Morgunblaðið - 19.09.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.09.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2018 Ekki er víst að óhætt sé að endur-birta pistil Halldórs Jónssonar:    Þegar ég hugsa tilbaka hvernig maður hegðaði sér á dansæfingum í MR. Búinn að tendra sig upp á brennivíni og Camelsmók bauð maður stelpunum upp og reyndi allt til að vanga þær og trukka og helst að komast í sleik.    Þessi hegðun myndi koma í vegfyrir að ég yrði samþykktur í embætti ef Trump myndi vilja hygla mér eins og Kawanough eða hvern- ig það er stafað.    Sá kall hegðaði sér eitthvað svonaá menntaskólaböllum fyrir ein- um þrjátíu árum. Nú ætla demókrat- arnir að nota það til að hindra að þessi dóni komist í Hæstarétt Bandaríkjanna.    Ef bara hefðu verið dömufrí í MRí gamla daga hefði mér líklega sjaldnar verið boðið upp en þeim myndarlegri. Fyrir bragðið hefði ég líklega minna á samviskunni varð- andi mögulegt embættisgengi og færri stelpur hefðu talið sig geta hankað mig á einhverju, þó svo að ég hafi ekki orðið var við mikla mót- spyrnu þeirra á þeim tíma. En kannski hef ég bara fattað þetta vit- laust eins og þeir í Orkuveitunni.    Ef bara konur mættu hafa kyn-ferðislegt frumkvæði í formi almenns dömufrís en ekki þessir ólaungröðu kallar sem vaða all- staðar uppi, bæði prelátar, parag- raffistar og pólitíkusar, þá yrðu kannski færri vandræði en nú ríða allstaðar húsum.“    Frábært hve flokkur þeirraKennedys og Clintons er orð- inn heilagur. Halldór Jónsson Samfélag heilagra STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Meira til skiptanna Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Lögreglan í Borgarnesi rannsakar nú mögulegt vopna- og veiðilagabrot í Rauðasandi á Mýrum. Veiðimenn á báti skutu þar tugi fugla að sögn sjónarvotta. Lögreglan segir að um sé að ræða veiðar í óleyfi innan landamerkja jarðar. Jónas Hallgrímur Ottósson, rannsóknarlög- reglumaður hjá lögreglunni á Vesturlandi, stað- festir við Morgunblaðið að rannsókn sé í gangi en getur ekki sagt til um fjölda þeirra fugla sem voru drepnir né heldur hvort einhverjir þeirra voru friðaðir. „Við vitum ekki hvaða fuglar þetta eru, en við erum að rannsaka veiðar innan landa- merkja jarðar í óleyfi og brot á vopnalögum og veiðilöggjöf. Við getum ekki staðfest ennþá hvort fuglarnir voru friðaðir,“ segir Jónas. Í stórhættu nálægt skothríðinni Inga Lóa Guðjónsdóttir var í um 120 metra fjarlægð þegar veiðimennirnir hleyptu af skot- vopnum sínum. „Ég var náttúrlega rétt hjá og heyrði skothríð- ina,“ segir Inga í samtali við Morgunblaðið og bætir við að hún viti til þess að þarna hafi æð- arfugl verið í sárum. „Það á eftir að sanna það hvort þetta var æðarfugl sem þeir voru með um borð eða ekki. Þetta voru aðilar sem voru þarna á veiðum og við vissum að það var þarna æðarfugl í sárum, en ég ætla ekki að fullyrða hvort þetta var æðarfugl sem þeir voru að skjóta. Það verður bara að koma í ljós,“ segir Inga, en hún býr í nálægð við svæðið sem er æðarvarp á vorin. „Maður var bara í stórhættu, við vorum 120 metra frá,“ bætir Inga við. Þá segir hún að veiðimennirnir hafi hirt þá fugla sem þeir skutu en ekki sé útilokað að ein- hverjir þeirra hafi farið út með hafstraumnum. Rannsaka vopnalagabrot á Rauðasandi  Veiðimenn á báti grunaðir um að skjóta tugi fugla í óleyfi Staðan í starfsmannamálum í leik- skólum, grunnskólum og frístunda- starfi í Reykjavík er betri í ár en í fyrra. Þetta kemur fram í nýjasta yf- irliti um stöðu ráðningarmála á vef Reykjavíkurborgar en starfsmanna- mál í skólum voru til umræðu í borg- arstjórn í gær. Í yfirlitinu segir að um það bil 62 starfsmenn vanti enn til starfa í leik- skóla borgarinnar, m.a. fimm aðstoð- arleikskólastjóra, fimm deildarstjóra og 34 leikskólakennara. Á sama tíma í fyrra var staðan í ráðningarmálum leikskólanna tals- vert verri en þá átti eftir að ráða í um 120 stöðugildi. Nær fullráðið í grunnskólana Í 36 grunnskólum borgarinnar er búið að ráða í rösklega 98% allra stöðugilda, en enn vantar u.þ.b. 33 starfsmenn. Þar af vantar m.a. 11 kennara, 10 stuðningsfulltrúa, sjö til átta skólaliða, tvo þroskaþjálfa og tvo starfsmenn í mötuneyti og á bóka- safni. Á sama tíma í fyrra vantaði u.þ.b. 60 starfsmenn í grunnskólana. Enn er óráðið í rösklega 100 stöðu- gildi hjá 39 frístundaheimilum og sér- tækum félagsmiðstöðvum, sem jafn- gildir 211 starfsmönnum í hálfu starfi. Búið er að ráða í 71,1% stöðugilda. Á sama tíma í fyrra vantaði 226 starfs- menn í hálft starf. Hinn 20. ágúst var búið að sækja um fyrir 4.125 börn á frístundaheimili og sértækar fé- lagsmiðstöðvar en einungis 2.766 börn eru komin í vist þar af 574 í hlutavist. mhj@mbl.is Borgin ráðið í fjölda stöðugilda  Starfsmannamál í skólum fara batnandi Morgunblaðið/Frikki Skólamál Borgin hefur ráðið fjölda starfsmanna í leik- og grunnskóla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.