Morgunblaðið - 11.09.2018, Qupperneq 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2018
„Danski bókabransinn er í vexti og
reikna má með að sá vöxtur haldist
næstu árin. Danski bókabransinn er
meðal þeirra markaða í Vestur-
Evrópu þar sem vöxturinn er mestur,“
segir Leif Ulbæk Jensen, fjölmiðla-
sérfræðingur hjá PwC, í samtali við
Politiken. Tilefnið er nýbirt árleg út-
tekt PwC á fjölmiðlum og afþreyingu,
þar á meðal bókabransanum. Úttektin
nær til 53 landa, en Ísland er ekki þar á
meðal.
Samkvæmt úttektinni mun velta
danska bókabransans aukast um 1,9%
árlega á tímabilinu 2018-2022, sem er
umtalsvert meira en í Noregi og Sví-
þjóð þar sem spáð er árlegum sam-
drætti upp á annars vegar 0,3% og
hins vegar 1,3%. PwC spáir því að
velta danska bókabransans fari úr 2,3
milljörðum danskra króna árið 2017 í
2,6 millj. dkr. 2022. Skýrsluhöfundar
deila bókum í þrjá hópa, þ.e. bækur til
einkanota, kennslubækur og fagbækur
á borð við lagasöfn. Þeir reikna með að
sala kennslubóka aukist um 5,9% á ári,
en ólíkt Íslandi eru kennslubækur í
Danmörku ekki gefnar út af ríkinu.
Sala prentaðra bóka til einkanota mun
minnka um 1,3% á ári fram til ársins
2022, en á sama tíma er reiknað með að
sala rafbóka aukist um 11% á ári. Þó er
aðeins reiknað með að fimmta hver
bók verði seld sem rafbók árið 2022.
Þetta skýrist fyrst og fremst af því
hversu lítill verðmunur er á prent-
uðum bókum og rafbókum.
Aðeins eru örfáar vikur síðan fréttir
bárust af því að 45 milljón dkr. tap yrði
á fyrri helmingi ársins hjá danska út-
gefandanum Gyldendal og ljóst að
fækka þyrfti titlum, en í ár gefur Gyld-
endal alls út 450 titla. Christine Bødtc-
her-Hansen, forstjóri Danske Forlag,
varar við því að fólk treysti um of á
spár PwC, enda hafi fyrri spár fyr-
irtækisins ekki gengið eftir. „Fyrir 10
ára spáðu þeir því að prentaða bókin
yrði útdauð í dag. Þannig að það er
erfitt að spá um framtíðina,“ segir
Bødtcher-Hansen. Hún hefur mestar
áhyggjur af minnkandi bóklestri
barna og ungmenna, en nýleg rann-
sókn leiddi í ljós að 2017 lásu aðeins
56% barna oftar en einu sinni í viku
samanborið við 61% árið 2010.
Danski bókabransinn í sókn
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Vöxtur Sala kennslubóka eykst.
Gagnrýnandi The New York Times
skrifar um hið mikla verk Sjóns, Co-
Dex 1962, að það sé „norræn Þúsund
og ein nótt“ en bókin kom nýverið út
á ensku í þýðingu Victoriu Cribb.
Rýnirinn bætir við að hver hluti bók-
arinnar sé eins og vaxkaka í bý-
flugnabúi, þar sem sögur felast í
sögum og þegar þær opnast megi
finna í þeim orðróm sem dæmisögur,
prósaljóð eða vísi að goðsögum.
Rýnirinn, Parul Sehgal, segir þetta
sagnamagn ekki vera marklausa
sýningu á stílhæfileikum höfundar
heldur með rætur í trú Sjóns á mætti
gamaldags sagnahefðar og skyldum
við hana.
CoDex 1962 er í þremur hlutum,
og kom á sínum tíma út á íslensku
sem þrjár skáldsögur sem höfund-
urin felldi í þennan bálk í þremur
hlutum við útkomu lokahlutans.
Sagan hefst þegar gyðingur nær að
flýja útrýmingarbúðir með leir-
klump með
barnsmynd – gó-
lem – sem er vak-
inn upp á Íslandi
árið 1962, á sama
tíma og Sjón
sjálfur fæddist.
Rýnirinn segir
hlutana þrjá vera
ástarsögu, saka-
málasögu og vís-
indaskáldskap en höfundurinn leiki
sér með öll möguleg bókmennta-
form. Sehgal hrífst af verkinu en
finnur þó að lengd þess og segir höf-
undinn stundum tapa lesandanum
þegar hann upphefur frásagnir
vegna þess eins að þær eru til, án
þess að lífi sé blásið í þær. Hann seg-
ir talað um bókina sem meistarverk
Sjóns en honum finnst söguna vanta
„samþjöppunina, snerpuna og ag-
ann“ í fyrri skáldsögum Sjóns, og til-
tekur Mánastein sem sitt eftirlæti.
Sögu Sjóns líkt við Þúsund og eina nótt
Sjón
Nýja akademían í Svíþjóð hefur birt
stuttlista sinn fyrir nýju bókmennta-
verðlaunin. Verðlaunin verða aðeins
veitt í þetta eina sinn og var komið á
eftir að ljóst var að Sænska akademí-
an myndi ekki veita Nóbelsverðlaun
ársins 2018 fyrr en á næsta ári.
Á stuttlistann rata kanadíski höf-
undurinn Kim Thúy; franski rithöf-
undurinn Maryse Condé; japanski
höfundurinn Haruki Murakami og
breski höfundurinn Neil Gaiman.
Nýja akademían var stofnuð vegna
krísunnar sem ríkir innan Sænsku
akademíunnar. Hana skipa 117 ein-
staklingar úr sænsku menningarlífi.
Bókaverðir tilnefndu 47 höfunda á
langa lista verð-
launanna og var
Jón Kalman Stef-
ánsson einn
þeirra höfunda
sem rötuðu inn á
listann. Í fram-
haldinu gafst al-
menningi kostur á
að kjósa um vinn-
ingshafa og sam-
kvæmt frétt SVT bárust atkvæði frá
31 þúsund manns. Tilkynnt verður
um vinningshafa 12. október og verð-
launin afhent 9. desember. Sigurveg-
arinn hlýtur eina milljón sænskra
króna.
Fjórir á stuttlista nýrra verðlauna
Haruki Murakami
Meint „viðgerð“ konu í þorpinu El
Ranadoiro í Asturias-héraði á Spáni á
þremur tréstyttum frá fimmtándu
öld hefur vakið athygli. Stærsta stytt-
an sem sýnir Maríu með Jesúbarnið,
með heilaga Önnu, dýrling þorpsins,
sér við hlið, hefur um aldir staðið í
þorpskirkjunni, brún og ómáluð, eins
og hinar tvær minni af helgum mönn-
um. Verslunareiganda í þorpinu,
Maríu Luisu Menéndez, þótti stytt-
urnar hræðilegar og kveðst í samtali
við dagblaðið El Comercio hafa feng-
ið leyfi prestanna til að laga þær.
„Ég er ekki atvinnumálari en hef
alltaf haft gaman af því að mála og
stytturnar þurftu á því að halda,“
segir hún. „Ég vandaði mig eins og
ég gat, valdi liti sem mér sýndust
réttir og nágrannar mínir eru
ánægðir.“ Afraksturinn er nú ljós,
María er komin í bleik klæði og stytt-
urnar þykja, að mati blaðamanna
sem séð hafa, helst líkjast Playmobil-
fígúrum.
Málaði helgimyndir frá fimmtándu öld
AFP
Lagaðar Styttan af Maríu, Jesú og heil-
agri Önnu fyrir og eftir málun.
Nýjar hendur - Innan
seilingar
Bíó Paradís 18.00
Kvíðakast
Bíó Paradís 22.00
Söngur Kanemu
Bíó Paradís 18.00
Whitney
Bíó Paradís 17.40, 17.45,
20.00
Utøya 22. júlí
Bíó Paradís 20.00, 22.00
The Last Reform-
ation: The Beginning
Bíó Paradís 20.00
The Nun 16
Presturinn séra Burke er
sendur til Rómar til að rann-
saka dularfullan dauðdaga
nunnu.
Metacritic 55/100
IMDb 6,9/10
Sambíóin Álfabakka 17.10,
17.40, 19.30, 20.00, 21.50,
22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00, 22.10
Sambíóin Kringlunni 17.30,
19.40, 21.50
Sambíóin Akureyri 20.00,
22.20
Sambíóin Keflavík 17.40,
20.00, 22.20
Lof mér að falla 16
Þegar 15 ára Magnea kynn-
ist 18 ára Stellu breytist allt.
Stella leiðir Magneu inn í
heim fíkniefna sem hefur al-
varlegar afleiðingar fyrir
þær báðar.
Laugarásbíó 17.00, 19.50,
22.40
Smárabíó 15.50, 16.20,
19.00, 19.30, 22.00, 22.30
Háskólabíó 18.00, 21.00,
21.20
Borgarbíó Akureyri 17.00,
19.30, 21.40
KIN 12
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40
Sambíóin Akureyri 17.15
Alpha 12
Metacritic 63/100
IMDb 7,0/10
Smárabíó 17.20, 20.00,
22.20
Háskólabíó 20.40
Borgarbíó Akureyri 22.00
Crazy Rich Asians
Þegar Rachel Chu fer með
kærastanum til Singapore til
að vera viðsödd brúðkaup
kemst hún að því að hann á
fáránlega ríka fjölskyldu með
myrka sögu.
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.30
Sambíóin Kringlunni 17.00,
19.30
Sambíóin Akureyri 17.30
Sambíóin Keflavík 20.00
Slender Man 16
Smárabíó 22.30
Kona fer í stríð
Morgunblaðið bbbbb
Háskólabíó 18.10
Bíó Paradís 22.15, 22.20
Mile 22 16
Laugarásbíó 22.15
Smárabíó 22.20
The Spy Who
Dumped Me 16
Metacritic 51/100
IMDb 6,4/10
Laugarásbíó 20.00, 22.25
Book Club Metacritic 53/100
IMDb 6,3/10
Háskólabíó 18.30
Össi Össi er mjög heppinn hund-
ur. Hann býr hjá góðri fjöl-
skyldu sem elskar hann af-
skaplega mikið og lífið er
gott. En einn góðan veð-
urdag fer fjölskyldan í ferða-
lag og skilur Össa eftir í
pössun.
Laugarásbíó 17.30
Sambíóin Keflavík 17.50
Smárabíó 15.10, 17.40
Christopher Robin Christopher Robin hittir
skyndilega gamlan vin sinn
Bangsimon, og snýr með
honum aftur í ævintýraheim
bernskunnar.
Metacritic 59/100
IMDb 8,0/10
Sambíóin Kringlunni 17.20,
19.40
Hótel Transylvanía 3:
Sumarfríið Metacritic 54/100
IMDb 6,4/10
Smárabíó 15.20
Hin Ótrúlegu 2 Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 80/100
IMDb 8,1/10
Sambíóin Álfabakka 17.30
Eftir að hafa komist lífs af eftir árás 20 metra
hákarls, þá þarf Jonas Taylor að horfast í augu
við ótta sinn, til að bjarga fólki sem er fast í
neðansjávarrannsóknarstöð.
Metacritic 46/100
IMDb 6,2/10
Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 22.00
Sambíóin Akureyri 19.30
Sambíóin Keflavík 22.30
The Meg 12
Mamma Mia!
Here We Go Again Nú hefur Sophie tekið við rekstri gistiheimilisins og lærir um
fortíð móður sinnar á sama tíma og hún er ófrísk sjálf.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 60/100
IMDb 7,3/10
Laugarásbíó 17.30, 19.50
Smárabíó 17.00, 19.50
Háskólabíó 18.20, 20.50
Borgarbíó Akureyri 17.00,
19.30
Mission Impossible -Fallout 16
Ethan Hunt og sérsveit hans og bandamenn eiga í kappi við
tímann eftir að verkefni misheppnast.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 86/100
IMDb 8,4/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.30
Sambíóin Egilshöll 18.00,
21.00
Sambíóin Kringlunni 22.00
Sambíóin Akureyri 22.00
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio