Morgunblaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.09.2018, Blaðsíða 36
Andrés Þór/Miro Herak kvartett leikur á djasskvöldi á Kex hosteli í kvöld kl. 20.30. Andrés Þór Gunn- laugsson leikur á gítar, Miro Herak á víbrafón, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Á efnisskránni verður blanda af frumsömdu efni og lög úr smiðju samtímadjasstónskálda. Aðgangur er ókeypis. Andrés Þór/Miro Herak kvartett á Kex ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 254. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr. KA vann Akureyri handboltafélag með eins marks mun, 28:27, í fyrsta leik Akureyrarliðanna í efstu deild í handknattleik í KA-heimilinu í gær- kvöldi. Lokakafli leiksins var spenn- andi eftir að Akureyri vann upp sex marka forskot KA og náði að kom- ast marki yfir þegar skammt var til leiksloka. Þeim varð ekki kápan úr því klæðinu og KA vann. »3 KA hafði betur í upp- gjörinu á Akureyri ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM „Ég vil að leikmenn geti horft í spegilinn eftir næsta leik og verið stoltir og ánægðir með frammi- stöðu sína. Að þeir sjái í augum hver annars að þeir hafi lagt sig 100% fram og unnið saman til að gera sitt besta,“ sagði Erik Hamr- én, landsliðsþjálfari Íslands í knatt- spyrnu karla, á blaðamannafundi í gær, spurður um viðureignina við Belga, bronslið heimsmeist- aramótsins í Rússlandi. Belgar mæta á Laugar- dalsvöll í kvöld og mæta íslenska liðinu í Þjóðadeild UEFA. »1 Vil að menn geti orðið stoltir og ánægðir Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Galdramaðurinn Einar Mikael Sverrisson hefur opnað Galdraskól- ann sinn að nýju eftir þriggja ára hlé. Skólinn var afar vel sóttur á sínum tíma og hefur Einar kennt yf- ir 12.000 börnum ýmis töfrabrögð á síðustu árum. Sjálfur byrjaði Einar ekki að galdra fyrr en hann var 22 ára gamall en hann segir það mjög gefandi að leyfa yngri kynslóðinni að fá innsýn í heim töfranna. „Ég átti mér tvo drauma þegar ég var yngri: að verða smiður eins og pabbi og kaupa mér íbúð. Ég ákvað þetta þegar ég var 11 ára og náði þessum markmiðum þegar ég var 21 árs. Síðan kom einhver mað- ur í sjónvarpinu og sagði „Guð blessi Ísland“ og þá hrundi allt. Það var enga smíðavinnu að fá og þá uppgötvaði ég þennan stórkostlega hlut. Ég fékk töfra inn í líf mitt og hef verið að vinna við þetta síðast- liðin níu ár; að töfravæða Ísland, gleðja fólk og koma því á óvart,“ segir Einar. Undraheimur fyrir börnin „Ég byrjaði að kenna svona 20 til 30 börnum og fannst það virkilega gaman. Ég fann að tilgangur minn í lífinu væri að vinna meira með krökkum, mér fannst svo gaman að kenna töfrabrögð. Þetta er nýr heimur sem þau kynnast og þau al- veg elska þetta. Að geta gert eitt- hvað sem töframenn og Harry Pott- er gera! Þetta er undraheimur fyrir þeim.“ Hann segir gaman að sjá undr- unarsvipinn á börnunum þegar töfrabrögðin ganga upp enda upp- lifun og undrun barnanna einlæg. „Það hættir í raun ekki þegar maður er orðinn eldri. Okkur finnst öllum gaman að láta koma okkur á óvart og sjá eitthvað sem er ótrú- legt.“ Vill auka aðgengi að töfrum Einar segist vilja koma Galdra- skólanum á netið og gefa börnum þannig ótakmarkað aðgengi að töfr- um. „Það er ekki nægjanlega gott aðgengi fyrir yngri kynslóðina til þess að læra og draumur minn er að gera mitt besta til að töfravæða Ís- land og bæta aðgengi barna að göldrum.“ Námskeiðið er ætlað börnum á aldrinum sex til tólf ára og læra þau ýmsar sjónhverfingar og galdra- brögð en með þessu fylgir þó annar lærdómur líka. „Þau fá í fyrsta lagi aukið sjálfstraust. Læra að standa fyrir framan fólk og verða betri í mannlegum samskiptum. Það er því ákveðin sjálfstyrking fólgin í þessu líka. “ Töfraheimur Einar Mikael segir það mjög gefandi að sjá einlæga undrun barnanna þegar þau sjá töfrabrögð. Dreymir um að töfravæða Ísland  Galdramaðurinn Einar Mikael opnar Galdraskólann á ný DUCA Model 2959 L 215 cm Leður ct. 20 Verð 469.000,- L 241 cm Leður ct. 20 Verð 495.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla JEREMY Model 2987 L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 415.000,- L 202 cm Leður ct. 30 Verð 559.000,- TRATTO Model 2811 L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,- L 207 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,- SAVOY Model V458 L 223 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,- L 223 cm Leður ct. 10 Verð 395.000,- ETOILE Model 2623 L 200 cm Leður ct. 25 Verð 429.000,- L 230 cm Leður ct. 25 Verð 465.000,-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.