Morgunblaðið - 11.09.2018, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 11.09.2018, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Lífið kemur þér á óvart þessa dag- ana og þér finnst þú hafa litla stjórn á at- burðarásinni. Þú ert með mörg járn í eld- inum. 20. apríl - 20. maí  Naut Afstaða þín getur gert útslagið í ákveðnu máli. Nú er rétti tíminn til að huga að húsnæðismálum. Þú færð draumaíbúðina upp í hendurnar. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það borgar sig alltaf að líta á björtu hliðar tilverunnar, líka þegar útlitið virðist ákaflega grátt og dapurlegt. Bara það að koma hlutunum á blað losar um innri spennu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Enginn er fullkominn. Leyfðu breytingum að hafa sinn gang. Félagslífið stendur í miklum blóma og mörg nám- skeið sem í boði eru heilla þig. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Farðu varlega í öllum fjárfestingum og gættu þess sérstaklega að taka enga áhættu. Ræddu við ástvin undir fjögur augu um framtíðina. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú hefur þörf fyrir að ræða áhyggj- ur þínar við einhvern. Barnauppeldið getur tekið á en mikilvægt er að telja upp að 10. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú er rétti tíminn til að huga að eign- um sem þú átt í félagi við aðra. Ekki segja neitt sem getur ruggað bátnum of mikið. Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Nú skiptir það sköpum að fara gætilega í fjármálum. Ef þú hefur sterkar tilfinningar og skoðanir á ein- hverju, getur þú ekki snúið þér undan. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert kannski ekki að leita að nýjum verkefnum, en þau þefa þig uppi. Þú færð grænt ljós á framkvæmdir. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert í keppnisskapi og það kemur sér vel að velja verðugan andstæð- ing. Sjálfboðaliðastörf hafa lengi heillað þig og þú ert ákveðin/n í að finna eitthvað við þitt hæfi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Sýndu þolinmæði, þér munu berast skilaboð sem taka af öll tvímæli. Sumir eru byrjaðir að kaupa jólagjafirnar, hvað með þig? 19. feb. - 20. mars Fiskar Þótt ýmsar áhyggjur sæki að þér skaltu ekki láta þær draga úr þér kjarkinn. Reyndu að skipuleggja þig betur og gefðu tómstundirnar ekki upp á bátinn. Helgi R. Einarsson skrapp meðkonunni í berjamó, leiðin var löng en uppskeran góð: Fyrst við föturnar opnum og finnst við ná sjálfum toppnum er á flatirnar herjum fullar af berjum í firðinum þekktum af vopnum. Síðan datt Helga í hug annar at- burður og heldur sorglegri, – „Köngulóarblús“: Könguló datt oní dós um daginn norður í Kjós. Við bæjarlæk getin af bónda svo étin, er berjunum upp í sig jós. Á Boðnarmiði segir Guðmundur B. Guðmundsson frá því að „fyrir meira en heilli öld hittust Borgfirð- ingur og Austfirðingur einhvers staðar á ferð. Sá að austan spurði hinn hvar hann ætti heima. Hann svaraði: Þú mátt hafa vit í vösum vel ef skilur orð mín sljó. Bær minn frýsar feitum nösum ferðmikill en latur þó. Þetta gat Austanmaður ekki ráð- ið og þá sagði Borgfirðingurinn: Svarið bresta mig ei má mér fer verst að þegja. Ég á Hesti heima á hreint er best að segja. Síðan ákváðu þeir að kveðast á. Sá borgfirski byrjaði: Ef eg ætti að yrkja níð um austanmann- inn, best væri þá að byrja þannin: bölvaður farðu skjátuglanninn. Austfirðingur svaraði: Bölvaðu ekki brags í stauti Borgfirð- ingur. Mér heyrist á því sem þú syngur, að sóma- muntu og æruringur. Og kann ég ekki þessa sögu lengri.“ Nú á dögunum var mér kennt er- indi eftir Þorvald Ólafsson bónda á Öxnlæk og síðar iðnverkamann í Reykjavík: Lækur reiður rýfur moldarbakka rauðri belju haldið var í gær; bækluð rolla beit í hlíðarslakka. Í bæli sínu hvílir holdug mær. Einar Benediktsson lítur yfir far- inn veg: Í æsku eg hugði á hærra stig. Það heldur fyrir mér vöku að ekkert liggur eftir mig utan nokkrar stökur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af berjamó, könguló og hesti „ÞETTA ER SNJALLSJÓNVARP. ÞAÐ VISSI AÐ ÞÚ ÆTLAÐIR AÐ KASTA EINHVERJU Í ÞAÐ.“ „HAFÐU AUGUN Á ÞESSUM.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að skoða tölvupóstinn þinn kl. 2 að nóttu ef ske kynni að það sé eitt frá honum. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞEIR SEGJA AÐ ÁSTIN LÁTI HEIMINN SNÚAST EKKI EYÐA TÍMA Í AÐ ÚTSKÝRA HLUTI FYRIR HONUM SVO ÁN HENNAR MYNDI HEIMURINN STÖÐVAST OG VIÐ FJÚKA ÚT Í BUSKANN EKKI BÓK- STAFLEGA FJÚFF! HELGA SEGIR AÐ ÞAÐ VANTI SAMHLJÓM Í HJÓNABANDIÐ OKKAR… HÚN VILL AÐ VIÐ FÖRUM TIL HJÓNABANDSRÁÐGJAFA! VÆRI EKKI GÁFULEGRA AÐ FARA TIL SÖNGKENNARA? Víkverji rakst á nokkra belgískalandsliðsmenn á förnum vegi í gær og viðurkennir að hann fylltist við það nokkrum ótta. Úr því miðl- ungslið eins og Sviss getur hund- þeytt okkar mönnum, 6:0, hvað gera þá Belgarnir, sem komust á verð- launapall á HM í Rússlandi? Erum við að tala um tveggja stafa tölu? x x x Þegar Belgarnir voru komnir úraugsýn rifjaðist þó upp fyrir Víkverja að knattspyrna er stór- undarleg íþrótt, þar sem samhengi milli úrslita er oft og tíðum lítið. Þess utan erum við á heimavelli, sjálfum Laugardalsvellinum, þar sem við höfum ekki lotið í gras í fimm ár, misminni Víkverja ekki. Í það minnsta í keppnisleik. Vonandi verður þetta því bara allt í lagi. x x x En Belgarnir eru með Hazard.Einn besta knattspyrnumann í heimi, pund fyrir pund. Hvernig ætlum við að fara að því að stöðva hann? Hazard hreyfir mjaðmirnar hraðar en Elvis. Og svo er hann far- inn. Þeir eru líka með Lukaku og væri hann nautabani myndu nautin leggja á flótta. Áður en hann hlypi þau niður. x x x Hvaða raus er þetta? Við erummeð Tólfuna; bestu stuðnings- menn í heimi. Skeggjaða andlitsmál- aða Víkinga sem skyrpa stáli. Þeir koma pottþétt til með að feykja Belgunum af velli þegar þeir henda í víkingaklappið. Breyta þeim í Loft-Belga. Og forsetinn verður þarna til að senda strákunum okkar góða strauma. Verður Filippus Belgíukonungur þarna? Nei. x x x En Belgar eru þjálfaðir af einumbesta knattspyrnumanni allra tíma, Thierry Henry. Hann er að vísu bara aðstoðarþjálfari en það er sama. Hann er með þeim. Og gott ef Víkverji sá hann ekki líka í gær. Alla vega mann með derhúfu sem líktist honum verulega mikið. En þorði ekki að spyrja. Eins og Vík- verji segir, það var beygur í honum. vikverji@mbl.is Víkverji Ég vil þakka þér, Drottinn, Guð minn, af öllu hjarta og tigna nafn þitt að eilífu. (Sálmarnir 86.12) SMÁRALIND www.skornirthinir.is Kíktu á verðið Tilboðsverð 4.997 ð áður 9.995 stærðir 25-35 Rennilás að framanverðu Loðfóðraður Vatnsheldur Stamur gúmmísóli Lytos Zurs Kid kuldaskór

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.