Morgunblaðið - 19.09.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.09.2018, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2018 ✝ Sjöfn Halldórs-dóttir fæddist á Heiðarbæ í Vill- ingaholtshreppi 17. janúar 1939. Hún lést á Ási í Hvera- gerði 5. september 2018. Foreldrar henn- ar voru Halldór Guðbrandsson og Heiðrún Björns- dóttir. Systkini hennar: Hafsteinn, Hákon, Unnur, Hólmfríður Guðný, Bergþór og Birna. Maki Sjafnar er Eyvindur Er- lendsson leikstjóri, f. 14.2. 1937. Börn þeirra eru: 1) Ásta Guð- rún myndlistarmaður, f. 24.5. 1959, d. 16. maí 1998. 2) Heið- rún Dóra bókasafns- og upplýs- Sjöfn og Eyvindur hófu bú- skap í Reykjavík, fluttu þaðan 1969 og bjuggu á Heiðarbæ í Villingaholtshreppi til ársins 1975 þegar þau fluttu í Hátún í Ölfusi þar sem þau bjuggu síðan. Sjöfn vann sem ráðskona hjá Skógrækt og Vegagerð til fjölda ára þar til hún stofnaði blómabúðina sína Sjafnarblóm á Selfossi sem hún átti og rak frá 1992 til ársins 2003. Hún hafði gaman af félags- málum, var mjög virk í starfi Kvenfélagsins Bergþóru í Ölf- usi og var heiðursfélagi þar, var í Kvenfélagi Villingaholts- hrepps þar áður. Söng í kirkju- kórum í Skálholti, Ólafsvöllum á Skeiðum og á Kotströnd. Sjöfn tók virkan þátt í stjórn- málum, sat í sveitarstjórn í Ölf- usi og var í framboði til Alþing- is fyrir Bandalag jafnaðar- manna. Útförin fer fram frá Kot- strandarkirkju í dag, 19. september 2018, klukkan 14. ingafræðingur, f. 25.5. 1960. 3) Reyn- ir Þór rafmagns- verkfræðingur, f. 19.3. 1963. Maki Rún Halldórsdóttir læknir. Börn þeirra Halldór, Pálmi og Erlendur Rúnar. 4) Heimir, kennari og tónlistarmaður, f. 14.4. 1968. Fyrr- verandi maki Sól- rún Auður Katarínusardóttir þroskaþjálfi. Börn: Eyþór, Ólaf- ur Bjarki og Andrea Sjöfn. 5) Erlendur, flugmaður og tölv- unarfræðingur, f. 26.7. 1976. Maki Júlía Kristjánsdóttir graf- ískur hönnuður. Börn þeirra Heiðrún Hekla og Grímur Heið- ar. Fallin er frá Sjöfn Halldórs- dóttir, föðursystir mín og kær frænka. Öll æska mín litast af minning- um um hana. Sjöfn og pabbi voru náin enda voru þau stóru systk- inin, ásamt Hafsteini, í stórum systkinahópi. Annað var að ég var elsta barn foreldra minna og elstu dætur Sjafnar og Eyvindar voru fæddar hvor sínum megin við mig. Ásta Guðrún var hálfu ári eldri en ég og Heiðrún Dóra hálfu ári yngri svo auðvitað auð- veldaði það ýmislegt hjá foreldr- unum ungu að spyrða þessa þrenningu saman. Bernskuminningarnar eru margar um Sjöfn ýmist af Hjalla- veginum, Heiðarbæ eða úr vega- vinnuskúrum þar sem ég fékk að fljóta með henni og naut mín vel við leik við aðra hvora frænkuna eða báðar. Þetta voru sælutímar með miklum ævintýrum og alltaf skein sólin. Í minningunni var Sjöfn alltaf eitthvað að starfa, við heimilis- hald eða að sinna eldra fólkinu í fjölskyldunni. Afi minn og amma, Halldór og Heiðrún, bjuggu þá í Heiðarbæ og um tíma var María langamma mín þar til heimilis. Sjöfn var vinnusöm og harðdug- leg og tók vel á móti gestum með glaðværð, kaffi og með því, enda var gestkvæmt í Heiðarbæ. Sjöfn var mér afskaplega góð. Hún var hlý og klappaði mér á kollinn. Hún fagnaði mér alltaf og mér fannst hún bera virðingu fyr- ir mér, sem er eðall uppalandans. Í minningunni var hún alltaf hress og einhver ferskur blær sem fylgdi henni. Ég sóttist eftir heimsóknum til hennar og dvaldi stundum marga daga hjá henni í einu. Þegar ég eltist áttaði ég mig á að hún var sú sem hélt öllu sam- an, fjölskyldunni, sinni eigin og þeirri stóru. Hún bauð í afmæli, vinafundi, fjölskylduboð, syst- kinaboð, ættarmót. Það gerði hún á sinn hátt og alltaf voru allir vel- komnir og hún gladdist yfir öllum sem komu. Hún ræktaði garðinn sinn og þá ekki síst frændgarð- inn. Hún var leiðtogi með stórt hjarta sem rúmaði marga. Alla tíð fagnaði hún mér þegar við hittumst og þó að á fullorðinsár- um mínum hafi samskiptin verið mun strjálli er ég full þakklætis fyrir þetta allt og svo miklu meira en það. Gott uppeldi er lífsins vega- nesti og Sjöfn var svo sannarlega hluti af mínu uppeldi. Alla daga vinnur maður úr því sem lífið hef- ur boðið manni og þá er gott að geta sótt í þennan fjársjóð sem góð frænka er. Ég þakka Sjöfn samfylgdina og bið góðan Guð að blessa hana. Heiðrún Hákonardóttir. „Já.“ Hún svaraði skýrt og ákveðið þegar presturinn spurði hvort hún vildi ganga að eiga manninn sem hjá henni stóð. Hvort hún vildi elska hann og virða, þar til dauðinn aðskildi þau. Hún játaðist ekki bara hon- um, heldur líka okkur öllum sem fylgdum með. Hún sagði já og stóð við það. Það var ógleymanleg stund í Ólafsvallakirkju þennan sól- bjarta vordag þegar elsku Sjöfn gekk formlega til liðs við okkur. Og saman gengu þau Eyvindur út úr kirkjunni, hnarreist, ham- ingjusöm og stolt. Út í sólskinið – út í vorið og sumarið – út í lífið sem beið þeirra, með allt sem það gefur og krefst. Þeirra beið frægð og frami, hamingja og gleði. En líka erfiðleikar, veikindi og sorg. Allt í stórum skömmtum. Eins lengi og Sjöfn gat nokkru ráðið stóð hún með sínum manni og allri fjölskyldunni. Hún studdi hann og okkur öll með ráðum og dáð þegar móti blés og gladdist með okkur þegar vel gekk. Ekk- ert var svo stórt eða svo smátt að hún léti sig ekki varða hvaðeina sem fyrir okkur bar. Það var nístandi sárt að sjá hana hverfa, hægt og bítandi, inn í miskunnarlausa óminnisveröld. Hún, sem alltaf hafði verið gleði- gjafi og stoð og stytta fjölskyld- unnar, varð smám saman einskis megnug og öðrum háð um alla hluti. Nú þegar vegferð hennar er endanlega lokið get ég ekki annað en gert orð Steins Steinars að mínum: Hér hvílast þeir, sem þreyttir göngu luku í þagnar brag. Ég minnist tveggja handa, er hár mitt struku einn horfinn dag. Ó, guðir, þér, sem okkur örlög vefið svo undarleg. Það misstu allir allt, sem þeim var gefið, og einnig ég. Og ég sem drykklangt drúpi höfði yfir dauðans ró, hvort er ég heldur hann, sem eftir lifir, eða hinn, sem dó? Örn Erlendsson. Sjöfn Halldórsdóttir ✝ Ásgeir fæddistí Reykjavík 27. mars 1929. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 1. september 2018. Foreldrar hans voru Sigurður Sig- urðsson, skipstjóri og útgerðarmaður, f. 20. júní 1891 í Reykjavík, og Ágústa Ólína Jóns- dóttir húsfrú, f. 19. febrúar 1893 í Brunnholti í Reykjavík. Ásgeir var yngstur sex systkina. Elst var Sigríður (Stella), f. 30. apríl 1920, d. 12. febrúar 2001, þá Þórarinn Ingi, f. 4. apríl 1923, d. 28. ágúst 1999, Jón Gunnar, f. 14. júlí 1924, d. 10. apríl 2010, Vilborg, f. 21. apríl 1926, d. 22. nóvember 1974, og Sigurður, f. 27. mars 1929, d. 27. júlí 2008. Barnsmóðir Magdalena Mar- grét Eiríksdóttir, f. 9. janúar 1934, d. 17. júní 2006. Dóttir Unnur, f. 20. september 1951. Barn: Jenný Arnardóttir, f. 4. júlí 1978. Barnsfaðir Jóhann Viðar Jóhannsson, f. 1971; sonur 1959. Börn Tanja Ýr, f. 26. ágúst 1990, sambýlismaður Haukur Gíslason, f. 18. janúar 1992, Sigurbergur, f. 27. júní 1992, sambýliskona Kamilla Vilberg Antonsdóttir, f. 28. júlí 1990. Hennar dóttir er Ronja Vilberg Kamilludóttir, f. 25. mars 2015, og Arna Birna, f. 20. apríl 1998. Seinni eiginkona Sveinveig (Lilla) Guðmundsdóttir, f. 22. desember 1942. Hún á fjögur börn af fyrra hjónabandi. Ásgeir ólst upp í Reykjavík og var Vesturbæingur í húð og hár. Hann fór ungur á sjó og stund- aði sjómennsku til 1972, fyrstu árin á togurum, síðar á skipum Eimskipafélagsins. Eftir að hann kom í land vann hann ýmis störf fyrir sjómannadagsráð. Hann sá m.a. um orlofs- húsasvæði sjómannadagsráðs í Hraunborgum í Grímsnesi auk þess að sinna störfum bæði á Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði. Ásgeir og Sveinveig bjuggu sér notalegt heimili í Nausta- hlein í Garðabæ en síðustu tvö árin hefur Ásgeir dvalið á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför Ásgeirs fór fram í kyrr- þey 18. september 2018. Hann er jarðsettur í Garðakirkjugarði. Arnar Axel 18. maí 2004. Eiginkona Sjöfn Jóhanna Haralds- dóttir, f. 7. júní 1931. Þau skildu. Dætur þeirra eru; 1) Hanna Ágústa, f. 2. janúar 1954. Fyrrverandi eig- inmaður Guð- mundur Ingólfsson, f. 20. nóvember 1948, skilin. Barn Sjöfn, f. 7. mars 1990. Dóttir Hanna Björg, barnsfaðir Þormar Elí Ragn- arsson. f. 1989. 2) Halla, f. 30. júní 1957. Eiginmaður Már Kristjánsson, f. 5. júlí 1958. Börn Anna Hrund, f. 26. febrúar 1981, gift Rollin Hunt, f. 27. sept- ember 1984, börn Dagur Leith, f. 28. ágúst 2016, Haraldur Bus- ter, f. 26. september 2017; Ás- geir Þór, f. 15. ágúst 1984, kvæntur Guðbjörgu Jónsdóttur, f. 28. júlí 1984; börn Már, 3. febr- úar 2013, Margrét Halla, f. 3. ágúst 2015. 3) Hrefna, f. 16. október 1960. Eiginmaður Theo- dór Sigurbergsson, f. 6. apríl Ég hitti Ásgeir tengdaföður minn fyrst árið 1975. Hann var þá nýhættur sjómennsku sem hann hafði stundað frá unga aldri. Hann hafði ekki gengið hinn hefðbundna menntaveg. Hans skóli hafði verið harður. Unglingur á sjó og þorra ævinnar unnið hörðum höndum við kröpp kjör að sjá fjölskyldu sinni farborða. Þetta hlutskipti mótaði hann. Það var því eftir- vænting fyrir menntaskólapilt, sem hafði skotið sér í dóttur þessa hörkukarls, að hitta hann. Og ekki víst að menntaskólapilturinn, sem aldrei hafði migið í saltan sjó eða kunnað nokkuð til handverks, yrði tekinn í sátt karlsins. En strax frá fyrstu tíð tókst með okkur vinátta og traust sem aldrei bar skugga á meðan báðir lifðu. Það kom á dag- inn að undir harðri skel bjó mjúk- ur maður sem mátti ekkert aumt sjá, eða vita, án þess að koma til aðstoðar. Þannig reyndist Ásgeir okkur hjónum stoð og stytta á okkar fyrstu búskaparárum. Hann aðstoðaði við fyrstu íbúð okkar á Þórsgötu og síðar. Þrátt fyrir fötlun sem hann bjó við eftir endurtekin vinnuslys (stífan fót, hálfan vísifingur hægri handar og stíf-fingur) vann hann að endur- gerð eldhúss, málaði, sentist og hvaðeina, á við fullfrískan mann, til að gera íbúð okkar sem best úr garði. Hann var handlaginn og list- rænn í öllu sem hann gerði. Og þegar Halla vann myrkr- anna á milli fyrir fyrstu íbúð okkar og ég í háskóla lánaði hann okkur bifreið sína, glæsikerruna Monte Carlo, svo að ég gæti komið frum- burði okkar í dagvist áður en fyr- irlestrar hæfust í háskólanum. Hann vílaði ekki fyrir sér að hjálpa ef hann gat með nokkru móti. Þegar ég lauk læknisnámi og framhaldsnámi í Bandaríkjunum, sem hann var afar stoltur af, gat ég liðsinnt honum og eiginkonu hans með ýmislegt tengt heilsu þeirra í staðinn. Þannig gátum við stutt hvor annan í gegnum tíðina hvor á sinn hátt. Þrátt fyrir erfið veikindi, einkum hin síðari ár, hélt Ásgeir sínum skap- gerðareinkennum. Glettinn og hýr, frásagnargóður og höfðingi heim að sækja. Fastur fyrir í skoð- unum, stappaði nærri þver- móðsku á stundum. Reiddist hann einhverra hluta vegna var ávallt fljótt úr honum. Hann gat líka ver- ið langrækinn. Ásgeir var fæddur Vesturbæ- ingur, studdi ávallt KR og kaus ávallt Sjálfstæðisflokkinn. Þetta ræddum við oft, kosti þess og galla. Það var honum mikið gleðiefni þegar við Halla festum okkur hús við Túngötu í Vesturbæ Reykja- víkur aðeins steinsnar frá æsku- heimili hans á Túngötu 45. Hann gat sagt okkur frá bernsku- brekum sínum á svæðinu, mörg hver sem ekki er unnt að hafa eft- ir. Það var ljóst að hann átti marg- ar góðar minningar sem hann deildi með okkur af gleði og inn- lifun. Ég er afar þakklátur fyrir að hafa kynnst Ásgeiri tengdaföður mínum. Hann var traustur maður sem var fólki sínu góð fyrirmynd þrátt fyrir margvíslega erfiðleika sem að honum steðjuðu á ævi- skeiðinu. Nú hefur hann öðlast hvíld eftir veikindi sem hindruðu hann í að geta verið að fullu sjálf- stæður. Hann hefur öðlast sitt sjálfstæði í Vesturbæ himnaríkis, þar sem KR er íþróttafélagið og Sjálfstæðisflokkurinn við stjórn- völinn. Már Kristjánsson. Ásgeir Sigurðsson Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÞÓRA LILJA BJARNADÓTTIR Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði, lést á hjartadeild Landspítalans fimmtudaginn 13. september. Útförin verður auglýst síðar. Bjarni Valdimarsson Guðfinna Karlsdóttir Eygló Valdimarsdóttir Guðjón Þorvaldsson Halldóra Valdimarsdóttir Valur Svavarsson og ömmubörnin Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSGEIR SIGURÐSSON, Naustahlein 14, Garðabæ, lést að Hrafnistu, Hafnarfirði, laugardaginn 1. september. Útför hans fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sveinveig Guðmundsdóttir Unnur Ásgeirsdóttir Hanna Ágústa Ásgeirsdóttir Halla Ásgeirsdóttir Már Kristjánsson Hrefna Ásgeirsdóttir Theodór S. Sigurbergsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HAUKUR OTTERSTEDT, Hjúkrunarheimilinu Eir, lést sunnudaginn 16. september. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 21. september klukkan 13. Hanna Margrét Otterstedt Guðrún Kolbrún Otterstedt Lena Kristín Otterstedt Steinunn Erna Otterstedt tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, GUNNAR MÁR JÓHANNSSON, Vindakór 1 lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 14. september. Útförin verður auglýst síðar. Helga Jónína Steindórsdóttir Sigríður Jóna Gunnarsdóttir Óskar Ingi Gunnarsson og fjölskyldur Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.