Morgunblaðið - 19.09.2018, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 9. S E P T E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 220. tölublað 106. árgangur
ARNÓR ÓGNAR
METI KOLBEINS Í
MEISTARADEILD SAGAN AF
DÁTANUM
AFMÆLISHÁTÍÐ
HRÓKSINS Á
GRÆNLANDI
KAMMERSVEITIN 20 SKÁK 10ÍÞRÓTTIR KNATTSPYRNA
Vinsælustu útsýnisferðir þyrlufélagsins Norðurflugs eru
nefndar Ís og eldur. Er þá lent á Þórisjökli ofan Borgar-
fjarðar og við hveri á Nesjavöllum, nema farþegarnir hafi
aðrar óskir. Meðal gesta í flugi í gær var fólk frá Sádi-Arabíu.
Það var himinlifandi að geta notið tæra loftsins á Þórisjökli
enda vanara öðru og mollulegra veðri á sínum heimaslóðum.
Norðurflug hefur tekið í notkun nýja þyrlu sem er sérhönnuð
til útsýnisflugs. Flugrýmið er opnara en á öðrum þyrlum og
geta farþegarnir því séð betur frá sér. Vegna þessara eigin-
leika er þyrlan, sem er frá þyrluverksmiðju Airbus, vinsæl-
asta þyrla heims um þessar mundir, að sögn Birgis Ómars
Haraldssonar, framkvæmdastjóra Norðurflugs. Hann segir
að sitt fyrirtæki verði vart við samdrátt, eins og önnur fyr-
irtæki í ferðaþjónustu. Fyrirtækið sé háð gengisþróun og
hvaða augum ferðafólk líti á verðlag hér á landi.
Njóta tæra loftsins á Þórisjökli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinsælustu þyrluferðirnar eru á jökul og að hverasvæði
Helgi Bjarnason
Skúli Halldórsson
FISK-Seafood ehf., dótturfélag
Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðár-
króki, hefur keypt eignarhlut Brims
hf. í Vinnslustöðinni hf. í Vestmanna-
eyjum. „Mér líst vel á þetta. Við höf-
um verið í róstusamri sambúð [við
eigendur Brims] og vonað að henni
færi að ljúka. Allt bendir til þess að
við séum að fá góða menn inn,“ segir
Haraldur Gíslason, stjórnarformað-
ur Seilar ehf., sem er stærsti hlut-
hafinn í Vinnslustöðinni með um 40%
eignarhlut.
Tilkynnt var í gær að gengið hefði
verið frá samningi um kaupin. Brim
hf. átti tæpan þriðjung hlutafjár í
Vinnslustöðinni. Kaupverðið er 9,4
milljarðar króna. FISK er með höf-
uðstöðvar á Sauðárkróki en einnig
með starfsemi í Grundarfirði, á
Hólmavík og á Skagaströnd.
Jón Eðvald Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri FISK-Seafood, segir
að fyrirtækið sjái tækifæri í fjárfest-
ingunni. „FISK hefur lengi haft
áhuga á að tengjast […] fyrirtæki
sem er í veiðum og vinnslu á upp-
sjávarfiski,“ segir Jón. Hann telur
einnig að möguleikar felist í sam-
vinnu fyrirtækjanna.
Ánægja í Eyjum
Opinberar deilur og málaferli hafa
verið á milli eigenda Brims og hlut-
hafanna í Eyjum. Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson, framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar, segir að þar í
bæ ríki mikil ánægja með kaup
FISK-Seafood. Hann býst við betri
samskiptum við nýja hluthafann en
þann sem er að selja. „Ég held að
það sé alveg óhætt að segja það. Ég
hef enga trú á að aðrir fari jafn langt
niður og hluthafinn hefur farið. Eftir
allar þessar ásakanir og allt sem á
undan er gengið,“ segir Sigurgeir
Brynjar. „Ég hélt að það væri til-
gangur allra sem vilja vera hluthafar
í fyrirtækjum að stuðla að velferð
þeirra en það hefur stundum verið
misbrestur á því,“ segir Haraldur
Gíslason og vonast til að breytingin
verði til góðs.
Ekki náðist í Guðmund Kristjáns-
son, aðaleiganda Brims, í gær.
Brim selur í VSV
fyrir 9,4 milljarða
Aðrir hluthafar vonast eftir betri samvinnu við FISK
Vinnslustöðin
» Vinnslustöðin er rúmlega 70
ára gamalt fyrirtæki í Vest-
mannaeyjum. Það var stofnað
af 105 útgerðarmönnum í lok
árs 1946 og hóf síðar sjálft út-
gerð.
» Það er með fjölþætta fisk-
vinnslu og gerir út sjö fiski-
skip, auk sölu- og markaðs-
starfs víða um heim. Það
nýjasta er ísfisktogarinn Breki
sem kom til landsins fyrr á
árinu.
Framfarir Nýtt skip Vinnslustöðv-
arinnar, Breki VE, við bryggju.
MKaupa allan hlut »4
WOW air mun fljúga fyrsta áætl-
unarflug sitt milli Keflavíkur og Delí
á Indlandi í desember. Áform félags-
ins um að hefja Asíuflug eru óbreytt,
skv. upplýsingum sem Morgun-
blaðið aflaði í kjölfar þess að WOW
air tryggði sér 6,4 milljarða í
skuldabréfaútboði sem unnið hefur
verið að á síðustu vikum. Samkvæmt
upplýsingum frá félaginu verða fjár-
munirnir sem aflað var með útboð-
inu nýttir til rekstrarins og frekari
uppbyggingar. Þá verður hluta fjár-
hæðarinnar varið til að gera upp við
birgja félagsins.
Þá hyggur félagið á skráningu í
Kauphöll innan eins til eins og hálfs
árs. Verðmat á fyrirtækinu liggur
ekki fyrir en Arion banki og Arctica
Finance munu verða flugfélaginu til
ráðgjafar í skráningarferlinu. »16
Áform um
Indlandsflug
óbreytt
Morgunblaðið/Golli
Útboð WOW hefur nú tryggt sér
fjármagn með skuldabréfaútgáfu.
Fjármagn m.a. nýtt
til greiðslu skulda
Erlendur ferðamaður hrapaði í klett-
um í Kirkjufelli við Grundarfjörð í
gærmorgun og lést. Erlendur ferða-
maður lést einnig við fall í Kirkjufelli
í júlí á síðasta ári og á undanförnum
árum hafa björgunarmenn einnig
þurft að aðstoða ferðafólk sem lent
hefur í ógöngum í fjallinu.
Ferðamenn komu auga á manninn
þar sem hann lá í klettum um klukk-
an 10 í gærmorgun, samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar á Vestur-
landi, og létu Neyðarlínuna vita.
Lögreglan telur að maðurinn hafi
orðið viðskila við ferðafélaga sinn.
Talið er að hann hafi fallið úr tölu-
verðri hæð.
Björgunarsveitir af Snæfellsnesi
voru kallaðar út og þyrla Landhelg-
isgæslunnar flaug með fimm sér-
hæfða fjallabjörgunarmenn úr
Reykjavík. Maðurinn var látinn þeg-
ar að var komið. Þyrlan gat ekki lent
nálægt slysstaðnum vegna svipti-
vinda.
Björgunarsveitarmenn báru hinn
látna niður af fjallinu. Þeir þurftu
mjög að gæta eigin öryggis við nið-
urgönguna og tók hún um þrjár
klukkustundir, að sögn Davíðs Más
Bjarnasonar, upplýsingafulltrúa
Landsbjargar. Alls komu um 40
björgunarsveitarmenn að verkefn-
inu. helgi@mbl.is
Lést í
Kirkjufelli
Annað banaslysið
þar á rúmu ári