Morgunblaðið - 19.09.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.09.2018, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2018 ✝ Agnar Þóris-son fæddist í Reykjavík 30. októ- ber 1984. Hann lést 12. september 2018. Foreldrar hans eru Lára G. Vil- hjálmsdóttir, fædd 29. janúar 1961, og Þórir Páll Agnars- son, fæddur 4. júní 1954. Systkini Agnars eru Linda Kristín, f. 7. júlí 1977 , Hildur, f. 29. apríl 1983, Ester Rut, f. 17. mars 1991, og Eva María, f. 23. mars 1998. Agnar var ókvæntur og barn- laus. Agnar gekk í Breiðagerðis- skóla og Seyðisfjarðarskóla. Fluttist hann svo til Reykjavíkur á 16. ári og hóf nám í Borgarholtsskóla. Útskrifaðist hann þaðan sem bifvéla- virki og árið 2013 útskrifaðist Agnar sem löggiltur bif- reiðasali. Síðastliðin ár hefur hann starfað sem bílasali hjá Bílalind, Toppbílum og keypti svo sína eigin bílasölu, Net- bifreiðasöluna, í desember árið 2016 og rak hana rak til dagsins í dag. Útför Agnars fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 19. september 2018, og hefst at- höfnin klukkan 13. Minn ástkæri sonur, hversu heitt ég elska þig get ég ekki út- skýrt með orðum en hjartað mitt er yfirfullt af minningum um tæp- lega 34 ára lífsins göngu þína. Þú ert þriðja barnið mitt og miðjudrengur. Guð hvað ég kall- aði hátt, ég vissi það að son myndi ég fæða þó að ég hefði ekki vitað það fyrir fram eins og foreldrar geta í dag. Þú varst ætíð ljúfur og íhugull og svolítið mikill dundari við alls- konar söfnun á ýmsu smádóti sem þú gast eytt heilu og hálfu dög- unum í að skoða. Þín æska var umvafin tveimur eldri systrum sem elskuðu þig, Linda sjö árum eldri og Hildur 18 mánuðum eldri. Við bjuggum fyrstu fjögur árin í Breiðholti og svo í Melgerði í Reykjavík. Þaðan áttu marga góða og sanna vini sem studdu þig fram til síðasta dags. Í kringum 1991 fór ég að taka eftir öðruvísi líkamshreyf- ingum sem ég taldi stafa af slysi sem þú lentir í í janúar sama ár. Ég fór með þig til alls konar þjálf- ara sem gátu ekki útskýrt hvers vegna líkami þinn hlýddi þér ekki alltaf. Í mars sama ár eignast þú þriðju systurina sem þú heillaðist strax af, Ester Rut, og elskaðir að sitja með í fanginu á þér og þefa af hárlubbanum á henni. Þú stundaðir af miklum áhuga íshokkí með frændum þínum Fannari og Viktori og æfðir fót- bolta með Víkingi. Öll sumur til ársins 1994 fórum við norður á Hjalteyri, einn feg- ursta stað landsins. Þú elskaðir lífið á eyrinni og góðu lyktina á heimili Agnars afa þíns heitins. Þið voruð alnafnar og ákaflega nánir. Nú ertu kominn í fangið á hon- um á ný og því ber að þakka. Þú ert laus við þjáningar miskunnar- lauss sjúkdóms sem stafaði af genagalla sem greindist 2015 eftir tveggja ára rannsóknavinnu. Árið 1997 fluttum við austur á Seyðisfjörð og heillaði sá fjörður þig strax. Þar kláraðir þú grunn- skólagöngu þína. Þú útskrifaðist sem bifvélavirki úr Borgarholts- skóla með glæsibrag. Árið 1998 fæddist fjórða og yngsta systir þín, Eva María. Þú sást ekki sólina fyrir henni. Litli engillinn minn hljómaði oft úr herbergi þínu þar sem þið sátuð að skoða allt leynidótið þitt. Þú fermdist þetta sama vor og varst ekki of upptekinn af þér eða því sem framundan var í þínu lífi að staðfesta skírn þína. Þér fannst miklu merkilegra að eiga litlu syss. Það kom fljótt í ljós hve sjálf- stæður þú varst og hugrakkur því þú ákvaðst að fara að heiman og flytja til Reykjavíkur. Hugsuðu margir hvers vegna, en sjálfstæði þitt fór með þig alla leið til Lindu elstu systur þinnar og mágs þíns sem var ekki bara maðurinn hennar Lindu, hann gekk þér má segja í föðurstað sem og var einn þinn besti vinur. Þú elskaðir allt sem viðkom bílum alla tíð og pass- aðir upp á bílamál allrar fjölskyld- unnar. Þú áttir nokkra tugi bíla og „Aggaðir“ þá alla upp og gerðir þá að þínum. Þú fórst að vinna á bíla- sölu sem þú starfaðir við til þíns síðasta dags. Seint á árinu 2016 keyptir þú þína eigin bílasölu með þvílíkum dugnaði þrátt fyrir erfið veikindi og gerðir að einni glæsi- legustu og virtustu bílasölu lands- ins. Sjúkdómurinn þinn var svo miskunnarlaus að engin orð eru nógu sterk til að lýsa honum. Nú ertu frjáls, elsku hjartans dem- anturinn minn. Takk fyrir að fá að vera móðir þín og fá að fylgja þér í gegnum lífið, takk fyrir vináttu þína og trúnóspjöllin sem við áttum, takk fyrir að treysta mér fyrir að hlúa að þér síðustu þrjú árin, takk fyrir hugrekkið og styrkinn sem þú efldir mig af. Hvíl í friði, elsku hjartans sonur minn. Þín mamma. Elsku Agnar, elsku besti bróðir minn, vinur, lífskennari og svona gæti ég endalaust talið upp. Þú kenndir mér svo margt og hefur þannig greitt mér leið á lífsins göngu sem er mér ómetanlegt. Ég hringdi í þig á ólíklegustu tímum til að fá ráð og reddingar við hinu og þessu. Ég var varla búin að kveðja þig í símanum þeg- ar þú hringdir til baka búinn að redda málunum, aldrei klikkað- irðu. Við lifðum bæði hratt og tím- inn flaug hraðar en við oft áttuð- um okkur á, en ég er þakklát fyrir allar þær gæðastundir sem við gáfum okkur til að eiga saman. Borða góðan mat, spjalla um dag- inn og veginn, horfa á bíómyndir, þú sýndir mér bíla og nýju úrin sem voru að bætast í safnið. Okkur leiddist heldur ekki að skála í eins og einum köldum með- an við biðum eftir að pítsan eða pastarétturinn yrði klár. Brosinu þínu og hlátrinum mun ég heldur aldrei gleyma, enginn sem brosir jafn breitt með öllu andlitinu og þú, sem smitaði mann á augabragði. Enda var aldrei dauð stund með þér, minni kæri, endalausar sögur sem flestar end- uðu á hlátursköstum. Þú varst og ert sá hjartahlýj- asti og traustasti einstaklingur sem ég hef kynnst og drifkraftur- inn sem þú bjóst yfir var svo mikill og hvetjandi fyrir okkur hin sem fylgdumst með þér. Minning þín mun alltaf eiga risastóran stað í hjarta mínu, hetj- an mín. Ég elska þig. Þín systir, Ester. Elsku gullið mitt. Það er svo erfitt að skrifa til þín þegar orðabankinn er hálftómur. Ég elskaði að skrifa til þín, enda einstaklega „góður penni“ eins og þú sagðir alltaf. Mér þótti svo gaman að heyra hve vænt þér þótti um bréfin mín. Þú varst sjálfur góður penni og voru af- mælis- og jólakortin frá þér dýr- mætari en nokkuð annað sem maður fékk, skrifuð beint frá hjartanu. Allar stundir með þér voru ómetanlegar. Þótt þú hafir nú stundum verið að siða mann til, þá var það gert af eintómri ást frá stóra bróður til litlu systur. Engin orð voru jafn marktæk og þín. Svo klár á lífið, vissir alltaf lausnina á öllu og kenndir mér svo ótal margt. Mann hefði helst langað í sím- tal hvern dag, dinner öll kvöld og góðan ísrúnt á eftir þar sem við blöstuðum vel valinni tónlist. En með vinamarga meistara eins og þig er það erfitt. Maður þurfti víst að deila gleðipinnanum með öðr- um. Þetta er eins og að slást um Íslandsmolann í Nóa-konfektinu, bara eitt stykki, einstakur og öðruvísi en allir hinir, og svo lang lang bestur. Alveg nákvæmlega eins og þú, gullmolinn okkar. Vá, hvað þú ert elskaður Agnar. Það er svo auðvelt að elska þig og ég held að ég tali fyrir hönd allra sem kynntust þér. Öll stærstu orðin í orðabókinni duga hreinlega ekki til þess að lýsa jafn mögnuðum manni og þér. Takk fyrir allt sem þú gafst mér og Stormi Nóel. Góða ferð í fallega draumalandið. Ég elska þig til tunglsins og til baka, og svo miklu meira en það. Að eilífu og alltaf. Þín yngsta systir, Eva María. Elsku Aggi okkar, við getum ekki þakkað nóg fyrir þau forrétt- indi sem við nutum að hafa haft þig í lífi okkar. Fallegri og sterk- ari bróður, vin og frænda er ekki hægt að hugsa sér. Þú varst alltaf til staðar á þinn einstaka hátt fyrir mig og strákana og kenndir okkur svo ótrúlega margt með styrk- leika þínum þrátt fyrir þann átak- anlega sjúkdóm sem þú fékkst í hendurnar og þurftir að glíma við alla daga síðastliðin ár og sérstak- lega síðustu vikurnar. Öðrum eins styrk höfum við aldrei kynnst. Faðmaðu frelsið, elsku Aggi. Takk fyrir allar gæða- stundirnar, matarstundirnar, samveruna, takk fyrir allt og allt. Þín verður svo sárt saknað, elsku hjartagullið okkar. Endalaus ást, kærleikur og virðing. Þín gullnu spor um ævina alla hafa markað langa leið. Skilið eftir ótal brosin, og bjartar minningar sem lýsa munu um ókomna tíð. (Hjartalag) Linda, Kjartan, Alexander og Patrekur. Fljúgðu frjáls, elsku vinur. Eft- ir margra ára þrautagöngu ertu floginn á vit ævintýranna með afa, sem ég veit að beið með opinn faðminn eftir þér. Hvað ég mun sakna þín, elsku bróðir. Lífið er svo hverfult og óskiljanlegt. Það eina sem huggar þessa stundina er fullvissan um að þú þjáist ekki lengur og ert laus úr líkama sem var hættur að gagnast þér. Það var svo margt sem var búið að taka af þér, samt tókst þér alltaf að finna leiðir til að njóta lífsins með hjálp traustra vina. Hvað þú barðist hart og fórst þangað sem þú ætlaðir þér. Elsku hjartað mitt. Minning- arnar eru svo margar og skarðið sem þú skilur eftir svo stórt. Því- líka teymið sem við vorum sem börn, nánast eins og tvíburar. Bæði uppátækjasöm og hrekkj- ótt, sem bitnaði stundum óþarf- lega á þér. Ævintýrin voru ófá og þá sérstaklega á uppáhaldsstað okkar beggja, Hjalteyri. Þar átt- um við okkar allra bestu æsku- minningar sem við yljuðum okkur við í seinni tíð. Þvílíkt ævintýra- land sem eyrin og brekkurnar á Hjalteyri buðu upp á. Og elsku afi sem var okkur svo góður. Ég veit að nú mun hann gæta þín vel. Ég er svo óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið að passa upp á þig síð- ustu dagana. Tengingin og vænt- umþykjan á milli okkar var svo sterk. Kvöldið áður en hjarta þitt sló í hinsta sinn baðstu mig um að segja þér sögur og við rifjuðum upp prakkarastrikin og uppátæk- in í frelsinu á Hjalteyri. Hvað við gátum hlegið saman. Ég er svo stolt af þér, æðruleysinu, styrkn- um og viljanum til að gera sitt allra besta á hverjum einasta degi. Þú lifðir í hugrekki og ég er svo þakklát fyrir að hafa getað sagt þér það. Þú rakst fyrirtæki þitt af vandvirkni og metnaði og mættir fárveikur í vinnuna nánast fram á síðasta dag. Ég veit að þú ert í góðum höndum hjá afa núna og hleypur frjáls um laus við hlekki sjúkdómsins. Takk fyrir allt sem þú gafst okkur. Elska þig að eilífu, bróðir minn. Við sameinumst aftur þegar minn tími kemur. Þín systir, Hildur. Agnar frændi var engum manni líkur nema jú sjálfum sér. Ekkert vandamál var of stórt fyr- ir hann og aldrei skortur á úrræð- um. Fólk úr öllum áttum og stéttum löðuðust að þessari einstöku per- sónu, enda ávallt léttur í lund og kímnigáfan í toppstandi. Agnar bjó yfir þeim einstaka hæfileika að gera alla daga æðis- lega, þó að maður væri ekki endi- lega við hliðina á honum. Eitt snapp frá honum var yfirleitt nóg til að gera daginn betri enda inni- haldinu ekki ábótavant. Hann var fastur á sínum skoð- unum og kærði sig kollóttan um hvað öðrum fannst og hafði ein- staka sýn á hluti sem aðrir sáu ekkert endilega fyrir sér í fyrstu. Eins og liturinn á bílasölunni hans sem hann unni. Kærleikur hans til næsta náunga var smitandi, viskan svo mikil í þessum unga manni og ein- lægur, meira en hjá flestum. Hann kenndi manni að njóta lífsins, grípa öll tækifæri, fagna öllum viðburðum, stórum sem smáum; hann gerði það alltaf og heldur því áfram. Þín verður sárt saknað, elsku frændi, vinur, bróðir. Fannar Eyjólfsson, Birna Ásgeirsdóttir og börn. Sæti og ljúfi systursonur minn og vinur sona minna, Fannars og Viktors, hefur nú kvatt þennan heim, langt fyrir aldur fram. Þeir voru miklir og góðir frændur og vinir alla tíð og gullmolar í augum Agnars og það var gagnkvæmt. Það eru þung spor hverri móður að jarða son sinn og ég bið góðan Guð að vernda og styrkja elsku Láru systur á þessari erfiðu göngu, sem og systur hans og fjöl- skyldur þeirra, syni mína, systkin mín, vini hans og okkur öll sem syrgjum hann, elskuðum hann og söknum. Lífskraftur, gott skap, já- kvæðni og dugnaður elsku sæta frænda míns var einstakur og kraftur hans undir það síðasta var ótrúlegur. Hann kvaddi þennan heim á meðan við maðurinn minn vorum á siglingu í Lyon í góðra vina hópi og mun sú borg og það fagra paradísarumhverfi sem þar er ávallt minna mig á þig. Þegar ég spurði þig hvort þú hefðir gert allt sem þig langaði til var svar þitt já en þú bættir svo við að fall- hlífarstökk ættir þú eftir. Við komumst að því að það væri nokk- uð sem við bæði værum logandi smeyk við en skildum hvorugt hvers vegna okkur langaði svo mikið til að prófa. Ég er viss um að þú prófar það núna og alveg óhræddur í nýjum fögrum heimkynnum og ég skelli mér með þér þegar ég kem þang- að sjálf síðar og veit að þú munt hjálpa elsku Hjöddu frænku. Það er svo margt sem við öll getum lært af þér og þess á meðal er að nýta vel hvert augnablik og vera alltaf jákvæður og kærleiks- ríkur. Þú skilur eftir þig djúpa minn- ingarslóð og stórt skarð. Lífið er svo stutt, og svo allt of stutt hjá þér. Blessuð sé minning þín, elsku sæti frændi minn, og Anton minn biður að heilsa. Góða ferð og ég kveð þig að sinni með þessum orð- um Einars Ben. Orka þér entist aldur tveggja manna að vinna stórt og vinna rétt. Vitur og vinsæll varstu til heiðurs í þinni byggð og þinni stétt. Höfðingi héraðs, hátt þín minning standi, ávaxtist hjá oss þitt ævistarf. Þjóðrækni, manndáð, þol og tryggð í raunum þitt dæmi gefi oss í arf. (Einar Benediktsson) Þín frænka Hjördís Vilhjálmsdóttir. Það er erfitt að sætta sig við þegar góður vinur deyr langt fyrir aldur fram, í dag kveðjum við Agga í hinsta sinn. Eitt andartak stóð tíminn kyrr, æddi síðan inn um glugga og dyr, hreif burt vonir, reif upp rætur. Einhvers staðar engill grætur. Hvers vegna hér – menn spá og spyrja. Spurningar flæða, hvar á að byrja? Fólkið á þig kallar, Kristur, kvölin nístir bræður og systur. Tárin eru leið til að lækna undir lífið er aðeins þessar stundir. Gangverk lífsins þau látlaust tifa og við lærum með sorginni að lifa. (Bubbi Morthens) Elsku Lára, Linda, Hildur, Ester Ósk, Eva María og fjöl- skyldur, innilegar samúðarkveðj- ur til ykkar allra. Minningin um dásamlegan ungan mann mun lifa. Arnfreyr, Steinunn, Eygló, Arney og Rebekka. Nú ertu farinn, nú ertu farinn frá mér, elsku besti vinur minn til margra ára, samstarfsfélagi, yfir- maður og mentor. Við erum búnir að bralla svo margt saman í gegnum árin að það myndi fylla heila bókahillu. Þú tókst mig undir þinn verndar- væng, studdir mig til dáða í gegn- um löggildinguna til bílasala og eftir situr reynsla og þekking frá þér sem hefur mótað mig og gert mig að þeim manni sem ég er í dag. Ég hef aldrei kynnst eins ynd- islegum og áreiðanlegum vini, þú varst gull af manni sem varst allt- af tilbúinn að aðstoða fólkið þitt eftir bestu getu og sýndir öllum í kringum þig svo mikinn kærleik. Elsku Aggi minn, hjartans vin- ur minn, ég sakna þín meira en orð fá lýst, það vantar svo hinn helminginn af mér alla daga og hér er tómlegt án þín en ég veit að þú munt vaka yfir mér í framtíð- inni á meðan ég held draumi okk- ar beggja gangandi. Elsku Lára og fjölskylda, ykk- ur sendi ég alla mína ást, samúð og styrk á þessum erfiða tíma. Haraldur Fossan. Elsku vinur okkar hann Agnar er nú fallinn frá allt of snemma eftir erfið veikindi og kominn í draumalandið. Aggi var algerlega einstakur maður. Hann var með eindæmum hjartahlýr og einlægur, með út- geislun á við sólina og með sérlega góða nærveru. En fyrst og fremst var hann góður og sannur vinur. Hann skilur eftir sig stórt skarð í vinahópnum en minning um ein- stakan dreng mun lifa í hjörtum okkar. Efst í huga okkar á þessum erf- iðu tímum er þakklæti. Takk fyrir allt, takk fyrir allar veiðiferðirnar, bústaðaferðirnar, utanlandsferð- irnar og minningarnar sem við höfum búið til á öllum þessum ár- um. Takk fyrir að vera góður vin- ur. Gulli og perlum að safna sér sumir endalaust reyna, en vita ekki að vináttan er verðmætust eðalsteina Gull á ég ekki að gefa þér Og gimsteina ekki neina En viltu muna að vináttan er verðmætust eðalsteina (Hjálmar Freysteinsson) Ein ást. Ari og Soffía. Agnar Þórisson Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir, SIGURÐUR BERGÞÓRSSON, lést fimmtudaginn 13. september. Jarðarför auglýst síðar. Herdís Stephensen Ingvar Sigurðsson Unnur Sigurðardóttir Steindór Ögmundsson Bergþór Atlason Friðrik Þór Steindórsson Hafdís Snorradóttir Yngvi Steindórsson Hafrún Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.