japanskt jen 1.002 1.0078 1.0049
SDR 155.38 156.3 155.84
Evra 129.14 129.86 129.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 153.4368
Hrávöruverð
Gull 1200.75 ($/únsa)
Ál 2028.0 ($/tonn) LME
Hráolía 76.69 ($/fatið) Brent
● Kanadíska orkufyrirtækið Energy Co-
Invest hefur keypt Green Energy Ice-
land, ásamt tækni- og hugverkarétt-
indum móðurfélags þess, Green Energy
Group. Síðastnefnda félagið hefur þró-
að og selt jarðvarmastöðvar sem
byggðar eru á forhönnuðum einingum.
Það hefur nú þegar afhent fimmtán
svokallaðar holutoppsstöðvar í Kenía.
Það byggir nú jarðvarmastöð í Bjarnar-
flagi fyrir Landsvirkjun.
Green Energy Iceland tapaði 74,5
milljónum í fyrra, samanborið við 61,1
milljónar hagnað árið 2016. Rekstrar-
tekjur þess árið 2017 námu 460 millj-
ónum króna, samanborið við 720 millj-
ónir 2016.
Kanadískt félag kaupir
Green Energy Iceland
STUTT
Icelandair bætir við nýjum brottfarartímum frá Kefla-
víkurflugvelli frá og með maímánuði 2019. Þannig verður
boðið upp á flug til borga í Evrópu kl. 10:30 á morgnana
og til borga í Norður-Ameríku klukkan 20:00 á kvöldin.
Verða þessir flugtímar hrein viðbót við tengitíma sem nú
þegar er boðið upp á snemma morguns og síðdegis.
Að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair
Group, er hið aukna framboð hluti af áætlunum um fram-
tíðarvöxt félagsins. Þá muni það auka þægindi og sveigj-
anleika viðskiptavina þegar kemur að því að velja brott-
farartíma frá landinu. Þá er breytingin einnig sögð
tengjast endurnýjun á flugflota Icelandair en félagið tek-
ur þessi misserin í notkun nýjar Boeing 737 MAX-vélar.
Á þessum tímapunkti liggur ekki fyrir hvort félagið muni
bæta við nýjum áfangastöðum en mat á þeim möguleika
stendur nú yfir.
Í nýju tengibönkunum, en það eru brottfarartímarnir
nefndir, verður framboð ekki eins mikið og á fyrri tengi-
bönkum. Fyrst í stað verður boðið upp á nýjungina í flugi
til Frankfurt, München, Amsterdam, Kaupmannahafnar,
Stokkhólms, Óslóar, Parísar, Brussel, Berlínar, Ham-
borgar og Zürich. Þá verður flogið til borganna Boston,
New York, Washington, Chicago, Minneapolis og To-
ronto vestanhafs kl. 20:00 á kvöldin.
Icelandair eykur framboðið
Hefja flug frá Íslandi á
nýjum tíma dagsins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýir flugtímar Icelandair hyggst nú auka við þjónustu.