Morgunblaðið - 11.09.2018, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 11.09.2018, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2018 ✝ Valdís Guð-mundsdóttir fæddist að Þor- grímsstöðum Vatnsnesi 2. júní 1945. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Ási, Hvera- gerði, 21. ágúst 2018. Foreldrar henn- ar voru Þorbjörg Valdimarsdóttir, f. 13.7. 1916, d. 25.6. 1985, og Guðmundur B. Jóhannesson, f. 30.5. 1895, d. 10.9. 1983. Valdís giftist Jóni Guð- mundssyni 1978 og keyptu þau fljót- lega íbúð í Spóa- hólum 4, Reykja- vík. Árið 1988 fluttu þau sig svo til Hveragerðis og bjuggu þar til ævi- loka. Þau eignuðust tvo drengi, Guð- mund, f. 4.12. 1979, og Guðna Óskar, f. 23.7. 1981, og lifa þeir foreldra sína. Útför Valdísar hefur farið fram í kyrrþey að hennar ósk. Allt er á reki – allt er örlög- um háð. Þessi orð Snorra Hjartarson- ar eiga vel við um lífshlaup Val- dísar systur minnar. Hún var heilbrigt og fallegt barn, elsk að foreldrum sínum, systkinum og bernskuheimili á Þorgrímsstöðum og hún varð strax afar dugleg við öll störf sem vinna þarf á stóru sveita- heimili. En þegar Valdís var um tvítugt fór hún að fá alvar- leg höfuðveikiköst. Læknum tókst hvorki að greina ástæður þessara kasta né ráða bót á þeim. Þarna var kominn sá ör- lagaskuggi sem fylgdi henni ævilangt og skerti öll hennar lífsgæði. Á æskuárum vann Valdís að búi foreldra okkar og var þeim styrk stoð. Síðar lauk hún sjúkraliðaprófi, þrátt fyrir veik- indi sín, og starfaði bæði á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga og á Landspítalanum, alltaf vel látin af sínu samstarfsfólki. Í Reykjavík kynntist hún manni sínum, Jóni Guðmundssyni, og saman eignuðust þau tvo drengi, Guðmund og Guðna Óskar. Eftir það leyfði heilsa hennar ekki vinnu utan heim- ilis, en strákunum sínum sinnti hún af fremsta megni. Þegar drengirnir voru á barnsaldri fluttust þau Jón í gott hús í Hveragerði. Með þeim í heimili var mágur hennar, Guðni Þor- valdur. Hann var alltaf einn af fjöl- skyldunni, góður vinur Valdísar og þeim öllum mikil hjálpar- hella. Jón var henni og strák- unum traustur bakhjarl og í sameiningu tókst þeim að halda heimili þar sem hlýja og glettni voru í fyrirrúmi. Sérstaklega er mér minnisstætt hve Gummi og Guðni sýndu móður sinni ávallt mikla ást og kærleika. Síðustu árin hefur Valdís dvalið á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði. Valdís bar sérstakan per- sónuleika. Hún var minnug með afbrigðum, kunni ógrynni af vísum og hún var trölltrygg. Ef hún hafði myndað sér skoð- un á mönnum og málefnum varð því ekki hnikað. Flestum lagði hún gott til, þótt und- antekningar kæmu fyrir, og ekki hvarflar að mér að hún hafi nokkru sinni kosið annan flokk en Sjálfstæðisflokkinn. Sem barni var henni umhugað um allt sem lífsanda dró. Það gat verið óþægilegt í sveit ef hvorki mátti slátra lambi eða kálfi, né neitt sjást sem minnti á þá athöfn. Foreldrar okkar sýndu þessu skilning svo sem framast mátti. Hún sóttist mjög eftir að fylgja föður okkar úti við og þurfti að gæta þess að hún stryki ekki á eftir hon- um. Ég á í huga mér minningu af lítilli, ljóshærðri stelpuhnátu sem hljóp mjög hratt á eftir manni sem gekk löngum, jöfn- um skrefum. Hún náði honum frammi á Litla-Bala. Ekki efa ég að pabbi hafi tekið vel á móti Völu sinni og leitt hana heim með sinni styrku hönd. Á milli þeirra tveggja var alltaf sterkur þráður. Þegar Valdís varð fullorðin fékk hún þetta sama göngulag. Gekk löngum, jöfnum skrefum. Allt er á reki – allt er örlög- um háð. – Lífsgöngu Valdísar systur minnar er lokið. Hjart- anlega þakka ég henni alla okk- ar samleið og við Hólmgeir sendum Gumma og Guðna Ósk- ari innilegar samúðarkveðjur. Jónína Guðmundsdóttir. Fallin er frá ástkær systir mín, Valdís Guðmundsdóttir frá Þorgrímsstöðum, Vatnsnesi. Hún fæddist þriðja í röð okkar sex systkina, sem komumst til vits og ára. Ég var svo láns- samur að eiga nána samleið með henni fyrri hluta okkar ævi. Var það fyrst á búi foreldra okkar á Vatnsnesinu allt fram til ársins 1970. Lá þá leiðin suður til höfuðborgarinnar til frekara náms og vinnu. Deild- um við oft húsnæði og leigðum saman íbúðir meðan bæði voru einhleyp. Um svipað leyti eign- uðumst við svo okkar eigin fjöl- skyldur og skildu þá leiðir. Þó var áfram alltaf gott samband okkar á milli og drengirnir hennar tveir og dætur mínar tvær urðu afar náin enda á líku reki. Til vinnu var Valdís alger hamhleypa meðan heilsan var í lagi. Kom það strax fram við hin erfiðu og krefjandi sveita- störf og seinna er hún starfaði í sínu fagi sem sjúkraliði hjá Landsspítalanum. Heiðarlegri, duglegri, samviskusamari og þrautseigari manneskju hef ég varla hitt á minni ævi. Það, ásamt takmarkalausri trú- mennsku og tryggð í garð sinna nánustu ættingja og vina, gerði hana að mikilli mannkosta- manneskju í mínum huga. Yf- irleitt lét hún annarra þarfir ganga fyrir, en hennar eigin máttu sitja á hakanum. Um eða upp úr tvítugu fór að bera á þeim hörmulega sjúk- dómi sem fylgdi henni meira og minna alla hennar ævi. Voru það illvíg flogaköst sem aldrei náðist að lækna og var þó ým- islegt reynt í þeim efnum. Má segja að þó oft hafi sæmilega til tekist og hún átt sín góðu tímabil á milli, virtist fyrr eða síðar sækja í sama farið. Mátti hún því búa við þennan vágest allt til æviloka. Öllu þessu tók hún með sönnu jafnaðargeði og ekki var barlómi né kvörtunum fyrir að fara. Valdís hafði alla tíð yndi af lögum og ljóðum. Á yngri árum kunni hún gríðarmikið af vísum og söngtextum ásamt lögum við þá. Hafði hún einstaklega gam- an af því að taka gítarinn og syngja nokkur vinsæl lög með Dísu systur og eða öðrum vin- konum. En allt var þetta til heimabrúks og ekki borið á torg, frekar en annað í hennar lífi. Árið 1988 flutti fjölskyldan til Hveragerðis og átti Valdís sitt heimili þar til æviloka. Meðan heilsan leyfði bjó fjöl- skyldan að Kambahrauni 21 en seinustu æviárin átti hún skjól á Ási Hveragerði. Virtist hún í lokin vera sátt við sitt hlut- skipti og vil ég færa öllu starfs- fólki þar þakklæti fyrir góða umönnun. Að lokum viljum við Sirrí votta kærum frændum mínum, þeim Gumma og Guðna Óskari, okkar dýpstu samúð. Gengin er góð manneskja. Elsku Valdís. Takk fyrir allt. Guðmundur. Mig langar að minnast henn- ar systur minnar í fáum orðum. Valdís Guðmundsdóttir var fædd og ólst upp á Þorgríms- stöðum í Vestur Húnavatns- sýslu, þriðja elst af 6 systk- inum. Þar er fallegt um að litast grösugur dalur, snarbrött fjöll og hamrabelti í kring. Þar getur náttúran líka orðið manninum óblíð og erfið við- ureignar. Eins og gefur að skilja var sveitavinnan ekki létt á þeim árum og ekki til þau tæki og tól sem sjálfsögð þykja í dag til slíkra verka. Þar var ekki einu sinni rafmagn til staðar. Valdís var alveg sérstök dugnaðarmanneskja og ham- hleypa til allra starfa. Vel gef- in, handlagin og las mikið. Glaðlynd og hafði mikið yndi af söng og tónlist og samdi sjálf lög. Eins átti hún létt með að setja saman vísur og ljóð. Hún var traustur vinur vina sinna, en seintekin og ekki allra. Gat verið þrjósk alveg með ein- dæmum og stóð jafnan fast á sínum skoðunum. Sjaldnast var gefist upp við að leysa úr verkefnum sem fyr- ir lágu án þess að biðja um hjálp. Ég held að ég hafi aldrei kynnst eins óeigingjarnri manneskju og henni. Alltaf var henni efst í huga að hjálpa og liðsinna öðrum. Því skyldi eng- an undra að hún valdi að fara í sjúkraliðanám til að hjúkra og sinna öðrum. Við það starfaði hún eins lengi og heilsan leyfði. Ævi hennar var enginn dans á rósum. Hún greindist með flogaveiki ung að árum og átti alla sína ævi við þann sjúkdóm að stríða. Hún giftist góðum manni, Jóni Guðmundssyni, bif- reiðarstjóra og sölumanni, sem var ættaður úr Biskupstungum. Hann reyndist henni alltaf vel og áttu þau sitt heimili að Kambahrauni 21 í Hveragerði til fjölda ára, en Jón lést fyrir 4 árum. Saman eignuðust þau 2 syni þá Guðmund og Guðna Óskar Jónssyni, sem öll hennar hugsun snerist um. Þeir hafa líka reynst mömmu sinni með eindæmum vel, með umhyggjusemi og natni í henn- ar veikindum. Síðustu árin var hún vistmaður á Hjúkrunar- heimilinu Ási í Hveragerði og þar lést hún aðfaranótt þriðju- dagsins 21. ágúst s.l. Hinu góða fólki sem starfar á Ási ber að þakka fyrir hjúkrun og alla að- stoð sem henni var veitt. Elsku Gummi og Guðni Það er alltaf sárt að missa sína nán- ustu, en kannski er það smá huggun harmi gegn að ég held að hún mamma ykkar hafi verið orðin södd lífdaga og hvíldinni fegin. Við Kalli sendum ykkur inni- legar samúðarkveðjur. Hvíl í friði elsku Valdís. Þín systir Dísa. Vigdís Auður Guðmundsdóttir Elskuleg föðursystir okkar er fallin frá. Hugsað til baka erum við systur svo þakklátar fyrir elju foreldra okkar að halda svona nánu sambandi við Valdísi og Nonna, sérstaklega eftir að þau fluttu með strák- ana sína í Kambahraunið í Hveragerði. Í minningunni munum við nefnilega ekki eftir mótbárum eða afsökunum um tímaleysi sem hindraði okkur í að renna austur fyrir fjall og hitta frændur okkar. Þvert á móti munum við eftir miklum sam- göngum og tíðum heimsóknum til fjölskyldunnar sem var stór hluti af okkar æsku og gerði það að verkum að mikil nánd og kærleikur ríkti á milli fjöl- skyldnanna beggja. Eins og tíðkaðist á þessum tíma gerð- um við sjaldnast boð á undan komu okkar í Kambahraunið. Við birtumst bara þegar okkur datt í hug að renna yfir heiðina í heimsókn. Aldrei munum við þó eftir að hafa hitt illa á eða á óhentugum tíma. Við vorum varla komin inn fyrir forstofu- dyr þegar Valdís var komin á bak við eldhúsbekkinn til þess að smyrja brauð. Það er okkur systrum minnisstætt að hún skar alltaf brauðið á þverveg- inn, oftast voru tvær til þrjár tegundir af áleggi og síðan rað- aði hún þeim fallega á disk ásamt bakarísbakkelsi sem rann ljúft niður. Er við systur höfðum aldur til fórum við stundum sjálfar með rútunni í Hveragerði til þess að vera hjá frændum okk- ar og það var sama dekrið þá og áður; ekki skyldi okkur skorta næringu né umhyggju. Hluti af jólahefðinni hjá okk- ur systrum var að heimsækja Kambahraunsfjölskylduna á að- fangadagsmorgnun, við með pabba austur fyrir fjall þar sem við sátum og spjölluðum, borð- uðum konfekt og pældum í innihaldi jólagjafanna. Á sumr- in ferðuðumst við fjölskyldurn- ar saman um landið, þá sér- staklega í Þjórsárdalinn sem ávallt var skemmtilegur tími. Við frændsystkinin að leika okkur í náttúrunni, heimsækja Björn bónda og spila fótbolta. Vel var hugsað um okkur í hjól- hýsinu hjá Valdísi og Nonna – ýmist við að spila, spjalla eða borða. Valdís frænka var einkar hlédræg og umhyggjusöm kona. Hún var áhugasöm um heilsu og líf annarra í stórfjöl- skyldunni og vildi fylgjast vel með gengi allra. Tónlist var alltaf stór hluti af lífi systk- inanna á Vatnsnesinu í þeirra æsku og spilaði Valdís gjarnan á gítar í gamla daga. Það var því sérstaklega ánægjulegt þegar þrjú af systk- inunum sex gáfu út geisladisk með frumsömdum lögum árið 2002 en á þeim diski á Valdís þrjú frumsamin lög. Valdís frænka glímdi við veikindi sem höfðu mismikil áhrif á hennar líf. Alltaf var hún þó söm við sig og naut líðandi stundar með það sem hún hafði hverju sinni. Henni leið afskaplega vel í Kambahrauninu og virtist alltaf ánægð með sitt. Eins leið henni ofboðslega vel í sveitinni og er það eflaust hluti af því að henni leið vel í náttúrunni í Þjórs- árdalnum á sumrin. Valdísi þótti auðsjáanlega vænt um fjölskylduna sína. Fjölskyldan var náin og vænt- umþykjan mikil enda strák- arnir hennar einkar umhyggju- samir við mömmu sína og sinntu henni af alúð allt fram á lokastundu. Elsku Gummi og Guðni, missir ykkar er mikill og við vottum ykkur okkar dýpstu samúð á þessum erfiðu tímum. Megi allt gott í veröldinni um- vefja ykkur, elsku frændur. Góðum mönnum gefin var, sú glögga eftirtekt. Að finna líka fegurð þar, sem flest er hversdagslegt. (Jóhanna Kristjánsdóttir frá Kirkjubóli) Sofðu vel elsku frænka. Takk fyrir allt og allt. Eyrún Unnur og Guðrún Björg Guðmundsdætur. Valdís Guðmundsdóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINN SNORRASON hæstaréttarlögmaður, andaðist á heimili sínu mánudaginn 3. september. Útför hans verður gerð frá Neskirkju miðvikudaginn 12. september klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Ellen Snorrason Helga Sveinsdóttir Sebah Alain Sebah Regína Sveinsdóttir Jóhann Friðbjörnsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HÓLMFRÍÐUR GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR, lést aðfaranótt laugardagsins 8. september á líknardeild Landspítalans eftir stutt en erfið veikindi. Útför verður frá Langholtskirkju föstudaginn 14. september klukkan 13. Írena Dögg Einarsd. McCabe Charles Edward McCabe Ingibjörg Ósk Einarsdóttir Kjartan Örn Júlíusson Karl Óttar Einarsson Halldóra M. Gunnarsdóttir Jón Karl Einarsson Þórunn Anna Arnbjörnsdóttir og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GRÉTA SIGFÚSDÓTTIR, Sunnubraut 2, Þorlákshöfn, lést á gjörgæsludeild Landspítalans 5. september. Útför hennar fer fram frá Þorlákshafnarkirkju föstudaginn 14. september klukkan 14. Sigurður Z. Skúlason Skúli Sigurðsson Hjördís Svavarsdóttir Svanhildur Sigurðardóttir Sævar Sigursteinsson Halldór Sigurðsson Hugrún Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elsku móðursystir okkar, KRISTÍN HULDA ÞÓR, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold fimmtudaginn 6. september. Útförin verður auglýst síðar. Jón Þór Gunnarsson Gróa Gunnarsdóttir Gunnar Gunnarsson Jóhanna Gunnarsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN JÓHANNSDÓTTIR, Víðilundi 24, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 7. september. Útförin fer fram í kyrrþey. Heiða Björk Jónsdóttir Hafþór Jónasson Óttar Strand Jónsson Þorbjörg Björnsdóttir Óðinn Jónsson Gerður Róbertsdóttir Pétur Örn Jónsson Guðrún Ragnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.