Morgunblaðið - 19.09.2018, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 19.09.2018, Qupperneq 27
eða aðalfulltrúi um málefni varðandi skipulag björgunarmála. Ennfremur sem fulltrúi Íslands á fundum sem haldnir voru til að samræma björg- unarstörf á hafinu og stjórnun þeirra en fundir þessir voru haldnir með þeim þjóðum sem land eiga að Norð- ur-Atlantshafi. Skipulag það sem þá var komið á er enn í fullu gildi. Hann var deildarstjóri hjá Siglinga- málastofnun 1994-96 og eftir það deildar- og verkefnisstjón hjá Sigl- ingastofnun í skipaskoðun frá 1994, fulltrúi stofnunarinnar við hafna- eftirlit og eftirlitsmaður hennar m.a. við nýbyggingar skipa í Kína og Síle. Hálfdan var framkvæmdastjóri Skipaskoðunar Íslands ehf. 2004-2010 og tæknilegur stjórnandi skipaskoð- unar hjá British Standards Instition á Íslandi frá 2011 og þar til hann tók við starfi stjórnarformanns sjó- mannadagsráðs á höfuðborgar- svæðinu. Undir ráðið heyrir rekstur Hrafnistuheimilanna sem nú eru sex talsins, happdrætti DAS, Laugarás- bíó og Naustavör ehf. auk annarra fyrirtækja sjómannadagsráðs í Reykjavík og Hafnarfirði. Hálfdan átti sæti í stjórn Stýri- mannafélags Íslands og var formaður hollvinasamtaka Sjómannaskólans auk fjölmargra annarra trún- aðarstarfa. Fjölskylda Hálfdan kvæntist 29.5. 1966 Eddu Þorvarðardóttur, f. 5.12. 1943, skrif- stofustjóra slysa- og bráðasviðs Landspítala – háskólasjúkrahúss. Hún er dóttir Þorvarðs R. Jónssonar verslunarmanns og Guðrúnar Gísla- dóttur húsmóður. Börn Hálfdans og Eddu eru Henry Arnar, f. 13.10. 1967, rafeindavirki hjá RÚV en eiginkona hans er Anna María Þórðardóttir hjúkrunarfræð- ingur og eiga þau tvo syni; Þorvarður Ragnar, f. 11.2. 1969, prófessor og yf- irlæknir í krabbameinslækningum við Mayo Clinic í Rochester í Minnesota, en eiginkona hans er Eygló Þórðar- dóttir læknir og eiga þau þrjú börn en áður átti hann einn son; Halldór Gunnar, f. 21.3. 1974, bóndi á Mola- stöðum í Fljótum en eiginkona hans er María Þórunn Númadóttir, bóndi og bókari, og þau eiga átta börn, og Helga Dís, f. 6.3. 1981, knapi og kvik- myndagerðarmaður í Mertert í Lúx- emborg, en sambýlismaður hennar er Sigurður Ingibergur Björnsson stærðfræðingur og Helga Dís á tvö börn. Systkini Hálfdans eru Helga, f. 16.10. 1931, húsmóðir í Reykjavfk; Henry Þór, f. 23.3. 1934, mælinga- fræðingur í Reykjavík; Haraldur, f. 17.2. 1938, fyrrv. hæstaréttardómari í Reykjavík; Hjördís, f. 9.2. 1946, hús- móðir í Reykjavík; Þorsteinn Ásgeir, f. 15.5. 1953, d. 28.9. 2015, fyrrv. rann- sóknarlögreglumaður. Hálfbróðir Hálfdans, samfeðra: Ragnar Berg- steins, f. 31.3. 1927, d. 9.11. 1987, blikksmiður, var búsettur í Reykja- vík. Foreldrar Hálfdans: Henry Alex- ander Hálfdansson, f. 10.7.1904, d. 8.10. 1972, framkvæmdastjóri Slysa- varnafélags Íslands, og k.h., Guðrún Þorsteinsdóttir, f. 4.8. 1913, d. 20.4. 2008, húsmóðir, fyrst á Ísafirði en lengst af í Reykjavík. Úr frændgarði Hálfdans Henryssonar Ragnar Þorsteinsson skipstj., b. og skáld frá Höfðabrekku Reynir Ragnarsson fv. lögreglum. í Vík Sigurður orsteinsson skipstjóri Þ Kristinn Sigurðsson verkfræðingur hjá Boeing-verk- smiðjunum í Seattle Hálfdan Henrysson ón Guðjónsson oftskeytam. á Ísafirði J l óhanna Jónsdóttir Edward húsfr. á Ísafirði og í Rvík J Ari Edward forstjóri MS Pálína Guðrún Pétursdóttir húsfreyja í Hlöðuvík Jón Jakobsson báta- smiður á Eyri í Seyðisfirði við Djúp Kristján Jónsson skólastjóri og hrepp- stjóri í Súðavík Kristján Ragnars- son fv. form. og framkvstj. LÍÚ Margrét Jónsdóttir kennari á Flateyri og í Rvík Bjarni Jakobsson b. í Hlöðuvík Rebekka Bjarnadóttir húsfreyja í Álftafirði og Hnífsdal Guðrún Þorsteinsdóttir húsfreyja á Ísafirði en lengst af í Rvík Þorsteinn Michael Ásgeirsson útvesgsb. í Álftafirði og form. í Hnífsdal Rannveig Þórðardóttir húsfreyja á Rauðamýri, frá Blámýrum Ásgeir Pálsson b. á Rauðamýri á Langadalsströnd Guðmundur Þorkelsson sjómaður á Ísafirði Jón Sólnes alþm. og bankastj. á Akureyri Júlíus Sólnes verkfr. og fv. alþm. og ráðherra Jón Óskar Sólnes hagfræð- ingur Guðný Jónsdóttir húsfr. á Bakka í Hnífsdal Helga Jónasdóttir húsfr. í Hafnarfirði Jónas Bjarnason læknir í Hfj. Ragnheiður Erla Bjarnadóttir guðfr. og líffr. í Rvík Bjarni Bjarnason endurskoðandi í Rvík Þorvarður Elíasson fv. skólastj. VÍ Halldór Elíasson prófessor emeritus Jónas Elíasson prófessor emeritus Guðný Rósa Jónasdóttir hjúkrunarkona og húsfreyja í Rvík Elísabet Jónasdóttir skólastjóri Húsmæðraskólans í Rvík Jónas A.Aðalsteinsson hrl. í Garðabæ Guðfinna Jónsdóttir vinnukona á Alviðru í Dýrafirði Þorkell Árnason sjóm. á Kolbeinseyri við Seyðisfjörð í Djúpi Þorkatla Þorkelsdóttir húsfreyja á Ísafirði Hálfdan Ágúst Brynjólfsson sjómaður á Ísafirði Helga Illugadóttir vinnukona að Skógum í Reykhólahreppi Brynjólfur Jónsson b. á Valshamri í Geiradal Henry Alexander Hálfdansson framkvæmdastjóri SVFÍ ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2018 85 ára Guðrún E. Þorsteinsdóttir Jón Gunnarsson Sigurður Ingólfsson Þór Snorrason Þórunn M. Guðmundsdóttir 80 ára Björgvin Magnússon Guðríður Jónsdóttir Magnús Kristjánsson 75 ára Garðar Bergendal Gísli R. Sigurðsson Gísli V. Halldórsson Guðrún Guðmundsdóttir Ingveldur Halla Jónsdóttir Jakobína Þ. Gunnþórsdóttir Katrín Eyjólfsdóttir Klemens S. Antoniussen Kristín G. Lárusdóttir Kristín Jónsdóttir Rafn Ólafsson Sigríður E. Helgadóttir Sigurður Þorkelsson Valur Kristinsson Víglundur Þorsteinsson 70 ára Arnljótur Geir Ottesen Bjarni Bogason Einína Einarsdóttir Guðrún M. Skúladóttir Gunnar Vífill Karlsson Ingibjörg Jóhannesdóttir Jón Ólafur Karlsson Sigríður D. Jóhannsdóttir Stefán Bjarni Stefánsson Sæmundur Þórðarson Tómas Sigurbjörnsson 60 ára Bergur Einarsson Bjarni Hjaltalín Böðvar Sigurðsson Hjörtur V. Erlendsson Jóhanna Björnsdóttir Kristín G. Sigurðardóttir Ólafur Björn Lárusson Ólafur Gröndal Regina Gaizauskiené Rúna Kristinsdóttir Svavar Þorsteinsson Þórunn Jóna Skjaldardóttir 50 ára Amnuay Thitkrathok Björgvin Guðjónsson Dorota Romaniuk Eggert Þór Ingólfsson Guðmundur Hilmar Zoega Gunnlaugur Sigursveinsson Hermann Gunnar Jónsson Hermann Jónsson Margrét Björg Karlsdóttir Milomir Gajic Sigtryggur Albertsson Sigurþór Pálsson Svanhildur Svavarsdóttir 40 ára Einar Hallur Sigurgeirsson Eyrún Magnúsdóttir Grzegorz Hubert Brozyna Hulda B. Guðmundsdóttir Ioan Lorent Strugar Ivan Kári Samuel Kristján H. Hallgrímsson Vilborg Lúðvíksdóttir 30 ára Aðalsteinn Helgi Valsson Brynjar Orri Oddgeirsson Dagbjört Heiða Her- mannsdóttir Davíð Arnar Oddgeirsson Egill Örn Erlingsson Elín Tinna Logadóttir Gísli Valur Arnarson Halldór Már Vilhjálmsson Jana Safaríková Thelma Sif Sigurjónsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Tinna ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk BA-prófi í stjórnmálafræði og MA-prófi í þróunarfræði frá HÍ og er fram- kvæmdastjóri Lands- sambands ungmenna- fé- laga. Maki: Konráð S. Guð- jónsson, f. 1988, hagfræð- ingur hjá Viðskiptaráði. Foreldrar: Jórunn Lovísa Sveinsdóttir, f. 1970, og Bjarni Jóhannesson, f. 1971. Tinna Rut B. Isebarn 30 ára Rakel ólst upp í Kópavogi, býr á Fáskrúðs- firði, er einkaþjálfari og stundar nám í innanhúss- arkitektúr. Maki: Smári Einarsson, f. 1987, sjómaður. Börn: Gabriel Max, f. 2007, og Victoria Rut, f. 2011. Foreldrar: Sæfríður Björnsdóttir, f. 1961, og Halldór Nguyen, f. 1954. Stjúpfaðir: Hjalti Jónsson, f. 1963. Rakel Nguyen Halldórsdóttir 30 ára Ingunn ólst upp í Koti í Svarfaðardal, býr á Dalvík, nemur sjúkraliðun og er í heimilishjálp. Maki: Ari Már Gunn- arsson, f. 1985, húsa- smiður. Börn: Heiðrún Elísa, f. 2008; Sunneva Björk, f. 2011, og Magnús Darri, f. 2014. Foreldrar: Anna Lísa Stefánsdóttir, f. 1964, og Magnús Jónasson, f. 1961. Ingunn Magnúsdóttir Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds Uta Reichardt hefur varið doktorsritgerð sína í umhverfis- og auðlindafræði. Heiti hennar er Aska og flugumferð í Evrópu: Greining á viðbúnaði hagsmunaaðila fyr- ir öskugos á Íslandi. Leiðbeinendur voru dr. Guðmundur Freyr Úlfarsson, prófessor og deild- arforseti umhverfis- og byggingar- verkfræðideildar, og dr. Guðrún Péturs- dóttir, dósent og framkvæmdastjóri Stofnunar Sæmundar fróða, HÍ. Alþjóðlegar leiðbeiningar um flug- umferð leggja til að ekki sé flogið á svæði sem mengað er af gosösku vegna áhættu fyrir flugvélar og þotuhreyfla. Gosið í Eyjafjallajökli árið 2010 sýndi vel áhrif slíkra leiðbeininga: Spá um gosösku á einu þéttsetnasta flugumferðarsvæði heims hafði fordæmalaus áhrif á hag- kerfi og samfélög. Þetta varð til þess að evrópski fluggeirinn varð að skipta um stefnu með snöggum hætti til að draga úr óþörfum skaða. Flugumferð í heiminum fer vaxandi og rannsóknir benda til þess að svo geti einnig átt við um gosvirkni á Íslandi. Þessi rannsókn kannar undirbúning fluggeirans í Evr- ópu fyrir stærri öskugos og ræðir mögulegar leiðir til að bæta áhættu- stjórnun. Til þess að prófa viðbrögð og vinnu- ferla við stærri atvik voru tvær áhrifa- miklar sviðsmyndir af öskugosum búnar til og kannaðar með hagsmunaaðil- unum. Rannsóknin leitast við að styrkja áhættustjórn og viðnámsþol þjóðfélaga við slíkum atburðum með því að setja fram tillögur um umbætur í við- bragðsáætlunum, viðbragðsæfingum, mönnun starfa, samskiptum, rannsókn- arfjárveitingum og regluverki. Nið- urstöðurnar benda á nauðsyn þess að fulltrúar fleiri samgöngumáta verði kall- aðir til samstarfs, svo undirbúa megi val- kosti ef ómögulegt reynist að fljúga um langt skeið vegna viðvarandi gosösku í lofti flugumferðarsvæðis. Uta Reichardt Uta Reichardt (f. 1986) nam landfræði og svæðalandfræði latnesku Ameríku við Tækniháskólann í Dresden 2005-2008. Hún lauk BA-gráðu í landfræði frá Há- skólanum í Bern 2009. Árið 2012 brautskráðist hún með M.Sc.-gráðu í áhættu- greiningu frá hinum Konunglega háskóla í London (King’s College). Hún hóf nám til Ph.D.-gráðu í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands árið 2014. Árin 2015 til 2016 lauk hún fornámi við Myndlistaskólann í Reykjavík. Hún lauk fjög- urra mánaða rannsóknardvöl við Kyoto-háskóla í Japan árið 2017. Við rannsókn- ina hlaut Uta stuðning frá FP7-verkefninu ENHANCE, Rannsóknarsjóði ISAVIA við Háskóla Íslands, NORDRESS-öndvegissetrinu við Háskóla Íslands og Watanabe- sjóðnum við Háskóla Íslands. Hún er núna nýdoktor við HÍ. Doktor

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.