Morgunblaðið - 19.09.2018, Page 2

Morgunblaðið - 19.09.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. MANDUCA BURÐARPOKINN Manduca burðarpokinn er hannaður með það markmið að leiðarljósi að barn geti viðhaldið M-stellingu fóta og mjaðma. Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is bambus.is Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Sala er hafin á jólavarningi í versl- unum Bónuss. Verslunarkeðjan er byrjuð að selja piparkökur og kerti. Að sögn Guðmundar Marteins- sonar, framkvæmdastjóra Bónuss, eru kertin og piparkökurnar farin að seljast vel, þrátt fyrir að rúmir þrír mánuðir séu til jóla. Jólin eru einnig snemma á ferð- inni hjá verslunarkeðjunni Costco en verslunin hóf sölu á jólavörum í lok ágúst. Jólin byrja ekki eins snemma hjá Ikea að sögn Stefáns Dagssonar verslunarstjóra en þar byrja þau um miðjan október. Þá verður jóla- geitin sett upp sem áður, ásamt öðrum skreytingum. „Við erum ekki komin með neinar jólavörur inn í verslun enn sem komið er en þær eru byrjaðar að streyma til lands- ins. Fljótlega eftir að jólaskraut hefur verið sett upp kemur jólageit- in út á plan og jólaskreytingar á planið.“ Piparkökur komnar í verslanir  Jólin byrja snemma í Bónus  Jólageitin rís í október við IKEA Morgunblaðið/Eggert Jólalegt Piparkökur eru komnar í sölu í verslun Bónuss í Árbænum. Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is „Það var enginn sem gat mælt gegn þessu,“ segir Eyþór Arnalds, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Samþykkt var í borgarstjórn Reykjavíkur í gærkvöld að vísa tillögu hans um staðarvalsgrein- ingu fyrir aðra sjúkrahús- uppbyggingu í Reykjavík til borgarráðs til úrvinnslu. „Það þarf líka að ná sátt í þessum málum og ekki vera í skotgröfum,“ segir Eyþór. Hann segir ekki seinna vænna að fara af stað með staðarvalsgrein- ingu fyrir annað sjúkrahús, nú þeg- ar sér fyrir endann á fram- kvæmdum við Hringbraut. „Við höfum séð það að stór verkefni fara stundum af stað án nægs undirbún- ings, sem verður til þess að þau verða umdeild og fara fram úr áætlun. Bæði sjúklingar og heil- brigðisstarfsfólk eiga að geta átt val um fleiri en einn stað,“ segir Eyþór, og að borgin sem höfuðborg eigi að bjóða upp á bestu valkostina fyrir stofnanir eins og spítala. Það sé hins vegar ekki staðan í dag. „Borgin hefur verið að tapa í samkeppni við Kópavog og önnur sveitarfélög. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, Íslandsbanki og fleiri hafa farið þangað vegna þess að það er enginn staður fyrir stofnanir af þeirri stærðargráðu í borginni, hvað þá nýtt sjúkrahús. Við hyggjum að framtíðinni. Hún kemur fyrr en okkur grunar.“ Eyþór er að vonum ánægður með þá sátt sem virðist vera um málið innan borgarstjórnar. „Nú er bara að sjá hvort efndir fylgi orð- um. Við munum fylgja því fast eft- ir.“ Ekki náðist í Dag B. Eggertsson borgarstjóra við vinnslu fréttarinn- ar í gærkvöld. Tillaga um sjúkra- hús til borgarráðs Eyþór Arnalds  Eyþór Arnalds borgarfulltrúi ánægður með meðferð málsins í gær Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fyrirmæli heilbrigðisráðherra til Sjúkratrygginga Íslands um að synja sérfræðilækni um skráningu á rammasamning Sjúkratrygginga og Læknafélags Reykjavíkur voru haldin svo mikl- um annmörkum að ákvörðun Sjúkratrygginga sem á þeim bygg- ist er dæmd ógild. Þetta er niðurstaða Hér- aðsdóms Reykja- víkur í máli eins sérfræðilæknis en hún gildir fyrir sjö aðra lækna sem höfðuðu samskonar mál á sama tíma en samkomulag var um að reka eitt mál til enda og láta niðurstöðuna gilda um öll hin málin. Þrír síðustu heilbrigðisráðherrar hafa gefið fyrirmæli til Sjúkra- trygginga um að veita ekki fleiri sérfræðilæknum aðild að ramma- samningnum. Rökin voru þau að út- gjöld við þessa þjónustu hefðu farið fram yfir fjárheimildir. Nánast eng- inn læknir hefur fengið aðild að samningnum síðustu tvö árin, jafn- vel þótt þörf hafi verið á þjónustu þeirra. Á þessum tíma hefur um- sóknum sautján lækna verið hafnað. Læknafélag Reykjavíkur studdi málarekstur læknanna sem ákváðu í fyrra að fara í mál til að fá ákvörðun Sjúkratrygginga og ráðherra hnekkt. Samningurinn verði opnaður „Ég fagna þessari skýru niður- stöðu dómsins. Það er mjög vel rök- stutt að synjunin er lögbrot,“ segir Þórarinn Guðnason, formaður Læknafélags Reykjavíkur. Hann telur niðurstöðu dómsins fordæm- isgefandi, að minnsta kosti fyrir aðra lækna sem fengið hafi synjun Sjúkratrygginga, og tekur Gísli Guðni Hall, lögmaður læknanna, undir það. Ríkið hefur fjórar vikur til að ákveða hvort dómnum verður áfrýj- að. Svandís Svavarsdóttir heilbrigð- isráðherra mun ræða málið við rík- islögmann í dag, samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu. „Það væri mjög skynsamlegt hjá heilbrigðisráðherra að opna samn- inginn nú og nýta tækifærið til breytinga. Veita fleiri læknum aðild að honum og ganga svo til samninga við sérfræðilækna. Landsmenn finna að það er mikil þörf á þessari þjónustu og víða skortur á henni,“ segir Þórarinn. Samningar sér- fræðilækna og ríkisins renna út um áramót. Ekki fullnægjandi mat Í niðurstöðu dómsins kemur fram það álit að ekki fór fram fullnægj- andi mat á umsókn læknisins um að fá aðild að rammasamningnum með tilliti til þeirra fjölmörgu faglegu þátta sem skiptu máli við úrlausn umsóknarinnar. Með því var brotið gegn lögmætisreglunni og megin- reglu stjórnsýsluréttar um skyldu- bundið mat stjórnvalda. Ráðherra ekki heimilt að banna samninga  Sérfræðilæknar unnu dómsmál gegn Sjúkratryggingum Þórarinn Guðnason Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Alþjóðlegt sérhæft gagnaversfyrir- tæki, Etix Group, með höfuðstöðvar í Lúxemborg, hefur keypt 55% hlut í gagnaversfyrirtækinu Borealis Data Center. Etix Group er að 41% hluta í eigu japanska bankans SBI Hold- ings. Fyrir kaupin voru helstu eig- endur félagsins Brú Venture Part- ners með 37,52% hlut, Björn Brynjúlfsson, framkvæmdastjóri fé- lagsins, með 16,67% og Gísli Hjálm- týsson með 13,78%. Borealis hefur um árabil rekið gagnaver á Ásbrú á Reykjanesi, en tvö ný gagnaver fyrirtækisins munu hefja starfsemi á næstunni, annað við Blönduós og hitt á Fitjum. Björn segir í samtali við Morg- unblaðið að fjárfestingin hlaupi á hundruðum milljóna króna, og bæði nýju gagnaverin séu uppseld, ekki komist fleiri tölvur þar inn. Eftir söl- una mun fyrirtækið breyta um nafn og heita Etix Everywhere Borealis. 2.000 hátæknitölvur Björn segir að í nýja gagnaverinu á Blönduósi muni verða reknar 2.000 tölvur, en bæði gagnaverin eru svo- kölluð hátæknigagnaver. „Nýi eig- andinn er mjög sterkur á þessu sviði. Borealis er að styrkja sig gríð- arlega með þessum nýja hluthafa og þeirri rekstrar- og tækniþekkingu sem hann býr yfir, en Etix rekur gagnaver um allan heim,“ segir Björn. Hann segir að kaupin muni hafa mikil og góð áhrif á íslenska gagna- versgeirann. „Það eru allir að stækka. Ekki bara við heldur líka Advania og Verne. Þetta er geiri sem nýtir okkar náttúruauðlindir. Allt í einu er rokið og rigningin orðin auðlind. Við horfum á þetta sem langtíma samkeppnisforskot, því við erum með endurnýjanlega orku og kalt veðurfar. Auðvitað er staðsetn- ingin nokkuð frá helstu mörkuðum, en áhættan er minni en víða annars staðar. Þá eru flugsamgöngur mjög góðar hingað til lands, sem er hent- ugt fyrir þá viðskiptavini sem vilja koma til að sinna tölvunum sínum. Allt þetta hjálpast að við að gera Ís- land að frábærri staðsetningu,“ seg- ir Björn. Aðspurður segir Björn að í gagna- verunum þremur muni verða blanda af hátæknivinnslu og blockchain-raf- myntagreftri. „Blockchain er ennþá burðarliðurinn í rekstrinum, en munurinn á milli rafmyntagraftrar og hátæknivinnslu er alltaf að verða óskýrari. Sumt af þeim vélbúnaði sem er í þessum gagnaverum getur gert hvort tveggja. Það er bæði hægt að vinna Hollywood-kvikmynd og grafa eftir rafmynt á sama vél- búnaðinum, svo dæmi sé tekið. Við munum a.m.k. verða með dálítið breiða flóru af vélbúnaði inni í hús- unum okkar.“ Björn segir að stækkun gagnaver- anna sé í undirbúningi, en í lok árs- ins er stefnt að því að 30.000 tölvur verði reknar í húsunum þremur. Meirihluti Borealis úr landi  Alþjóðlega gagnaversfyrirtækið Etix Everywhere hefur keypt meirihluta í gagnaversfyrirtækinu Borealis  Fyrirtækið er á þremur stöðum á landinu Gagnaver Etix Group hefur keypt 55% hlut í Borealis Data Center. Jáeindaskanninn á Landspítalanum við Hringbraut var tekinn í notkun í síðustu viku. Pétur H. Hannesson, yfirlæknir á röntgendeild, segir að níu sjúklingar hafi þegar gengist undir rannsókn í tækinu. Tilkoma jáeindaskannans breytir miklu fyrir fjölmarga íslenska sjúk- linga, en í fyrra fóru yfir 200 manns til Danmerkur til þess að gangast undir rannsókn í Rigshospitalet. „Það mun náttúrlega alveg hætta,“ segir Pétur, en bætir við að keyrslan á jáeindaskannanum hafi ekki verið alveg trygg fyrstu dag- ana og fari því einhverjir utan í rannsóknir fyrst um sinn. Morgunblaðið/Eggert Rannsóknir Byggt var nýtt hús utan um jáeindaskannann á Landspítalanum. Níu rannsakaðir í jáeindaskannanum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.