Morgunblaðið - 11.09.2018, Síða 30

Morgunblaðið - 11.09.2018, Síða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2018 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves verður haldin í Reykjavík 7.-10. nóvember og er enski tónlistar- maðurinn Hak Baker meðal þeirra sem troða munu upp. Ferill Baker er óvenjulegur og hófst í „grime“ og „garage“ tónlist sem hann sneri baki við eftir að hafa afplánað stuttan fangelsisdóm og nýtt af- plánunina í að læra á gítar og semja lög og texta. Nú er tónlist Baker flokkuð sem þjóðlagatónlist, „folk“ á ensku, og hefur Baker vak- ið bæði athygli og fengið lof fyrir góðar lagasmíðar og persónulega texta. Baker er 28 ára og fæddur og uppalinn í Isle of Dogs, hverfi í austurhluta London þar sem hann býr enn. Blaðamaður þekkir ekki til þessa svæðis í London og biður Ba- ker um að segja sér aðeins frá því. „Þetta er skrítið svæði,“ segir hann. „Hér var áður fyrr bær sem verkamenn byggðu og unnu við skipaþjónustu en núna er þetta víst aðalfjármálamiðstöð Evrópu, Can- ary Wharf, þó allir aðrir en við verkalýðsstéttin njóti góðs af því.“ Byrjaði ungur Blaðamaður heyrir í gítar- strengjum og spyr Baker hvort hann sé að æfa sig. „Ég er bara í hljóðveri að prófa mig áfram,“ segir hann og er spurður að því hvenær hann hafi byrjað að fikta við tónlist. „Ég var mjög ungur þegar ég byrj- aði að semja með vinum mínum, 12 eða 13 ára. Svo hætti ég að búa til tónlist í mjög langan tíma en hef nú sinnt henni í tvö ár.“ Þar sem Baker er ekki orðinn þrítugur hefur hann byrjað að semja tónlist og flytja upp úr alda- mótum, um 2001 eða 2002. Hann er spurður að því hverju hann og vinir hans hafi verið hrifnir af og sótt innblástur í á þeim tíma. „Við hlustuðum á garage og grime, gam- alt efni, reggí líka. Þetta var blanda af þessu öllu,“ segir Baker. –Ég heyri líka greinileg áhrif af reggíi í tónlistinni þinni? „Já, alveg 100%, reggí er mjög mikill áhrifavaldur.“ –Þú tilheyrðir grime-hópnum B.O.M.B. Squad á sínum tíma. „Já, við vorum bara að leika okk- ur sem strákar, það var engin al- vara í þessu. Við vorum bara að semja tónlist,“ svarar Baker og er spurður að því hvort hópurinn hafi notið vinsælda. „Algjörlega, bæði hér í hverfinu og í London almennt. En við græddum í raun ekkert á þessu, eiginlega ekki neitt.“ Slæmar ákvarðanir Baker segist hafa hlustað mikið á tónlist þar sem gítar er í öndvegi og að það sé tónlistin sem honum líki best við og vilji helst af öllu semja og flytja. Sem fyrr segir lærði Bak- er á gítar í fangelsi og blaðamaður spyr fyrir hvaða sakir hann hafi setið inni. „Ég fór í fangelsi af því að ég var á slæmum stað í lífinu, tók margar slæmar ákvarðanir,“ svarar Baker og vill greinilega ekki fara nánar út í þá sálma. –Og komstu þaðan gjörbreyttur maður? „Nei, ég var sami gaurinn en vissi betur hver ég var og að ég vildi fá meira út úr lífinu, sjálfum mér og mínu fólki. Með mínu fólki á ég við fólkið sem ég ólst upp með, vini mína, verkalýðinn. Ég er ekki að vísa til kynþáttar, þeldökkra, eins og allt virðist snúast um þessa dagana og er notað til að sundra þeldökku fólki og fólki af ólíkum kynþáttum sem er bara kjaftæði,“ svarar Baker. Minning um vin –Samdirðu marga texta í fang- elsi? „Já, ég hef ekki notað þá en ég samdi þá marga.“ –Textarnir þínir eru mjög per- sónulegir og í einum þeirra syngur þú um vin þinn sem dó. Geturðu sagt mér meira frá honum? „Hann var besti vinur minn og þetta er texti beint frá hjartanu, um hann og ég er bara að segja frá vin- um mínum og hvernig mér og þeim líður. Það er svo sem lítið meira um þessa texta að segja annað en að þeir eru beint frá hjartanu.“ –Tónlistin hlýtur að veita þér mikla losun og frelsi? „Vissulega og sérstaklega þegar ég er á sviði. Ef ég drykki ekki svona mikið myndi mér líða frábær- lega að loknum tónleikum en mér líður samt sem áður mjög vel, ég þarf bara að takast á við timbur- mennina næsta dag. Þetta er ákveð- ið læknandi ferli fyrir mig.“ –Líður þér vel á sviði þegar þú ert að spila og syngja? „Ég er alltaf kvíðinn fyrstu tíu mínúturnar hið minnsta en svo dregur úr kvíðanum eftir því sem á líður.“ –Og það breytist ekkert, það eru alltaf þessar tíu mínútur af kvíða? „Já, maður, þetta er alltaf sama sagan,“ segir Baker og hlær við. Önnur plata væntanleg –Þú hefur gefið út eina stuttskífu, Misfits, sem hefur að geyma sex lög. Veistu hversu mörg lög þú munt flytja á Íslandi? „Sennilega sex eða sjö, fer eftir því hversu lengi ég verð á sviðinu. Ég held ég hafi bara hálftíma og get því varla spilað fleiri lög. Þetta er stuttur tími en ef ég fæ 40 mín- útur mun ég líklega spila átta lög,“ svarar Baker og vonast greinilega til þess að mínúturnar verði 40 frekar en 30. Hann segist vera að vinna að annarri plötu og að lögin á henni verði bæði lík og ólík fyrri lögum hans. „Tónlistin er alltaf að breyt- ast í hljóðverinu, allt eftir því hvernig okkur líður hverju sinni,“ útskýrir hann. Baker segist að lokum hlakka til þess að heimsækja Ísland og segist sérstaklega áhugasamur um að sjá hveri og heilsulindir. Hann þekkir lítið til íslenskrar tónlistar og segist því spenntur að sjá og heyra í ís- lenskum tónlistarmönnum á Air- waves. Vildi fá meira út úr lífinu  Enski tónlistarmaðurinn Hak Baker kemur fram á Iceland Airwaves  Lærði á gítar í fangelsi og gerðist söngvaskáld  Textarnir beint frá hjartanu  Alltaf kvíðinn fyrstu tíu mínúturnar á sviði Einlægur Hak Baker syngur m.a. um vini sína og lífið í Isle of Dogs í London. Ný plata Víkings Heiðars Ólafs- sonar píanóleikara, með 35 verkum eftir Johann Sebastian Bach, kom út hjá hinu virta útgáfufyrirtæki Deutsche Grammophon á föstudag- inn var. Samdægurs mælti gagnrýn- andi The New York Times, Joshua Barone, með og jós lofi splunkunýjar plötur tveggja norrænna píanóleik- ara sem hafa verið á hraðferð upp á stjörnuhimin klassíska heimsins, hins norska Leif Ove Andsnes, sem leikur næturljóð og ballöður eftir Chopin á útgáfu frá Sony, og Vík- ings Heiðars. Rýnirinn segir unnendur píanó- leiks geta fagnað dásamlegum upp- tökum beggja píanóleikaranna. Hann segir frumraun Víkings Heið- ars hjá Deutsche Grammophon á etýðum eftir Philip Glass hafa verið „opinberun“, músíkalska uppgötvun í verkum sem forðist iðulega að vera hljómfögur. Í nýju upptökunum hafi Víkingur Heiðar á viðlíka hátt kafað niður í dýpi fjölröddunar í prelúdíum og fúgum Bachs, sem og í allmörg önnur minni verk, þar á meðal í út- setningum eftir Rachmaninoff og Busoni á tónsmíðum Bachs. „Honum auðnast að koma á óvart, jafnvel í kunnuglegustu verkunum, í því hvernig hann hefur örugga stjórn á hinum ólíkustu röddum en veitir um leið svigrúm fyrir ævintýralega snúninga – þar blandast virðing og fífldirfska og afraksturinn er hressi- leg viðbót við þegar þéttskipaðan akur upptaka með verkum Bachs.“ Víða er getið í alþjóðlegum miðl- um um útgáfuna á Bach-diski Vík- ings. Franska útvarpsstöðin FIP valdi hann til að mynda disk sept- embermánaðar. Þá getur Víkingur Heiðar þess á samfélagsmiðlum að plata hans með etýðum Glass hafi verið söluhæsta plata Deutsche Grammophon í fyrra. Útgáfutónleikar Víkings Heiðars hér á landi verða í Eldborgarsal Hörpu 13. október næstkomandi. Virðing og fífldirfska blandast í túlkun á Bach Morgunblaðið/Einar Falur Lof Nýr diskur Víkings Heiðars er lofaður í The New York Times. Meira til skiptanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.