Morgunblaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2018 25 ✝ Gunnar HörðurGarðarsson fæddist á Sauðár- króki 24. mars 1932. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 4. sept- ember 2018. Foreldrar hans voru Garðar Hauk- ur Hansen, f. á Sauðárkróki 12. júní 1911, d. 30. október 1982, og Sigríður Ingi- björg Ámundadóttir, f. í Dalkoti 20. september 1907, d. 26. júní 1985. Eiginkona Gunnars var Ingi- björg Kristinsdóttir, f. í Reykja- vík 23.10. 1933, d. 15.6. 2010. Eft- irlifandi sambýliskona Gunnars er Elísabet Guðrún Jensdóttir. Alsystkin Gunnars eru: Stein- grímur, látinn, Friðrik, látinn, Elínborg Dröfn, látin, Sveinn, f. 1934, Steinunn Björk, látin. Hálf- bróðir, samfeðra, Haukur Han- sen, látinn. Börn Gunnars Harðar og Ingi- bjargar eru: Kristinn Sigurður, f. 1955, d. 2018, maki Sólveig, þau eiga fjögur börn og 10 barnabörn. Ásta, f. 1957, maki Emil, þau eiga fjögur börn, sjö barnabörn og eitt barnabarna- barn. Sigríður, f. 1958, maki Sveinn Júlíus, þau eiga þrjú börn og 10 barnabörn. Gunnar Ingi, f. 1961, maki Sigfríður Hafdís, þau eiga þrjú börn og fjögur barna- börn. Garðar Hauk- ur, f. 1963, maki Harpa María, þau eiga tvö börn og eitt barnabarn. Kristján, f. 1972, maki Guðrún Jóna, þau eiga fjögur börn. Gunnar átti fyrir tvo syni: Jó- el, f. 1954, maki Inga Steinunn, þau eiga þrjú börn og þrjú barnabörn. Guðmund Rafn, f. 1952, maki Guðrún, þau eiga einn son. Gunnar ólst upp á Sauðár- króki. Hann fór til sjós 14 ára gamall. Hann var mikill veiði- maður og stundaði skot- og lax- veiði í frístundum. Hann ferðað- ist mikið um landið, bæði á hefð- bundnar og óhefðbundnar slóðir, allt árið um kring. Gunnar var sjómaður nánast alla sína starfs- ævi. Útför hans fer fram frá Kefla- víkurkirkju í dag, 11. september 2018, klukkan 13. Fallinn er frá föðurbróðir minn Gunnar Hörður Garðarsson eða Gunnsi eins hann var ávallt kallaður. Gunnar og pabbi voru hálfbræður en ólust ekki upp saman. Þeir kynntust því ekki vel fyrr en báðir settust að á Suð- urnesjum. Sem barni fannst mér þeir fremur líkir. Pabbi var þó frekar jarðbundinn en Gunnsi áræðinn og djarfur sem víkingur. Ef til vill er Gunnsa best lýst sem náttúrubarni, þ.e. honum leið vel við veiðiskap af ýmsu tagi í ís- lenskri náttúru. Gunnsi stundaði sjómennsku alla ævi og í minningunni sé ég hann alltaf fyrir mér í rauða frambyggða bátnum sínum, Kristjáni, sem hann gerði út um langt skeið. Hann var fiskinn og laginn með haglabyssuna og naut ég sem barn og fullorðinn maður oft góðs af því. Þegar ég var að alast upp kom hann oft með í soð- ið til foreldra minna og fylgdu oft sjófuglar með. Þá veiddi hann lax og skaut gæsir og rjúpu allt fram undir það síðasta. Stundum seldi ég fyrir hann umframafurðir og fékk jafnan rífleg sölulaun; hann veiddi jú yfirleitt meira en hann kom fyrir í frystikistunum hjá sér og sínum. Í dag geri ég mér ljóst að fyrir hans atbeina er lax, sjófugl og gæs eitt það besta sem ég set inn fyrir mínar varir. Gunnsi var tvígiftur og kynnt- ist ég Ingu seinni konu hans vel. Þau voru samrýnd og skemmti- leg og ræktuðu samband sitt við móður mína eftir að faðir minn féll frá fyrir margt löngu. Þau eignuðust fimm börn og með fyrri konu sinni átti hann tvo syni. Afkomendurnir eru því orðnir margir. Ég votta þeim samúð mína og veit að hans verður sárt saknað. Einnig votta ég vinkonu hans, Elísabetu Jensdóttur, sam- úð mína. Blessuð sé minning Gunnsa frænda sem ég mun alltaf minn- ast sem hins áræðna og djarfa víkings. Börkur Hansen. Gunnar Hörður Garðarsson Mig setti hljóðan er Dummi frændi hringdi í mig 2. ágúst og sagði mér af andláti Einars Kristjáns. Kannski kom þetta ekki alveg á óvart en samt – höggið er mikið og á eftir að vinna úr því. Þó skyggði fyrr en skyldi, oss skín í sinni mildi það ljós um heljar haust. Að eins þótt árin líði og eldist menn í stríði, þín æska varir endalaust. Að sjá það seint oss gengur, að sértu elsku drengur, á förum okkur frá. En munur finnast má oss; á meðan þú varst hjá oss við máttum aldrei af þér sjá. Einar Kristján Guðmundsson ✝ Einar KristjánGuðmundsson fæddist 16. sept- ember 1991. Hann lést 2. ágúst 2018. Útför Einars Kristjáns fór fram 16. ágúst 2018. Af hvarmi hníga tárin og hjörtun blæða sár- in það sverfur svo að þeim, að sjá þig burtu bor- inn ó barn, oss þyngir sporin að fara án þín heim. Við hjartans kveðjur kvökum, en kvíðum næturvökum, því autt er um oss nú. Og vonir sannar sagðar í sálum kistulagðar með þér, en sonur, sæll ert þú. Og farðu í friði, góði við fylgjum þér í ljóði og söng, í sólarátt. Oss tindrar tíbrá yfir; við trúum að þú lifir og heyrir okkar hjartaslátt. (Guttormur J. Guttormsson) Samúðarkveðjur til allra í fjöl- skyldunni. Þinn frændi, Gylfi (Gilli). Smáauglýsingar 569 1100 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Námskeið Masters (50+) námskeið í bogfimi - með þjálfara Námskeiðið er á mánudögum og miðvikudögum kl. 18:30-20:00. Haust önn: Júlí til desember, 40.000 kr, hægt að koma inn á annir sem eru byrjaðar. Frekari upplýsingar á bogfimisetrid.is eða að kíkja í heim- sókn í Bogfimisetrið, Dugguvogi 2, Reykjavík og prófa. S. 5719330. Sjáumst þar :) Bókhald NP Þjónusta Býð fram liðveislu við bókanir, reikn- ingsfærslur o.fl. Hafið samband í síma 649-6134. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Raðauglýsingar Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Botsía með Guðmundi kl. 10. Leshringur með Heiðrúnu kl. 11. Opið hús, t.d. vist og brids kl. 13-16. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. MSfræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Brids og kanasta kl. 13. Fuglatálgun kl. 12.30. Bólstaðarhlíð 43 Yngingar jóga kl. 9-9.50, allir velkomnir. Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Botsía kl. 10.40- 11.20. Bónusrútan kemur kl. 14.40. Leshópur kl. 13. Blöðrudýra-nám- skeið kl. 13-13.40. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Bústaðakirkja Félagsstarfið hefst miðvikudaginn 12. september með haustferð. Nánari upplýsingar og skráning er hjá Hólmfríði djákna í sima 553 8500. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14. Fella- og Hólakirkja Kyrrðastund kl. 12, súpa og brauð eftir stund- ina á vægu verði. Félagsstarf eldri borgara kl. 13, við höldum áfram að huga að heilsu og hreyfingu. Inga Björk Sveinsdóttir fræðir okkur um qigong. Spilin, spjallið og hannyrðir á sinum stað. Kaffi kl. 15 og við endum á fyrirbænastund. Hlökkum til að sjá ykkur. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Landið skoðað með nútímatækni kl. 13.50. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir! Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi frá kl. 9-10 í setustofu, bútasaumshópur kl. 9-12, hópþjálfun / stólaleikfimi fellur niður í dag, félagsvist í sal kl. 13.30-16, frjáls spilamennska kl. 13-16.30. Opin handavinnustofa frá kl. 13-16. Opið kaffihús frá kl. 14.30-15.30. Verið velkomin til okkar á Vitatorg, Lindargötu 59, sími 411 9450. Garðabær Jónshúsi / félags- og íþróttastarf: 512 1501. Opið í Jóns- húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Qi gong Sjálandi kl. 9. Karlaleikfimi Ásgarði kl. 12. Botsía Ásgarði kl. 12.45. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónus- rúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Línudans í Kirkjuhvoli kl. 13.30/14.30. Félagsvist í Jónshúsi kl. 20. Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramikmálun kl. 9-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30 Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16. Línudans kl. 13-14 (speglasal). Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9, handavinna, kl. 9.30 silfursmíði (kennsla fer fram að Smiðshöfða 14, Reykjavík), kl. 10 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna, kl. 13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og jafn- vægisæfingar. Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara í kirkjunni kl. 13-15.30. Í upphafi er helgistund í kirkjunni með prestum safnaðarins og söng- stund með Hilmari Erni Agnarssyni. Þá er í boði handavinna, spil og spjall fyrir þau sem vilja. Samverunni lýkur með kaffiveitingum kl. 15. Grensáskirkja Kyrrðarstund kl. 12. Gullsmári Myndlist kl. 9. Botsía kl. 9.30. Málm-/silfursmiði (kennsla fer fram að Smiðshöfða 14, Reykjavík) kl. 13. Kanasta/tréskurður kl 13. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11, 500 kr. skiptið eða 1305 kr. mánuðurinn, allir velkomnir. Hjúkrunarfræðingur kl. 10-11. Hádegis- matur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Spjallhópur kl. 13, velkomin. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13, frjáls spila- mennska kl. 13, fyrsta helgistund vetrarins kl. 14 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Opnað kl. 8.50. Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp á kaffi. Thai chi með Guðnýju kl. 9-10, myndlistarnámskeið hjá Mar- gréti Zophoníasd. kl. 9-12, leikfimi með Guðnýju kl. 10-10.45, hádegis- matur kl. 11.30, panta þarf fyrir kl. 9 samdægurs, Spekingar og spaug- arar kl. 10.45-11.45, listasmiðja er öllum opin frá kl. 12.30, Kríurnar kl. 13, brids kl. 13-16, enska 13-15. Kaffi 14.30. Korpúlfar Botsía kl. 10 og 16 í dag í Borgum, helgistund kl. 10.30 í Borgum, sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 13.30 og heimanáms- kennsla kl. 16.30 í dag í Borgum. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja 9-12, listasmiðja kl. 9- 16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með leið- beinanda kl. 13-16, botsía, spil og leikir kl. 16, tölvu-og snjalltækja- kennsla kl. 17. Uppl. í s. 411 2760. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.15. Kaffispjall í krókn- um kl. 10,30. Pútt í Risinu, Eiðistorgi kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfi- landi kl. 11.30. Brids í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Helgistund á Skólabraut kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 14. Vegna sameig- inlegrar ferðar félagsstarfsins og kirkjunnar þriðjudaginn 18. septem- berþá liggja skráningarblöð frammi á Skólabraut, í kirkjunni og í Eiðismýri. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Skák kl. 13. Allir velkomnir. Fundir/Mannfagnaðir atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Sjálfstæðisflokkurinn Vikulegir viðtalstímar þing manna og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, alþingismaður og ritari Sjálf- stæðisflokksins, og Eyþór L. Arnalds, oddviti borgarstjórn- arhópsins, bjóða upp á viðtals- tíma á föstudaginn, 14. sept- ember, á milli 12:00 og 13:00. Hver viðtalstími er að hámarki 15 mínútur að lengd. Þingmenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða, frá og með föstudeginum 14. september næstkomandi, með opna viðtalstíma á skrif- stofu flokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Viðtalstímarnir munu fara fram á föstudög- um frá kl. 12:00 – 13:00. Upplýsingar um hvaða fulltrúar verða til viðtals hverju sinni, verða auglýstar nánar á heimasíðu og samfélagssíðum flokksins. Bóka verður tíma fyrirfram í s. 515-1700 eða með tölvupósti á skuli@xd.is.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.